|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
Færslur: 2011 Maí09.05.2011 21:38Ráðstefna um meðferð hrossaAlþjóðlega NJF-ráðstefnan "Housing and management of horses in Nordic and Baltic climate" verður haldin á Hótel Loftleiðum dagana 6. og 7. júní nk.
http://www.njf.nu/site/seminarRedirect.asp?p=1004&intSeminarID=437&strSemInfoType=pro Á ráðstefnunni munu margir þekktir sérfræðingar í húsvist og aðbúnaði hrossa halda erindi. Aðalfyrirlesarar eru: dr. Eileen Fabian Wheeler (Háskólanum í Pennsylvaníu, Bandaríkjunum - margir þekkja hana sem höfund bóka um hönnun hesthúsa), dr. Eva Søndergaard (Agro Food Park, Danmörku), dr. Knut Bøe (Náttúruvísindaháskólanum í Noregi) og dr. Michael Ventorp (Landbúnaðarháskólanum í Svíþjóð). Auk þess eru fjölmargir aðrir fyrirlesarar, m.a. helstu sérfræðingar Íslands á sviði atferlis og aðbúnaðar hrossa. 03.05.2011 15:01Uppskeruhátíð reiðnámskeiðs SnæfellingsReiðnámskeið03.05.2011 15:00Nonni Mæju í úrvalslið Iceland express![]() Mynd: Þorsteinn Eyþórsson Það kemur okkur kannski ekki á óvart að Nonni "okkar" Mæju var í úrvalsliði Iceland express deildarinnar fyrir síðasta tímabil. Þetta var allt gert upp á lokahófi Kkí sem fram fór á laugardagskvöldið sl.
Nánar má sjá hverjir fengu verðlaun og myndir inni á Karfan.is frá loka og 50 ára afmælishófi Kkí.
03.05.2011 11:46Undirskriftir hjá SnæfellUndirskriftir í körfunni.
Kkd Snæfells hefur haft þann háttin á að leikmenn sem verða með meistaraflokkum karla og kvenna fyrir hvert tímabil skrifi undir með smá viðhöfn eftir því hvernig stendur á hjá hverjum og einum. Í dag var enginn undantekning þegar nokkrir leikmenn staðfestu veru sína með Snæfelli næsta vetur.
Rúsínan í pylsuendanum var svo þegar að Ingi Þór þjálfari skrifaði undir tveggja ára framlengingu á samning sínum við þetta eina ár sem hann átti eftir og höfum við fest okkur þennan frábæra dreng til vorsins 2014. Þetta á vel við í dag þar sem nákvæmlega eitt ár er liðið frá því fyrsti íslandmeistaratitillinn fór til Snæfells.
![]()
Þeir leikmenn sem skrifuðu undir og verða áfram hjá okkur eru:
Mfl. Kvenna: Björg Guðrún Einarsdóttir, Berglind Gunnarsdóttir, Ellen Alfa Högnadóttir og Helga Hjördís Björgvinsdóttir.
![]()
Mfl. Karla: Egill Egilsson og Snjólfur Björnsson.
![]()
Við fögnum áframhaldandi veru þessara leikmanna og fylgja fleiri í kjölfarið von bráðar en við smölum okkur saman þegar að því kemur. Áfram Snæfell.
![]()
![]()
![]() 02.05.2011 15:08Tap hjá UMFG á móti ElliðaVið steinlágum gegn Elliða í bikarnum í dag 5-2 Petja og Runni með okkar mörk. Byrjunarliðið var svona: Viktor í marki Jón Steinar hægri bak Jón Haukur vinstri bak Ingi Björn, Finnbogi og Aron miðverðir Ragnar Smári, Anton og Petja á miðjunni Runni og Tryggvi frammi Sindri, Tommi, Hinni og Semek á bekknum. Byrjuðum
ágætlega og komumst í 1-0 þegar Petja settann úr aukaspyrnu. En eftir
það var okkur ekki viðbjargandi. Fengum á okkur 4 mörk áður en Runni
náði að laga stöðuna í 4-2 og Elliði átti síðasta markið og 5-2 tap
staðreynd. Þetta var frekar dapurt hjá okkur verður að segjast og
ýmislegt sem þarf að laga áður en mótið byrjar. ![]() Á meðan allt lék í lyndi. |
Eldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 96 Gestir í dag: 32 Flettingar í gær: 1079 Gestir í gær: 143 Samtals flettingar: 902990 Samtals gestir: 96633 Tölur uppfærðar: 19.5.2012 05:24:29 |