30.04.2012 09:47
74 Þing HSH var haldið að Lindartungu í Kolbeinsstaðahreppi (Borgarbyggð) þriðjudaginn 24 apríl og hófst þingið kl. 18.00
Þingið var starfsamt og góðar umræður um starf HSH og tillögur sem lágu fyrir þinginu.
Alexander Kristinsson, UMF.Reyni gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn og var Þráinn Ásbjörnsson, Eldborg kjörin í hans stað í stjórn, Við þökkum Alexander fyrir gott starf í gengum árin.
Í varastjórn komu þau Dagný Þórisdóttir, Mostra og Dagbjartur Harðarson, Vestarr ný inn.
Góðir gestir sóttu þingið heim en frá ÍSÍ komu Ólafur Rafnsson, forseti ÍSÍ og Gunnar Bragason gjaldkeri ÍSÍ og frá UMFÍ voru Helga Guðjónsdóttir formaður og Sæmundur Runólfsson, framkvæmdarstjóri.
Þingforseti var Kristján Magnússon Eldborg og ritari þings var María Valdimarsdóttir, Snæfell.
Ólafur flutti kveðju frá stjórn ÍSÍ og starfsfólki þess. Hann minntist 100 ára afmælis ÍSÍ, kom inn á fyrirmyndarfélag ÍSÍ og hæld starfi HSH ásamt að þakka fyrir störf framkvæmdarstjóra HSH inn í stjórn ÍSÍ en Garðar var kjörinn í varastjórn ÍSÍ á síðasta Íþróttaþingi.
Ólafur heiðraði svo 3 aðila starfsmerkjum ÍSÍ
Gullmerki ÍSÍ
Haukur Sveinbjörnsson UMF.Eldborg.
Gjaldkeri Eldborgar 1952 í eitt ár.
Formaður Eldborgar í nokkur ár í kringum 1960. Formaður HSH 1961 - 1965. Formaður Snæfellings 1970 - 1976. Tók þátt í stofnun Snæfellings 1965 og heiðursfélagi þess. Vann í þrjátíu ár sjálfboða starf í þágu félagsins á félagssvæði þess á Kaldármelum. Davíð Sveinsson, UMF.Snæfell
Knattspyrna: Spilaði frá 1972 til 1985, auk þess að vera í stjórn knattspyrnudeildar í 8 ár. Var með dómararéttindi og dæmdi í nokkur ár leiki hér á svæðinu. Körfubolti: Spilaði með Snæfell frá árinu 1972 til 1979 og 1984 til 1987 og þjálfaði yngriflokka á sama tíma. Var í stjórn körfuknattleiksdeildar 1974 til 1979 og síðan verið í stjórn yngriflokka í 10 ár til dagsins í dag. Var í stjórn mfl. 1985 - 1988 og síðan aftur 2007 - til dagsins í dag. Var með dómararéttindi og dæmdi marga leiki í öllum deildum á vegum KKÍ auk þess að dæma mikið hér heima. Er núna gjaldkeri í stjórn mfl. Snæfells Í körfu og einnig hjá yngriflokkum.
Stjórn: Var í stjórn Snæfells 1975 - 1979 og síða aftur 1985 - 1991 þar af formaður 1989 - 1991. Sat í stjórn HSH í nokkur ár.
Silfurmerki ÍSÍ
Guðmundur Gíslason, UMF.Grundarfjarðar.
Hefur starfað vel og lengi í stjórnunarstörfum fyrir íþróttahreyfinguna.
Síðustu ár hefur hann staðið bak við félagsstarf og afþreyingu og meðal annars séð um getraunahóp UMFG.
Ólafur Rafnsson, forseti ÍSÍ , Guðmundur, Haukur, Davíð og Gunnar Bragason gjaldkeri ÍSÍ

Helga Guðjónsdóttir formaður UMFÍ
Flutti kveðju frá Stjórn og starfsfólki UMFÍ


Kristján Magnússon, Eldborg þingforseti

23.04.2012 16:28
74 Þing
Héraðssambands
Snæfellsness og Hnappadalssýslu
Héraðsþingi HSH verður haldið
24 apríl kl. 18.00 í
Lindartungu, Borgarbyggð (Kolbeinstaðahrepp)
Á þinginu eiga 15 félög með 38 þingfulltrúa seturétt,
Öllum félögum í aðildarfélögum HSH heimil þátttaka og málfrelsi20.04.2012 14:31
74. Héraðsþing HSH haldið 24, apríl 2012 í
Félagsheimilinu Lindartungu, KolbeinsstaðahreppDagskrá þings
1.Þingsetning.
2.Tilnefning þingforseta, varaþingforseta og tveggja þingritara.
3. Skipun kjörbréfanefndar.
4. Skýrsla stjórnar.
5. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar.
6.Umræður um skýrslu stjórnar og reikningar lagðir fram til samþykktar.
7. Kosning nefnda þingsins:
a)Fjárhagsnefnd.
b)Íþróttanefnd.
c)Allsherjar- og laganefnd.
8. Ávörp gesta
19. Fjárhagsáætlun lögð fram.
10. Framkomnar tillögur lagðar fram og vísað til nefnda.
11. Nefndarstörf.
12. Nefndaálit, umræður og atkvæðagreiðslur.
13. Kosningar:
a) Formaður HSH
b) Aðrir í stjórn og varastjórn.
c) Tveir skoðunarmenn og tveir til vara.
d) Ráð og nefndir skv. gildandi samþykktum og reglugerðum.
e) Uppstillinganefnd, 4 af formönnum aðildarfélaga HSH, sem starfar fram að
næsta héraðsþingi.
f) Kosning fulltrúa á Íþróttaþing ÍSÍ
14. Önnur mál.
15. Þingslit.
19.04.2012 15:55
Nú
eru þjálfaramál Grundarfjarðar loksins komin á hreint en samningar hafa
náðst við Aleksandar Linta um að þjálfa liðið á komandi sumri.
Aleksandar hefur verið í Serbíu undanfarna mánuði að ná sér í
þjálfararéttindi en hann er hokinn af reynslu. Aleksandar sem er 37 ára
gamall var í herbúðum Þórs á Akureyri síðasta sumar og spilaði þar 16
leiki í efstu deild.
Linta
hefur verið í herbúðum Þórs frá árinu 2008 en hann hefur einnig leikið
með KA, ÍA og Víkingi Ólafsvík. Hann á að baki 173 meistaraflokks leiki á
Íslandi og hefur skorað 25 mörk í þeim leikjum.
Við óskum Aleksandar velfarnaðar í starfi.