top of page

Íþróttamaður HSH 2019

Vignir.jpeg

Íþróttamaður ársins og

Knattspyrnumaður HSH 2018

Vignir Snær Stefánsson, Umf. Víking 

Vignir Snær er uppalinn í Víkingi Ó. en hann var í lykilhlutverki liðsins sumarið 2018 og skoraði tvö mörk þegar liðið endaði í 4. sæti 1. deildar og komst alla leið í undanúrslit bikarkeppninnar. Vignir, sem er 22 ára, er með mikinn baráttuanda sem smitar út frá sér. Hann er frábær liðsmaður innan sem utan vallar. Víkingshjartað slær ört í Vigni. 

Hestaíþróttamaður HSH 2018

Siguroddur Pétursson,

Snæfelling


Siguroddur hefur staðið sig gríðarlega vel í keppnum á árinu og tók þátt í öllum stærstu mótum hestamanna á árinu. Á Hestaþingi Snæfellings sem einnar var úrtaka fyrir Landsmót hestamanna mætti hann með fjóra hesta og náði að koma þeim öllum inn á landsmót. Á landsmótinu stóð hann sig gríðarlega vel, eftir að hafa unnið B úrslit og unnið sig upp í A úrslit þá endaði hann í 4. sæti. Á Íslandsmóti hestamanna var hann með Stegg frá Hrísdal í bæði Fjórgangi og Tölti og endaði í 2. sæti í fjórgang og 3. sæti í tölti. Á Reykjavíkur-meistaramótinu var Siguroddur með Steff í tölti og endaði þar í 4. sæti. Feif World Ranking, sem er listi yfir allar keppnir sem haldnar eru í heiminum á íslenska hestinum, og er þar er Siguroddur mjög ofarlega í Tölti og Fjórgang.

Siguroddur.jpeg
Lydía.jpeg

Blakmaður HSH 2018

Lydía Rós Unnsteinsdóttir,

Umf. Grundarfjarðar 

Lydía Rós er efnilegur leikmaður sem hefur tekið miklum framförum á síðasta tímabili. Hún hefur góð áhrif á liðið bæði innan og utan vallar. Ávallt hress, jákvæð og lífgar svo sannarlega upp á stóra æfingahópinn.  

Kylfingur HSH 2018

Rögnvaldur Ólafsson,

Golfklúbbnum Jökul

Hann er okkar fremsti kylfingur og lykilmaður í  sveit Jökuls sem keppir í efstu deild. Hann er góð fyrirmynd og alltaf reiđubúinn ađ leiđbeina fólki međ sveifluna.  

Rögnvaldur.jpeg
Berglind.jpeg

Körfuknattleikmaður HSH 2018

Berglind Gunnarsdóttir,

Umf. Snæfell

Berglind Gunnarsdóttir byrjaði snemma í körfubolta og hefur hún spilað vel yfir 287 leiki með unglinga- stúlkna- og mfl. Snæfells einnig hefur hún leikið 21 landsleik og 18 leiki með yngri landsliðum.  Berglind er í krefjandi námi og átt við þrálát meiðsli að stríða en slær ekkert af, alltaf tilbúinn að mæta á æfingar, leiki og landsleik þar sem hún hefur verið fastamaður undanfarinn ár. Berglind hefur alltaf staðið sig vel bæði utanvallar sem innan. Á síðasta tímabili skoraði hún 13,1 stig að meðaltali í leik, tók 5,1 frákast, gaf 2,7 stoðsendingar og var með 11,6 framlagsstig í leik.   

Berglind er með betri varnarmönnum deildarinnar og hefur fengið mörg verðlaun fyrir sína spilamennsku. Nálgun og elja Berglindar er öðrum til fyrirmyndar. 

Skotíþróttamaður HSH 2018

Jón Pétur Pétursson,

Skotfélag Snæfellsnes

Jón Pétur hefur verið formaður félagsins frá árinu 2011. Frá því að hann tók við stjórninni hefur félagið vaxið og dafnað, fjöldi félagsmann hefur aukist mikið og viðburðum félagsins einnig. Hefur hann verið mjög drífandi í þeirri uppbyggingu sem átt hefur sér stað og varið ómæltum tíma í að sinna málum félgsins. Hannaði hann skothús félagsins sem er í byggingu, aflað fjölda stykja fyrir félagið og sinnt málum þess að mikilli elju. Hefur hann alltaf verið boðinn og búinn að aðstoða annað skotfólk við hin ýmsu mál.  Jón Pétur gerir oftast lítið úr þeirri vinnu sem hann vinnur fyrir félagið en er óspar á að hrósa öðrum fyrir þeirra störf. Skotfélag Snæfellsness væri ekki eins án hans og nú er komin tími á að hann fá það hrós sem hann á svo sannarlega skilið. 

Jón Pétur.jpeg
Vinnuþjarkar.jpeg

Vinnuþjarkur HSH 2018

Skotgrund Skotfélags Snæfellsnes

Stjórn Skotfélag Snæfellsness hefur verið að skila miklu og góðu starfi á síðustu árum. Þeir hafa markvist unnið að því að fjölga í félagatalinu sínu með átaki í öflun félaga. Á fáum árum hefur félagatalið farið úr 19 í 172 félaga. Félagið hefur haldið úti góðu kvennastarfi með mikilli aukningu kvenna í skotíþróttum. Haldið námskeið fyrir nýliða, verið með vopnasýningar, ásamt öflugu mótahaldi. Einnig hefur félagið staðið fyrir mikilli uppbyggingu á íþróttasvæði sínu. Byggt hefur verið skothús, steypt borð fyrir riffilskot, svæðið snyrt og lagfært. Jafnframt geta þess að öll skýrsluskil til HSH hefur verið mjög góð, greinagóð skýrsla um störf félagsins ásamt myndum. Öll vinna og umgjörð hefur verið til mikill fyrirmyndar. Við metum störf Skotfélagsins mikils og félagið vel að Vinnuþjark HSH komið. 

bottom of page