FH varð í öðru sæti eftir jafna keppni við ÍR, með 470 stig og lið
HSK/Selfoss í 3. sæti 352 stig.
stigahæst í fjórum aldursflokkum á mótinu af átta, ÍR í tveimur, en
Skagfirðingar og HSK/Selfoss í sitthvorum aldurshópnum.
|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
Færslur: 2011 Mars03.03.2011 17:57Vel heppnað firmamót VíkingsFirmakeppni Víkings
Meistaraflokkur Víkings stóð fyrir firmakeppni í knattspyrnu laugardaginn 26. febrúar, mótið sem er fjáröflun fyrir meistaraflokk fór fram í Íþróttahúsi Snæfellsbæjar og mun þetta vera í tíunda sinn sem Víkingur stendur fyrir firmakeppni sem þessari. Aldrei hafa fleiri lið tekið þátt, í ár voru liðin 13 talsins og keppendur samtals 120. Kvenfólkið lét ekki sitt eftir liggja og voru þrjú kvennalið skráð til keppni. Kvennaliðið úr Grundarfirði vann kvennakeppnina með því að vinna báða leiki sína 2-0 og sýndu þar með hvað reynslan vegur þungt í boltanum. Í karlakeppninni vann lið Fiskiðjunnar Bylgju, Ragnar og Ásgeir 3-2 í úrslitaleik, en lið Deloitte og Fiskmarkaðar Íslands voru í 3. - 4. sæti. Liðin voru misjafnlega vel á sig komin líkamlega og sum liðin vógu það upp með því að vera með þeim mun fleiri varamenn, önnur lið munstruðu til sín meistaraflokksmenn í knattspyrnu en í flestum tilfellum voru starfsmenn fyrirtækjanna bara svona góðir. Það var ekki bara mikill fjöldi þátttakenda í mótinu því að áhorfendur voru líka mjög fjölmennir og hvöttu liðin ákaft áfram. frétt úr jökli jó 03.03.2011 17:55Víkingur vann HK í lengjubikarnumLengjubikarinn Síðastliðinn sunnudag lék Víkingur gegn HK í Lengjubikarnum. Leikurinn fór fram í Fífunni. Þar sem undirritaður var ekki staddur á leiknum verður hann að styðjast við upplýsingar frá öðrum, einum frá hvoru félagi! Þeim ber saman um að leikurinn hafi verið lítil skemmtun, fá marktækifæri. Eina færi HK manna kom um miðjan fyrri hálfleik, en þá björguðu Víkingar á marklínu. Víkingar voru líklegri til að taka öll stigin og áttu nokkrar þokkalegar sóknir, lungan úr leiknum, en sigurmarkið kom ekki fyrr en í uppbótartíma, þ.e. eftir 90 mín., en þá skoraði Þorsteinn Már. Hann fékk góða sendingu frá Alfreð Má innfyrir vörn HK, Þorsteinn nýtti sér hraða sinn, lék á markvörðinn og eftirleikurinn auðveldur. 1-0 og þannig endaði leikurinn. Strákarnir hafa greinilega tekið með sér reynsluna frá leiknum við Val og fundið hversu miklu skemmtilegra er að sigra í leikjum en tapa! Liðið er greinilega á réttri leið fyrir sumarið. Áfram Víkingur. frétt úr jökli óhs
03.03.2011 17:48Gunnar Sturlu í stjórn FEIFGunnar Sturluson í stjórn FEIFFEIF. INTERNATIONAL FEDERATION OF ICELANDIC HORSE ASSOCIATIONS![]() Gunnar Sturluson, lögfræðingur og hrossabóndi á Hrísdal á Snæfellsnesi, var kjörinn í stjórn FEIF á aðalfundi samtakanna, sem haldinn var í Sviss um helgina. Gunnar er einnig varaformaður Landssambands Hestamannafélaga. Jón Albert Sigurbjörnsson, sem hafði setið í stjórn um nokkurra ára skeið, gaf ekki kost á sér, né heldur Wolfgang Berg, Þýskalandi. Ekki kemur fram á vef FEIF hvaða hlutverki Gunnar gegnir í stjórninni.03.03.2011 17:46Hestadagar í Reykjavík
03.03.2011 17:32Snæfell með 10 lið á Nettómótinu![]() Nettómótið fer fram 5-6 mars n.k og verða í ár 55 krakkar sem taka þátt í 10 liðum sem Snæfell sendir á mótið. Það er heilmikil dagskrá á mótinu og bíða krakkarnir með eftirvæntingu eftir þessu móti. Á mótinu er leikið um allan Reykjanesbæ, farið í sund, bíó, leikjahöllin verður á sínum stað og síðan eru pizzuveisla, kvöldvaka og allur pakkinn á flottasta móti ársins fyrir krakka 6-11 ára. Þeir foreldrar sem ekki hafa fengið bækling um mótið geta nálgast hann útí íþróttahúsi. 03.03.2011 17:30Tap gegn HaukumNaumt tap í Hafnarfirði.
![]()
Davíð og Snjólfur settu tvo þrista í
röð á Hauka og komu liðinu yfir 30-32, aftur náðu Haukar yfirhöndinni
35-32. Haukar voru við það að ná yfirhöndinni í lok fyrri hálfleiks en
þristur frá Birgi Þór Sverris, glæsilegt gegnumbrot hjá Hlyn Hreins og
góð karfa með skoti fyrir utan teig hjá Davíð Guðmunds jöfnuðu leikinn
ávallt og staðan 39-39. Í lokasókninni smellti Kristján Pétur Andrésson
þrist og opnaði hann því og lokaði fyrri hálfleik með þrist. Staðan í
hálfleik 39-42 fyrir Snæfell/Skallagrím sem börðust gríðarlega vel. Þegar um 2:30 voru eftir tóku
Snæfell/Skallagrímur sitt síðasta leikhlé og hófu að pressa af miklum
krafti. Egill Egils skoraði 11 stig á þessum tíma en Haukar voru mjög
klaufalegir á þessum kafla. Örn Sigurðarson fékk sig tæknivíti í
stöðunni 85-80 og innan við mínúta eftir. Egill setti bæði vítaskot sín
niður og staðan 85-82. Í lokasókn Snæfell/Skallagríms fannst gestunum
brotið á Agli í þriggja en hann náði að senda á Kristján þrátt fyrir að
vera ekki í jafnvægi og fékk Kristján góðan möguleika á að jafna leikinn
en boltinn dansaði uppúr og leiktíminn rann út. Egill
Egilsson 24 stig, Kristján Pétur Andrésson 16, Snjólfur Björnsson 11,
Guðni Sumarliðason 10, Hlynur Hreinsson 9, Davíð Guðmundsson 5, Birgir
Þór Sverrisson 3, Birgir Pétursson 2 og Magnús Ingi Hjálmarsson barðist
vel en náði ekki að skora. Haukur Óskarsson 21 stig, Örn Sigurðarson 15, Steinar Aronsson 13, Guðmundur Sigurðsson 9, Emil Barja 8, Guðmundur Sævarsson 6, Alex Óli Ívarsson 5, Andri Freysson 4 og Alexander Þorsteinsson 3. Ásgeir "Bösserbeater" Einarsson og Bragi Michaelsson léku ekki.
Smellið hér til að sjá stöðuna í unglingaflokki karla á KKÍ.is 03.03.2011 17:28Grindarvíkurstúlkur sterkariBaráttuglaðari Grindavíkurstúlkur sigruðu Snæfell.
![]() Næst síðasta umferð Iceland express deildar kvenna fór fram í kvöld og þar mættust Snæfell og Grindavík í Stykkishólmi. Snæfell jafnar og Njarðvík að stigum og í öðru sæti b-riðils og Grindavík að berjast fyrir veru sinni í deildinni jafnar að stigum og Fjölnir fyrir þennan leik. Byrjunarlið leiksins: Snæfell: Björg, Berglind, Hildur, Monique, Laura. Grindavík: Berglind, Helga, Harpa, Agnija, Janese. Laura Audere byrjaði af krafti með fyrstu 5 stig leiksins og 3 fráköst. Snæfell komst svo í 7-0 áður en Janese Banks setti þrist fyrir Grindavík. Snæfell voru komnar í 12-3 þegar Jóhann Ólafsson tók leikhlé til að fara yfir málin sem var góð vítamínsprauta fyrir liðið sem kom mun ferskara til leiks og náði að saxa forskotið niður í 14-12. Snæfell áttu í allnokkrum vandræðum með Grindavík undir lok fyrsta hluta og Grindavík jöfnuðu 18-18 eftir að Helga Hjördís fékk dæmda á sig óíþróttamannslega villu og komust svo strax yfir 18-20 sem var staðan eftir fyrsta hluta. Annar hluti byrjaði jafn og hressandi en Snæfell náði að jafna 23-23 og allt var í járnum og lítið skorað hjá liðunum sem voru framan af einungis búin að setja fimm og sex stig. Leikurinn varð mistækur fyrir vikið og mikið um tapaða bolta. Liðin skiptust á forystu en eftir að Snæfell hafði yfir 29-27 tóku Grindvíkingar 9-0 með þristasýningu í 29-36 þar sem Berglind Anna setti tvo þrista og Janese Banks einn. Snæfellsstúlkurnar rifu sig þó upp og ætluðu ekki að láta valta yfir sig heima svo glatt, unnu sig upp og jöfnuðu 38-38 en Grindavík laumuðu tveimur stigum í lokin og staðan 38-40 í hálfleik. Hjá Snæfelli var Monique Martin komin með 17 stig og 9 fráköst en Laura Audere var með 11 stig og 4 fráköst. Í liði Grindavíkur var Janese Banks komin með 16 stig og 7 fráköst, Berglind Anna Magnúsdóttir þar á eftir með 7 stig. Grindavík ætluðu sér greinilega að berjast fyrir sínu og áttu fyrstu sjö stig þriðja hluta og komust í 38-47. Líkt og áður í leiknum náðu Snæfellsstúlkurnar að hrista þetta af sér og minnkuðu muninn í 46-47. Snæfell hékk þó skrefinu á eftir mest af í þriðja hluta og náðu að skapa sér lítið rými gegn vörn Grindavíkur en náðu þó að draga vel á og voru einu stigi undir fyrir lokahlutann 58-59. Monique kom Snæfelli í 63-62 með þrist og svo tvö til í 65-62 en spennan fór að magnast í húsinu undir lokin þegar staðan var 65-65. Grindavík kom sér þægilega í 65-70 og Snæfell átti erfitt með að splæsa í eitthvað gott til að eiga við þá stöðu og lítið fór ofan í þrátt fyrir tilraunir en leikhlutinn fór 9-13 fyrir Grindavík. Leikurinn endaði 67-72 fyrir gestina í Grindavík. Grindavíkurstúlkur eiga hrós skilið fyrir góða baráttu í leiknum og góðar rispur sem skilar þeim kannski áframhaldandi sæti í deildinni þar sem þær sitja í næst neðsta sæti með 10 stig en það ræðst í síðasta leik deildakeppninnar gegn neðsta liðinu Fjölni sem er með 8 stig. Snæfell hins vegar átti slakann dag þar sem lítið gekk upp. Það var þungt sóknarlega og vörnin var oft sein og skrefi á eftir. Þær eiga útileik við Njarðvík eftir og er barátta milli liðanna um efsta sæti b-riðils en Njarðvík er með 18 stig og Snæfell 16. Snæfelli dugir þó ekkert annað en sigur til að taka það sæti eftir að hafa tapað núna þriðja leik sínum í röð en bæði lið hafa þó tryggt sig inn í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Helsta tölfræði leikmanna: Snæfell: Monique Martin 28/18 frák. Laura Audere 23/9 frák. Hildur Björg Kjartansdóttir 5. Sara Mjöll Magnúsdóttir 4. Berglind Gunnarsdóttir 3. Helga Hjördís Björgvinsdóttir 2. Alda Leif Jónsdóttir 2. Björg Einarsdóttir 0. Ellen Alfa Högnadóttir 0. Sunna Arnarsdóttir 0. Aníta Sæþórsdóttir 0. Birta Antonsdóttir 0. Hér er alveg ljóst að það vantaði meira framlag frá fleirum en tveimur efstu. Grindavík: Janese Banks 25/12 frák. Agnija Reke 13/9 frák/5 stoð. Berglind Anna Magúnsdóttir 11. Helga Hallgrímsdóttir 9/8 frák/8 stoð. Heiða Valdimarsdóttir 9. Harpa Hallgrímsdóttir 3/6 frák.Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir 2. Eyrún Ottósdóttir 0. Alexandra Hauksdóttir 0. Alda Kristinsdóttir 0. Mary Sicat 0. Katrín Rúnarsdóttir 0. Dómarar leiksins: Björgvin Rúnarsson og Jakob Árni Ísleifsson. Símon B. Hjaltalín. 03.03.2011 13:11Hermann Geir Þórsson þjálfar meistaraflokk UMFGMeistaraflokkur Grundarfjarðar hefur gengið frá ráðningu á þjálfara
fyrir sumarið. Það er heimamaðurinn Hermann Geir Þórsson sem mun sjá um
að stjórna skútunni árið 2011. Hermann Geir mun einnig spila með liðinu. Hermann Geir og Tómas Freyr Kristjánsson ganga frá samningnum. Hermann hefur leikið með Víking Ólafsvík, ÍA og HK á sínum ferli. Hann hefur leikið í öllum deildum Íslandsmótsins og náð að skora í öllum deildum Íslandsmótsins... og ekki skemmir fyrir að hann skartar gríðar fagurri mottu í tilefni mottumars. Stjórn Meistaraflokks Grundarfjarðar hlakkar til samstarfsins við Hermann og vonar að þetta lyfti liðinu á hærra plan. 02.03.2011 19:58Meistaramót Íslands í frjálsum 11-14 áraMeira af frjálsum. Fjórir krakkar fóru á ÍM í frjálsum sem haldið var nú um liðna helgi. Þetta voru þau Katrín Eva Hafsteinsdóttir, Helena Helga 01.03.2011 19:31KSÍ með fræðslufund fyrir stjórnendur aðildarfélagaKSÍ stendur fyrir fræðslufundi laugardaginn 16. apríl kl. 11.00 í höfuðstöðvum KSÍ þar sem farið verður yfir ýmsar hagnýtar upplýsingar fyrir stjórnendur aðildarfélaga KSÍ. Fræðslufundurinn er opinn öllum þeim er áhuga hafa á að kynna sér betur ýmis málefni er snúa að daglegum rekstri knattspyrnufélaga, samskiptum við KSÍ og fleira. Fyrst og fremst er þó horft til þeirra aðila sem nýlega hafa hafið störf innan aðildarfélaga, fulltrúa í barna- og unglingaráðum og stjórnenda sem vilja kynna sér ákveðin málefni betur. Fræðslufundurinn verður haldinn á einum degi og hefst dagskrá kl. 11.00 en ætlunin er að honum ljúki um kl. 15.00 sama dag. Fyrir liggur drög að dagskrá og eru væntanlegir þátttakendur beðnir um að kynna sér dagskránna og koma með athugasemdir ef þurfa þykir. Vantar t.d. einhver málefni inn á dagskrá sem vert væri að kynna betur fyrir aðildarfélögum? Við hvern og einn málaflokk eru lögð fram nokkur af þeim málefnum sem verður farið yfir. Aðildarfélög eru jafnframt beðin um að senda inn upplýsingar um áhuga sinn á fræðslufundinum og hvort fulltrúar á þeirra vegum geta sótt fundinn á þessum tíma. Skráning skal berast á póstfangið dagur@ksi.is eða í síma 510-2900 í síðasta lagi 8. apríl og verða nánari upplýsingar sendar á félögin í tíma. 01.03.2011 19:20Sigurbjörn Bárðarson með sýnikennsluReiðlist meistaransSigurbjörn Bárðarson tamningamaður með meiru verður með sýnikennslu í reiðhöllinni Faxaborg, Borgarnesi, fimmtudaginn 3. mars nk. kl. 20:00. Tilvalið fyrir þá sem vilja afla sér fræðslu og kunnáttu í reiðmennsku o.fl. Aðgangseyrir 1.500 fyrir 16 ára og eldri. Ókeypis fyrir 15 ára og yngri. 01.03.2011 19:15UMFG og Víkingur í samstarfVíkingur og Grundarfjörður í samstarfSíðastliðinn laugardag var undirritaður samstarfssamningur á milli Víkings Ól og Grundarfjarðar. Þetta er gert til að efla knattspyrnuna á Snæfellsnesi og verður vonandi öllum til hagsbóta. Eins og allir vita þá spilar Víkingur Ól í fyrstu deild á næsta tímabili og Grundarfjörður spilar í 3 deild. Víkingur Ól mun ekki senda 2 flokk til keppni þetta árið eins og tíðkast hefur. Í staðinn fá yngri leikmenn liðsins að fara á láni til Grundarfjarðar og fá dýrmæta leikreynslu þar. Þetta kemur báðum liðum til góða þar sem að lið Grundarfjarðar fær unga og spræka stráka í leikmannahópinn og yngri leikmennirnir fá reynslu.Frá undirritun samningsins. Jónas Gestur Jónasson og Tómas Freyr Kristjánsson undirrita samninginn og fyrir aftan þá standa 4 leikmenn Víkings Ólafsvíkur. 2 þeirra í búningi Víkings og 2 í búningi Grundarfjarðar. Leikmennirnir eru frá vinstri. Þorsteinn Már Ragnarsson, Ólafur Hlynur Illugason, Heimir Þór Ásgeirsson og Jón Haukur Hilmarsson. Myndina tók Helgi Kristjáns. |
Eldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 96 Gestir í dag: 32 Flettingar í gær: 1079 Gestir í gær: 143 Samtals flettingar: 902990 Samtals gestir: 96633 Tölur uppfærðar: 19.5.2012 05:24:29 |