Öflugt félagsstarf verður á vegum Snæfellings í vetur og vonum við að félagar finni nú eitthvað til að taka þátt, þessar dagsetningar eru það sem við stefnum á að halda okkur við en það getur þó alltaf breyst og verða dagssetningar auglýstar betur þegar viðburðir verða auglýstir.
Tvö mót í vetur, annars vegar töltmót, 27. janúar og
þrí eða fjórgangasmót, 9. mars í Söðulsholti
Járninganámskeið, stefnt á fyrstu helgina í janúar, sennilega í Grundarfirði
Fara menningarferð 3. mars um Borgarfjörðinn
Æskulýðsnefndinni falið að vera með tvo daga fyrir yngri kynslóðina í Reiðhöllinni í Grundarfirði, dagana 12. febrúar og 15. apríl, þar sem verða þrautabrautir, grill og reiðtúr ef veður leyfir.
Aðalfundur 28. mars í Stykkishólmi.
Reyna að hafa aftur reiðtúr á fjörurnar eins og var reynt s.l. vetur en veðrið hamlaði því að að hægt væri að ferðast með hestakerrur síðast, yrði þetta auglýst með stuttum fyrirvara.
Það voru 9 leikmenn Stjörnunuar sem mættu í Hólminn til að
takast á við Snæfell í úrslitaleik í c-riðli Lengjubikarsins, Jovan
Zdravevski var kominn í búning en kom aldrei við sögu í leiknum. Snæfell
höfðu aðeins eitt stig í plús í innbyrðisviðureign liðanna en náðu að
klára verkefni kvöldins 94-84 en þó ekki örugglega nema í lokin.
Stjörnumenn
virkuðu léttari fyrstu andartök leiksins en lítið var um skor svona
fyrst um sinn en Keith Cothran setti fyrstu stig leiksins á 8:43. Pálmi
Freyr kom Snæfelli yfir með þrist 5-4 og liðin ekki að nýta skotin sín
framan af í leiknum og voru að missa boltan bæði í upphafi. Það voru þó
heimamenn í Snæfelli sem gáfu betur í eftir að Stjarnan komst í 7-10 með
fínum kafla en fóru svo að missa boltann aftur og aftur í skrefum og
klaufaskap alls 10 sinnum í hlutanum. Snæfell gekk á lagið skoraði 12
stig og komust í 19-10 með þristum frá Hafþóri, Pálma og Marquis og
virtust hitna á augabragði. Staðan eftir fyrsta fjórðung var 24-14 fyrir
Snæfell.
Snæfellingar héldu stefnunni og keyrðu hraðann
upp eftir stoppin í vörninni og voru komnir mest í 14 stiga mun í
leiknum í öðrum hluta 35-19 með troðslu frá Quincy sem leiðist ekki að
fá slík augnablik. Nonni Mæju var hvíldur seinni hluta fjórðungsins með 3
villur á bakinu og Stjörnumenn fóru að stilla byssurnar sem höfðu ekki
fengið mörg skot. Marvin og Guðjón náðu strax 4 stigum niður fyrir
Stjörnuna en hinn heiti herra Vesturland Haffþór Gunnarsson setti þrjú
strax til baka 40-30. Í stöðunni 42-34 með 1:40 á klukkunni settu
Stjörnumenn allt í gang og tóku góðann 7-0 kafla með 2 stolnum boltum og
7 stigum frá Keith Cothran og staðan í hálfleik 42-41 fyrir Snæfelli
sem misstu niður 14 stiga forskot á svipstundu.
Í
hálfleik voru hjá Snæfelli Quincy Cole kominn með 14 stig og 4 fráköst
og Nonni Mæju 7 stig. Hjá Stjörnunni var Keith Cothran kominn með 14
stig en Justin Shouse og Guðjón Lárusson með 8 stig hvor.
Stjörnumenn
héldu áfram að bæta við sprettinn strax í þriðja hluta sem þeir voru á í
lok fyrri hálflkleiks. Þeir komust í allt í 11-0 og staðan 41-45 strax í
upphafi og virtist Stjarnan vera búnir að ná tökum á boltanum. Snæfell
komst strax yfir 46-45 með þrist frá Quincy og Nonni bætti einum til
49-45 og taflið snérist hratt við. Til að sýna að hann gæti líka skotið
þristum og ekki óvanur því á fjölunum í Hólminum setti Justinn einn og
minnkaði muninn í 55-53. Kaflakilin voru þó ekki langt undan og komu
þau þegar Snæfell sprettaði í 68-55 með stórþristum frá Pálma og Svenna
en Stjörnumenn hittu ekkert og eins og þeir væru komnir með sleipefnið á
hendurnar aftur. Staðan var 68-59 fyrir lokahlutann.
Nonni
Mæju sem hafði mest vermt tréverkið vegna villuvandræða kom inn og
smellti sínum þriðja þrist í 71-59 og eftir "alley-oop" troðslu Quincy
og óíþróttamannslega villu á Fannar Frey var Snæfell komið aftur komið í
sinn mesta mun í leiknum 14 stig, 75-61. Nonni skellti þá sínum fjórða
þrist áður en hann kvaddi völlinn þetta kvöldið. Þá var komið að
meistara Justin Shouse sem skellti tveimur sjóðheitum bombum í hringinn
úr stöðunni 80-72 í 80-78 þegar um fjórar mínútur voru eftir en hann fór
svo útaf með 5 villur þegar um 2:30 voru eftir og staðan einkar
spennandi 82-80. Marquis Hall smellti þá næstu 5 stigum og líkt og
slokknað hefði á Stjörnumönnum eftir að Justin fór af velli en hann
gerði Snæfellingum oft erfitt fyrir. Á einni mínútu varð staðan 91-80
fyrir Snæfell og virtust gestirnir ekki hafa uppá meira að bjóða til að
krafsa þann mun niður. Quincy Cole sem þykir einkar troðinn og reynir
óspart að finna sér slík augnablik kláraði síðustu stig leiksins í með
einni troðslu og Snæfell komst áfram í undanúrslit lengjubikarsins með
sigri 94-84.
Helsta tölfræði leikmanna. Snæfell:
Quincy Cole 28/11 frák. Jón Ólafur 21. Marquis Hall 14/7 stoðs. Pálmi
Freyr 10/4 frák/6 stoðs. Ólafur Torfason 9/10 frák. Hafþór Ingi 6/4
frák. Sveinn Arnar 6. Guðni 0. Þorbergur 0. Egill 0. Magnús 0. Daníel 0.
Fyrir
leikinn var Keflavík í 4. Sæti með 8 stig en Snæfell í 7 sæti með 6
stig og munar ekki miklu frá sætum 3-9. Alltaf eftirvænting eftir leik
við Keflavík í Hólminum en Snæfellingar ætluðu að freista þessa að
teygja sig í sæti Keflavíkur í það minnsta.
Keflavík
byrjaði betur í upphafi og komust strax í 6-0 og Snæfell lengi í gang í
sóknum sínum en Pálmi setti þrist og lagaði startið eilítið. Keflavík
herti þó á og komst í 3-13 með Magga Gnnars fremstann í þeirri aðgerð.
Snæfell tók leikhlé í stöðunni 10-16 og herti róðurinn og náði að jafna
16-16 og svo yfir 21-16 með 11-0 kafla. Kaflaskiptur fyrsti hluti með
góðum áhlaupum beggja liða. Staðan eftir fyrtsa hluta 23-16 fyrir
heimamenn í Snæfelli. Quincy var að svara fyrir að byrja á bekknum og
gaf í fyrir Snæfell þegar hann kom inná.
Keflvíkngar komu
aðeins hressari í upphaf annars hluta en leikar jöfnuðust fljótt út og
liðin að spila jafnann leik framan af. Magnús Gunnarsson einn besti
maður Keflavíkur í leiknum fram að þessu lenti í orðaskaki við Rögnvald
dómara vegna að virtist 3 ja sekúndna sem hann vildi fá dæmdar á Snæfell
sem kostaði hann tæknivillu en því var ekki lokið þar þar sem samræðum
var ekki lokið og Magnús var látinn víkja af velli þegar 2:27 voru eftir
af fyrri hálfleik. Þetta drap Keflvíkinga ekki niður þar sem hópur
manna voru tilbúnir að berjast áfram aðallega Parker, Gerard og Cole.
Snæfell hafði forystuna 43-39 þegar Haffi Gunnars setti niður þrist og
leikhlutinn jafn. En hálfleikstölur 49-41 fyrir Snæfell.
Hjá
Snæfelli voru frændurnir Quincy Cole og Marquis Hall með sín hvor 11
stigin en Quincy með 5 fráköst og Marquis 4. Næstur þeim var Nonni Mæju
með 10 stig og Hafþór 7 stig. Í liði Keflavíkur voru Parker, Gerard og
Cole allir með 10 stig. En næstur þeim var Magnús kominn með 8 stig.
Snæfellingar
hengu á 10 stiga forystunni framan af þriðja hluta en þrír póstar í
hvoru liði héldu að mestu uppi leik liðanna. Keflavík minnkaði muninn í
68-63 með þrist frá Gerard og voru farnir að spila hraðar á Snæfellinga
sem slökuðu á taumnum og tóku tíma í umræður um það. Parker setti svo
þrist í 68-67 stal boltanum og tróð og Keflavík snéri við blaðinu 68-69.
Á lokamínútu þriðja hluta var þristasýning Gunnar Stefáns bætti við
einum í 71-72 og Egill Egils fyrir Snæfell á flauti 74-72 fyrir Snæfell
fyrir lokafjórðunginn og leikurinn orðinn mjög jafn og skemmtilegur.
Hafþór
Gunnarsson smellti tveimur þristum og hélt Snæfelli við efnið í
stöðunni 86-80 og leikar að æsast. Halldór Halldórsson setti einnig tvo
þrista til svars fyrir Keflavík. Snæfell komst þá í 95-87 og ætluðu ekki
að gefa eftir forystuna auðveldlega. Staðan var 97-93 fyrir Snæfell
þegar tvær mínútur voru eftir. Halldór lagaði stöðuna fyrir Keflavík í
99-96 með sínum þriðja þrist og Jarryd Cole tróð fyrir 99-98 og fór svo
útaf með fimm villur en Snæfell missti boltann í þriðja sinn og Keflavík
nýtti það ekki . Þegar 18 sek voru eftir setti Quincy niður víti 100-98
og leikhlé tekið. Keflavík jafnaði 100-100 með skoti frá Parker og 9
sek eftir. Snæfell klikkaði á sókn sinni undir lokin sem hefði getað
klárað leikinn en Quincy var ónákvæmur á gefnu sniðsskoti og framlenging
raunin.
Marquis
setti fyrstu stigin með þrist 103-100 og Hafþór Gunnars bætti við
tveimur í 109-104 en Keflavík með Parker komust nær 109-108. Halldór
jafnaði fyrir gestina 109-109 af vítalínunni og háspennuleikur í gangi.
Liðin skiptust á að skora mest á vítalínunni fram undir lokin en Ólafur
Torfason jafnaði 113-113 af vítalínunni. Parker náði tveggja stiga skoti
113-115 og Snæfell fékk leikhlé þegar 1.8 sek voru eftir sem nýttist
þeim ekki þegar Gunnar Stefáns komst inn í sendinguna af innkastinu og
góður sigur Keflavíkur 113-115.
Stigahæstir voru hjá
Snæfelli, Hafþór Gunnars 23 stig sjóðandi á þristunum með 5 slíka á
ögursrundum og Quincy Cole 23/12 frák/4 stoðs. Jón Ólafur 22/5 frák/4
stoðs. Marquis Hall 20/5 frák/9 stoðs. Pálmi 14 stig.
Hjá
Keflavík var Steven Gerard í stuði með 36/4 frák/5 stoðs. Parker var
gríðalega heitur og fékk að skora að vild með 32/12 frák. Jarryd Cole
23/10 frák. Einhverra hluta vegna var Halldór Halldórsson ekki á
stattinu og má taka einhverjar tölur þar með fyrirvara en hann var
allavega með 4 þrista og í allt 14 stig+.
Jónas Kristjánsson hefur áratugum saman skrásett þjóðleiðir á Íslandi og birtist afraksturinn í einstakri bók.
Í bókinni er yfir 1.000 reið- og gönguleiðum lýst og þær sýndar á vönduðum kortum. Stafrænn diskur sem gerir kleift að hlaða leiðunum inn í GPS-tæki fylgir.
KJÖRGRIPUR FYRIR ALLA ÚTIVISTAR OG HESTAMENN SEM FERÐAST UM LANDIÐ.
PANTANIR:
Sendið pantanir á tölvupósti: lhhestar@sogurutgafa.is (tilgreinið nafn, heimilisfang, símanúmer, fjölda eintaka og greiðslumáta (bankamillifærsla eða kreditkort). Eða hringið í síma 557 3100.
Haukar unnu frekar auðveldan 80-55
sigur á liði Snæfells í kvöld þegar liðin mættust í Schenkerhöllinni í
Hafnarfirði. Haukar hafa verið á miklu skriði undan farið og unnið
síðustu fjóra leiki sína og með sigrinum í kvöld fara
Hafnarfjarðarstúlkur upp í þriðja sæti IE-deildarinnar.
Snæfellstúlkur voru hreinlega ekki
mættar á svæðið í upphafi leiks og nýttu Haukar sér það. Rauðar fengu
auðveld skot og þurftu ekki að hafa mikið fyrir hlutunum í vörninni.
Íris Sverrisdóttir kom Haukum strax í 6-0 með tveimur þriggja stiga
körfum og í stöðunni 12-0 tók Ingi Þór, þjálfari Snæfells leikhlé. Eftir
leikhléið tóku Snæfellsstúlkur sig örlítið saman í andlitinu og þá
sérstaklega í vörninni. Gestirnir náðu að takmarka skaðan og leiddu
Hauka með 12 stiga muninum sem þær náðu í upphafi þegar leikhluanum
lauk. Staðan 26-14 eftir fyrsta leikhlua
Það var
það sama uppi á teningnum í öðrum leikhluta og var í þeim fyrsta. Haukar
héldu áfram að fá opin skot sem þær nýttu vel og voru komnar með
glimrandi nýtingu fyrir utan þriggja stiga línuna í hálfleik. Fátt gekk
upp hjá Snæfellsstúlkum og voru tíðar ferðir á vítalínuna í raun þeirra
líflína. Haukar kláruðu fyrri hálfleik með 16 stiga mun, 46-30, og fátt
sem að benti til þess að Snæfell myndi ógna mun þeirra á nokkurn hátt.
Haukar
leyfðu sér að prufa nýja hluti í vörninni í seinni hálfleik þar sem að
þær skiptu yfir í maður á mann svæðisvörn. Munurinn hélst sá sami í raun
út leikhlutann í ljósi þess að örfáar körfur litu dagsins ljós í
leikhlutanum. Snæfell spilaði þó mun betur en þær höfðu gert framan af
og enduðu leikhlutann með jafn mörg skoruð stig og Haukar eða átta
talsins.
Haukar bættu í í loka leikhlutanum og
náðu að keyra muninn upp í 27 stig. Snæfell kom aðeins til baka og
minnkaði muninn niður í 21 stig. Hildur Sigurðardóttir sem jafnan er
illviðráðanleg fann sig engan veginn í leiknum og munar um minna fyrir
Snæfellsliðið. Hildur skoraði sín fyrstu stig í fjórða leikhluta og fór á
endanum útaf með 5 villur. Haukar unnu að lokum verðskuldaðan sigur þar
sem varnarleikur þeirra sem og góð hittni skóp sigurinn. Leiknum endaði
með 25 stiga sigri Hauka 80-55.
Jence Rhoads var
með flotta tvennu þegar hún gerði 20 stig og gaf 10 stoðsendingar og
Íris Sverrisdóttir kom henna næst með 19 stig og 9 fráköst.
Hjá
Snæfelli var Kieraah Marlow einnig með myndarlega tvennu en hún skoraði
21 stig og tók 17 fráköst og Hildur Björg Kjartansdóttir var með 17
stig og 11 fráköst.
Laugardaginn 19. nóvember héldu krakkarnir í Minnibolta 11 ára frá Víking/Reyni í langt ferðalag til Ísafjarðar þar sem þau tóku þátt í keppni á Íslandsmóti D-riðils þar sem þau kepptu við lið KFÍ og Njarðvík B en lið Fjölnis átti líka að vera á mótinu en forfölluðust, þar með vorum við kominn strax með einn sigurleik.
Eftir langa bílferð og bátsferð með Baldri var komið á Ísafjörð og fyrsti leikur var gegn liði Njarðvíkur B. En Njarðvík sá aldrei til sólar í þeim leik og Víkingur/Reynir sigruðu leikinn mjög örugglega 60-19.
Þar sem KFÍ vann einnig lið Njarðvíkur B, þá var seinni leikur dagsins úrslitaleikur um hvort liðið sigruðu riðilinn og kæmust þar með upp í C-riðil.
Leikurinn byrjaði mjög jafnt og KFÍ voru yfir 12-8 eftir 1.leikhluta, einnig var 2.leikhluti mjög jafn en okkar krakkar komust reyndar yfir og voru yfir í hálfleik 18-25.
En eftir það þá sigldi Víkingur/Reynir fram úr og hreinlega völtuðu yfir KFÍ í næstu tveimur leikhlutum sem endaði með því að Víkingur/Reynir fór með sigur af hólmi 27-59 frábær sigur!
Með því þá komst Víkingur/Reynir upp úr D-riðli í C-riðil þar sem þeir munu leika þegar næsta mót fer fram, frábær árangur hjá þessum krökkum sem hafa þar með farið upp um tvo riðla á tveimur mótum.
Var fagnað vel í lok leiks áður en haldið var á veitingastað þar sem fengið var sér að borða áður en haldið var heim. Frábær ferð sem heppnaðist vel og vill undirritaður þakka krökkunum og bílstjórum kærlega fyrir ferðina.
Sama dag fór svo fram leikur hjá Mfl. Víkings Ólafsvíkur í kennaraháskólanum í Rvk gegn liði Smára frá Varmahlíð. Leikurinn byrjaði jafn og í lok 1.leikhluta var staðan 17-19 Víking í vil, en svo átti Víkingur betri kafla í 2. leikhluta þar sem þeir skoruðu 26 gegn 18 frá Smára og voru því yfir í hálfleik 35-45.
En Smáramenn gáfust ekki upp og leikurinn var jafn seinustu tvo leikhlutanna en Víkings-menn náðu þó alltaf að halda í forystuna og leikurinn endaði með sigri Víkings 76-86.
Næsti leikur hjá Víkingi Ólafsvík er svo heimaleikur næstkomandi laugardag 26.nóvember gegn liði ÍBV, allir á völlinn!
Víkingar báru í dag sigurorð af KB í fyrsta leik futsal-keppnistímabilsins 3-9. Leikið var í Kórnum Kópavogi þar sem KB-menn leika heimaleiki sína í riðlinum. Staðan í hálfleik var 2-4 Víkingum í vil þar sem Steinar Már Ragnarsson, Guðmundur Steinn Hafsteinsson og Tomasz Luba skoruðu sitt markið hvor auk þess sem KB-menn urðu fyrir því óláni að skora sjálfsmark.
Víkingar komu ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og sáu Guðmundur Magnússon, Fannar Hilmarsson, Ragnar Smári Guðmundsson, Ólafur Hlynur Illugason og Heimir Þór Ásgeirsson um að bæta við fimm mörkum. Staðan var því 9-2 allt þar til í lokin þegar KB-menn minnkuðu muninn og þar við sat. Frammistaða liðsins í heild var góð, Einar var að vanda öruggur í markinu auk þess sem Ejub var duglegur að rótera útispilurunum.
Víkingar fara vel af stað og ljóst að þeir ætla fylgja eftir góðum árangri frá síðustu keppni þar sem liðið hafnaði í öðru sæti. Næsti leikur verður háður í Ólafsvík þar sem Víkingar fá Aftureldingu/Hvíta Riddarann í heimsókn þann 30. nóvember.
Þorsteinn Már Ragnarsson,
framherji Víkings frá Ólafsvík, er á leið í raðir KR samkvæmt heimildum
Fótbolta.net.
Í síðustu viku lýsti Þorsteinn því yfir að stefnan væri að spila í
Pepsi-deildinni og eftir það virtist valið standa á milli KR og
Stjörnunnar.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefur Þorsteinn ákveðið að velja KR og eru samningaviðræður við félagið langt á veg komnar.
Þorsteinn hefur mikla reynslu þrátt fyrir ungan aldur en
hann hefur verið í lykilhlutverki hjá Víkingi Ólafsvík undanfarin ár.
Hann byrjaði að leika með meistaraflokki félagsins 2007 og lék það sumar
15 leiki í 1. deild.
Hann á um 90 leiki að baki fyrir Ólafsvíkurliðið en í sumar spilaði
hann 18 leiki í 1. deildinni og skoraði sex mörk. Undir lok tímabilsins
fór hann síðan til Raufoss í Noregi á láni í nokkrar vikur.
Víkingur og Valur hafa komist að samkomulagi um skipti á leikmönnunum Brynjari Kristmundssyni og Guðmundi Stein Hafsteinssyni. Guðmundur Steinn Hafsteinsson hefur gert tveggja ára samning við Víking en hann spilaði 21 leik og skoraði 7 mörk á liðnu keppnistímabili.
Stjórn knd. Víkings þakkar Brynjari Kristmundssyni fyrir hans framlag til félagsins en þrátt fyrir ungan aldur hefur Brynjar spilað yfir 100 leiki með Víking.
Guðmundur Steinn í leik gegn Þrótturum í sumar (Mynd: Þröstur Alberts)
Umfjöllun: Stólarnir gáfu Kára sigur í afmælisgjöf
Boðið upp á hörkuleik í Síkinu í
kvöld sem endaði eins og allir leikir eiga enda, með sigri Tindastóls.
Eftir leikinn tóku svo allir leikmenn og áhorfendur lagið og sungu
afmælissönginn fyrir Kára Marísson sem er, ótrúlegt en satt, sextugur í
dag!
Leikurinn var þrælskemmtilegur alveg
frá byrjun til enda eins og oft vill verða þegar Tindastóll vinnur en
Tindastólsliðið leiddi leikinn meira og minna allan tímann með nokkrum
stigum og stóðu uppi sem verðskuldaðir sigurvegarar.
Strákarnir
byrjuðu ágætilega, Helgi Rafn tók að sér að klára fyrstu sóknirnar í
leiknum en stigaskorið var vel dreift og allir strákarnir voru að leggja
nokkur lóð á vogarskálina. Eins og áður sagði voru það
Tindastólsstrákarnir sem sáu um leiða leikinn en Snæfellingar að elta.
Nonni Mæju var einna erfiðastur í liði Snæfellinga en Nonni er með fulla
vasa af körfuboltatöfrabrögðum sem hann nýtti óspart í fjórða
leikhlutanum. Það var svona helsta ástæðan fyrir því að eltingarleikur
Snæfellinga virtist ætla að takast þegar Snæfellingar komust yfir í
næstum því fyrsta skipti í leiknum þegar ein mínúta og 46 sekúndur voru
eftir, 78-79.
En Tindastólsstrákarnir voru ekkert á
því að fara á taugum, Svavar Birgis setti þrist í næstu sókn og kom
okkur yfir 81-79 og eltingarleikurinn hófst á ný en í þetta skiptið voru
vígstöðvarnar færðar yfir á vítalínu Snæfellinga. Svavar Birgis eða
Svavar svellkaldi setti niður þrjú af fjórum og Moe setti síðan bæði sín
niður þegar 10 sekúndur voru eftir sem komu okkur í 86-83. Síðasta sókn
Snæfellinga endaði á vítalínunni þegar 4.6 sekúndur voru eftir og
Marquis Hall hjá Snæfell skoraði úr fyrra en klúðraði seinna. Tindastóll
náði frákastinu og ,,game over" - 86-84.
Flott
frammistaða hjá Tindastól í leik sem verður kannski ekki flokkaður sem
mikilvægasti leikur í sögu körfuboltans í Skagafirði en engu að síður
virkilega gott fyrir strákana að fá smá sigurtilfinningu í magann. Það
er vel að merkja framför hjá strákunum og virkilega gaman að sjá að menn
eru komnir með almennilegt blóð á tennurnar í varnarleiknum.
Eins
og áður sagði þá var sigurinn tileinkaður Kára Marísson, frumkvöðul og
körfuboltarisa hérna í Skagafirði. Það var kannski vel við hæfi að
leikurinn vannst á vítalínunni en Kári hefur ekki klúðrað mörgum vítum á
ævinni, hvorki á æfingu eða leik. Sagan segir meira segja að Kári hafi
bara brennt af tveimur vítum, einu sinni í leik í barnaskólasalnum á
móti Ungmennafélagi Hrunamanna og einu sinni á æfingu árið 1993 en við
seljum það ekki dýrara en við keyptum það.
Við óskum Kára að sjálfsögðu með afmælið þótt að við trúum því náttúrulega engan veginn að kappinn sé orðið sextugur.
Snæfell tapaði naumt gegn Tindastóli sem hafði forystu mest allann
leikinn Leikar fóru 86-84 fyrir Stólunum og ljóst að um
hreinann úrslitaleik í Lengjubikarnum verður að ræða þegar Stjarnan
mætir í Hólminn sunnudaginn 27. nóvember n.k. Snæfell og Stjarnan eru
bæði með 4 stig en Snæfell ekki með nema +1 stig innbyrðis við Stjörnuna
og verður um hörkuleik að ræða sem sker úr um hvort liðið tekru efsta
sætið og fer í undanúrslitin.
Snæfellsstúlkur tóku á móti Val í Iceland express deild kvenna í
Stykkishólmi. Valur í 7. Sæti með 4 stig en Snæfell 5. Sæti með 6 stig
og lítill munur á milli liða á þessum slóðum. Þess má geta að þetta var
1000. leikur sem Einar Þór Skarphéðinsson dæmir.
Valur: Þórunn, Unnur Lára, Melissa, Kristrún, María Ben.
Leikurinn
fór varlega af stað og liðin stilltu vel upp og fóru sér engu óðslega.
Snæfell komst strax í 7-3 með þrist frá Öldu Leif sem stal svo bolta í
næstu sókn. Valsstúlkur hertu heldur betur á vörninni og náðu góðum
stoppum á Snæfell sem skilaði þeim minnkandi mun 9-8. Snæfell aftur á
móti lét það ekki trufla sig og keyrðu hratt á Val sem skilaði þeim 9-1
kafla og staðan fljótt orðin 18-9 og Hildur Sigurðardóttir var líkt á
frjálsíþróttamóti í hlaupunum. Valsstúlkur fóru að hitta illa í sóknum
sínum og voru með slaka nýtingu. Staðan eftir fyrsta hluta 27-17 fyrir
Snæfell.
Snæfell byrjaði af gríðalegum krafti 12-0 þar sem
Sara Mjöll var í hörkustuði með 9 stig í upphafi. Valsstúlkur misstu
allann varnaleik frá sér og voru seinar að loka á þær á meðan allt gekk
upp Snæfellsmegin. Alda Leif kom Snæfelli með stórum þrist í 42-17 og
Valur ekkert búnar að skora í öðrum hluta þegar staðan var 46-17 fyrir
Snæfell og annað leikhlé Vals tekið eftir fjögra mínútna leik. 23-0 varð
kafli Snæfell áður en karfa kom frá Guðbjörgu Sverrisdóttur og gestum.
Snæfell valtaði yfir Val í öðrum hluta 31-8 og staðan í hálfleik 58-25.
Atkvæðahæstar
í hálfleik liði Snæfells voru Hildur Sig með 15 stig og 9 fráköst,
Kieraah Marlow og Alda Leif með 13 stig hvor og Alda 3/3 í þristum. Sara
Mjöll kom svo með 9 stig. Hjá Val var Kristrún Sigrjónsdóttir með 9
stig og Guðbjörg Sverrisdóttir 8 stig. Tveggja stiga skotnýtingin var
63% hjá Snæfelli gegn 20% hjá Val.
Fyrstu tvö stig
Melissu Leichlitner komu í upphafi þriðja hluta og auðvitað vantaði
meira framælag frá henni líkt og öðrum. Snæfell voru þó alltaf í
einhverjum gæðaflokkum fyrir ofan Val og 40 stig skildu liðin af um
miðjann þriðja fjórðung 73-33. Valur náði þó að minnka muninn um 10
stig með góðri stemmingu en Guðbjörg Sverrisdóttir og María Ben létu til
sín taka og staðan 75-45 fyrir Snæfell og Valur barðist við að reyna að
komast inn í leikinn. Staðan eftir þriðja hluta 79-47 fyrir
heimastúlkur en leikhlutinn 20-22 fyrir Val.
Lítið
breyttist í fjórða hluta í leiknum. Valur réði lítið við Kieraah hjá
Snæfelli sem var komin með 31 stig og engin sem gat stoppað hana í
teignum þar sem hún var auk þess komin með 14 fráköst. Það var Alda Leif
sem rauf 100 stiga múrinn fyrir Snæfell með þrist en það er ekki oft
eða aldrei sem Snæfell hefur sett 100 + á töfluna leyfi ég mér að
fullyrða. Leikurinn endaði 102-73 í fyrirhafnalitlum sigri Snæfells.
Punktar eftir leikinn: Snæfell skorar 102 stig í leiknum gegn 73 Vals Valur hafði 20-0 innbyrðis en Snæfell rétti það við um 9+. Snæfell var með helmingi hærri framlagsstig 120/60 eftir leikinn.
Umfjöllun: Alda Leif stigahæst í sigri Snæfells á Fjölni
Fjölnisstúlkur mættu í Hólminn
verandi í 6. sæti með 4 stig en Snæfell í neðsta sæti en einnig með 4
stig. Það var því mikið í húfi fyrir bæði lið að fá stig í þessari súpu
sem er þarna í 4. - 8. sæti deildarinnar.
Fjölnir: Brittney, Katina, Birna, Erla Sif, Eva María.
Snæfell
byrjaði á fínum spretti og komust í 10 -2 með þristum frá ÖlduLeif og
Helgu Hjördísi áður en Fjölnir tók tíma í spjall þar sem sóknir þeirra
runnu mikið í hendur Snæfells bæði í fráköstum og töpuðum boltum.
Fjölnisstúlkur voru hittu illa þrát fyrir ágætis færi og þegar tvær
mínútur voru eftir höfðu þær einungis skorað 6 stig gegn 21 Snæfells og
hefur sést meiri ákveðni úr Grafarvoginum. Staðan eftir fyrstu lotu var
21-12 fyrir Snæfell.
Snæfell hélt Fjölni tíu
stigum á eftir sér framan af öðrum hluta en liðin skiptust á að skora þó
Snæfell hefði forskot á flestum sviðum leiksins. Alda Leif smellti
einni stórri úr 33-19 í stöðuna 36-19 og Snæfell var að auka forskotið
rétt fyrir hálfleiksflautið og kitluðu 20 stiga muninn 44-24 þegar
mínúta var eftir, en Fjölnir kom með 5 stig strax í kjölfarið 44-29
eiturhressar. Hálfleikstölur voru 46-29.
Atkvæðamestar
í Snæfelli voru Alda Leif með 17 stig og var gríðalega öflug í leiknum
en næst henni kom Kieraah með 11 stig og 5 fráköst. Flestir leikmenn
voru þó sprækir og gáfu fínt framlag. Hjá Fjölni var Brittney komin með
14 stig og var líkt og ein á vellinum á köflum en næst henni var Eva
María með 6 stig. Katina Mandylaris var komin með 4 stig og 4 fráköst en
vermdi tréverkið þar sem henni áskotnuðust 3 villur snemma í leiknum.
Fjölni
gekk lítið að komast inn í leikinn en Snæfell hafði leikinn auðveldlega
í höndum sér. Brittney Jones reyndi hvað hún gat en var komin með 4
ofaní í tveggja stiga körfum af 18 reyndum. Á meðan var Alda Leif að
fara á kostum í liði Snæfells og setti nánast allt ofan í sem hún
reyndi. Staðan eftir þriðju lotu var 62-42.
Fjölnir
áttu flott áhlaup strax í fjórða hluta og minnkuðu muninn um 11 stig úr
67-44 í 67-55 þar sem þær náðu fráköstum og keyrðu leikinn alveg á
fullt með Brittney og Katina fremstar í skori. Snæfell klúðraði hverju
skotinu á fætur öðru og létu ýta sér algjörlega út úr þeim þægilega leik
sem þær að minnsta kosti héldu að þær hefðu í hendi sér. Never say
never sagði Bieber og það gerðu Fjölnisstúlkur líka þegar þær höfðu
minnkað muninn í 6 stig 67-61 með glæsilegur sprettkafla og svo setti
Brittney þrist fyrir Fjölni í 69-66 og 1:36 eftir áður en Snæfell tók
leikhlé.
Brittney var komin með 37 stig og hún og
Katina virtust vera þær einu á vellinum sem gætu skorað. Leiknum lauk þó
með sigri Snæfells 73-68.
Brittney Jones skoraði 14 í fyrri hálfleik en 23 í þeim seinni.
Þar af komu 17 stig frá henni í fjórða hluta
Katina skorarði 7 af 10 stigum seinni hálfleiksstigum sínum í fjórða hluta.
Snæfell hafði tekið 10 fleiri fráköst í fyrri hálfleik en Fjölnir náði
því í 39/36 aðallega í fjórða hluta þar sem þær áttu flest öll fráköst á
vellinum.
Alda Leif spilaði flottan leik fyrir Snæfell með
75% nýtingu í tvistum, 57% í þristum 4/7 og 100% 6/6 í vítum ásamt því
að spila hörkuvörn.
Snæfell skaust upp í 5. Sætið og skildi Fjölni eftir á botninum, en staðan gríðalega jöfn frá 4 .- 8. sæti.
3. Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á liðnu starfsári.
4. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram.
5. Umræður og atkvæðagreiðslur um skýrslu stjórnar og ársreikninga.
6. Framkomnar tillögur og fjárhagsáætlun.
7. Kosning formanns
8 Kosning ritara / gjaldkera
9. Kosning og /eða tilnefning í aðrar nefndir, sbr. 8.grein.
10. Kosnir 2 endurskoðendur og einn til vara.
11. Önnur mál.
Reglugerðabreyting lögð fyrir aðalfund.
Breyting á 6.grein.
6.grein
Stjórn klúbbsins skipa: Formaður, ritari, gjaldkeri
og formenn nefnda annarra en skemmtinefndar og kvennanefndar samanber grein 8 Skulu
formaður, ritari og gjaldkeri kosnir skriflega á aðalfundi. Formaður
til eins árs í senn en ritari og gjaldkeri til tveggja ára í senn.
Stjórnarmenn má endurkjósa gefi þeir kost á sér.
Tveim vikum fyrir aðalfund skal stjórn skipa 3 manna kjörnefnd. Einn
nefndarmanna skal vera í stjórn. Kjörnefnd skal leita eftir framboðum til embætta sem kjósa skal í og sjá til þess að a.m.k.
einn frambjóðandi sé til hvers þeirra. Stjórnin getur jafnframt falið
kjörnefnd að leita eftir framboðum eða tillögum um skipan nefnda, sbr.
8.grein. Komi
fram fleira en eitt framboð, fyrir eða á aðalfundi, um formennsku í
nefndir skal kosið í þá nefnd á aðalfundi samhliða kosningu stjórnar.
Stjarnan hefndi fyrir ófarir liðsins í
Lengjubikarnum með eins stig sigri á Snæfell í Iceland Express deild
karla í Garðabænum í kvöld. Stjarnan náði myndarlegu forskoti í upphafi
leiks en Snæfell kom til baka í öðrum leikhluta og leikurinn var í
járnum það sem eftir var. Snæfell átti seinustu sókn leiksins, einu
stigi undir, en tókst ekki að nýta sér tækifærið og fóru því tómhentir
heim. Með sigrinum eru Garðbæingar einir í 2. sæti deildarinnar með 10
stig.
Stigahæstur í liði Stjörnunnar var
Keith Cothran með 34 stig en næstir voru Marvin Valdimarsson með 24 stig
og 10 fráköst og Fannar Helgason með 13 stig og 8 fráköst. Í liði
Snæfells var Jón Ólafur Jónsson stigahæstur með 23 stig en næstir voru
Quincy Hankins-Cole með 16 stig og 12 fráköst og Pálmi Sigurgeirsson með
14 stig og 7 stoðsendingar.
Leikurinn byrjaði
nokkuð jafn og liðin skiptust á að skora fyrstu mínúturnar. Stjarnan
hafði þó frumkvæðið og þegar leið á leikhlutan tókst þeim hægt og rólega
að stíga framúr. Sóknarleikur heimamann var til fyrirmyndar og tókst
þeim að skora 35 stig af öllum kúnstarinnar gerðum áður en fyrsti
leikhluti var flautaður af. Þá höfðu Þeir náð 10 stiga forskoti á
Snæfell, 35-25.
Stjarnan hélt uppteknum hætti í
upphafi annars leikhlut og höfðu náð forskotinu upp í 16 stig, 44-28. Þá
virtust Snæfellingar vakna til lífsins og á á stuttum tíma náðu þeir
muninum niður í 9 stig, 47-38, en þá tók Teitur Örlygsson leikhlé fyrir
Stjörnuna. Hægt og rólega hélt munurinn þó áfram að minnka og þegar um
tvær mínútur voru eftir af fyrri hálfleik var hann kominn niður í 4
stig, 52-48. Snæfellingar höfðu getað gert enn betur en fengu dæmdan á
sig ruðngin tvær sóknir í röð undir lok leikhlutans á meðan ekkert gekk í
sóknarleik Stjörnunnar. Snæfell tókst þó að komast yfir áður en flautað
var til hálfleiks því þeir settu eldsnögg 8 stig á lokamínútnni og
höfðu því 4 stiga forskot þegar flautað var til hálfleiks, 52-56.
Stigahæstur
í hálfleik hjá Snæfell var Jón Ólafur Jónsson með 16 stig og 5 fráköst
en næstir voru Quincy Hankins-Cole með 13 stig og Marquis Sheldon Hall
með 9 stig, 4 fráköst og 4 stoðsendingar. Hjá Stjörnunni var Marvin
Valdimarsson stigahæstur með 20 stig og 6 fráköst en næstir voru Keith
Cothran með 18 stig og Justin Shouse með 5 stig.
Snæfell
tókst þó aldrei að stinga Stjörnuna af í þriðja leikhluta og Stjarnan
var fljót að vinna sig aftur inní leikinn. Þegar leikhlutinn var að
verða hálfnaður kom Keith Cothran Stjörnunni aftur yfir með
stórglæsilegri troðslu eftir sendingu frá Justin shouse nokkuð fyrir
utan þriggja stiga línuna, 65-63. Snæfell svaraði í næstu sókn áður en
Ingi Þór tók leikhlé fyrir Snæfell, 65-65 og 5 mínútur eftir af þriðja
leikhluta.
Jón Ólafur Jónsson, Ólafur
Torfason,Snæfell, og Fannar Helguson, Stjörnunni, fengu allir sína
fjórðu villu á síðustu þremur mínútum þriðja leikhluta en bæði Fannar og
Jón Ólafur fengu að sitja það sem eftir lifði leikhlutans á bekknum.
Þegar flautað var til loka þriðja leikhluta hafði Stjarnan 2 stiga
forskot, 74-72.
Jón Ólafur Jónsson fékk sína
fimmtu villu snemma í fjórða leikhluta og var því sendur í bað. Stjarnan
hafði þá frumkvæðið í leiknum og leiddu með 2-4 stigum. Þegar fjórar
mínútur voru eftir af leiknum höfðu þeir yfir, 83-81. Tveimur mínútum
síðar var jafnt á öllum tölum, 86-86 og spennan farin að magnast. Ingi
Þór tók leikhlé fyrir Snæfell stuttu seinna í stöðunni 88-86. Stjarnan
hafði svo 1 stigs forskot 90-89 þegar Snæfell fór í síðustu sókn
leiksins. Snæfell reyndi háan bolta inná Marquis Sheldon Hall en Marvin
komst inní sendinguna og Stjarnan fagnaði því vel í leikslok.