laufeyhelga
Hlaupanámskeið Silju Úlfars
Silja Úlfars í samstarfi við HSH ætlar að vera með hlaupanámskeið fyrir börn og unglinga á Snæfellsnesi 1. - 2. maí í Grundarfirði 🏃♀️🏃♂️🏃♀️🏃♂️🏃♀️🏃♀️🏃♂️🏃♀️
Skráning og frekari upplýsingar á www.siljaulfars.is
Silja hefur verið að ferðast um landið að hitta unga og efnilega íþróttamenn og kenna þeim betri hlaupastíl, hvernig þau geta bætt hraðann og sprengikraftinn. Einnig leggur Silja mikla áherslu á að kenna hvað það þarf til að vera íþróttamaður og ná árangri.
