Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu

Færslur: 2011 Janúar

05.01.2011 17:28

Verndum þau

HSH, UMFÍ og Mennta- og menningarmálaráðuneytið
bjóða öllum þeim sem koma að uppeldi barna og ungmenna á námskeið Verndum þau.

Námskeiðið verður haldið í Fjölbrautaskóla Snæfellinga, Grundarfirði þriðjudaginn 11 janúar og hefst kl. 19:30
Kennarar, stjórnendur,  leiðbeinendur, þjálfarar, starfsmenn og

foreldrar eru allir velkomnir. 

 

Sjá nánar hér.

05.01.2011 17:26

Stórmót ÍR í frjálsum

 

Ágætu félagar, gleðilegt ár og þakka ykkur öllum samstafið á liðnu ári

15. Stórmót ÍR fer fram helgina 22. - 23. janúar. Frjálsíþróttadeild ÍR býður ykkur velkomin á 15. Stórmót ÍR.   Ég sendi út tímaseðil fljótlega en endanlegur tímaseðill verður sendur út eftir að skráningu lýkur.
Með góðri frjálsíþróttakveðju
--
Margrét Héðinsdóttir, formaður
Frjálsíþróttadeildar ÍR
8212172
Nánar á
www.ir.is/frjalsar

05.01.2011 10:58

Ingi besti þjálfarinn

Uppgjör fyrri hluta Iceland express deildanna.

 

Eftirtaldir leikmenn og þjálfarar hlutu verðlaun.

Úrvalslið Iceland Express-deildar kvenna
1. Pálína Gunnlaugsdóttir - Keflavík
2. Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir - KR
3. Margrét Kara Sturludóttir - KR
4. Bryndís Guðmundsdóttir - Keflavík
5. Jaleese Butler - Hamar

Besti þjálfarinn:
Ágúst S. Björgvinsson - Hamar

Dugnaðarforkur/Besti varnarmaður:
Jacquline Adamshick - Keflavík

Besti leikmaður í umferðum 1-11:
Jaleese Butler - Hamar

Úrvalslið Iceland Express-deildar karla
1. Pavel Ermolinskij - KR
2. Ægir Þór Steinarsson - Fjölnir
3. Hörður Axel Vilhjálmsson - Keflavík
4. Jón Ólafur Jónsson - Snæfell
5. Lazar Trifunovic - Keflavík

Besti þjálfarinn:
Ingi Þór Steinþórsson - Snæfell

Dugnaðarforkur/Besti varnarmaður:
Ryan Pettinella - Grindavík

Besti leikmaður í umferðum 1-11:

Pavel Ermolinskij - KR

 

03.01.2011 13:30

Firmamót Snæfells


Firmakeppni Snæfells. -umfjöllun-

Firmakeppni Snæfells var haldin 28.des, 9 lið voru skráð til leiks í tveimur riðlum.

Dekk og smur sem var skipað örvhentum og loðnum einstaklingum. Þeir sýndu oft góða takta enda voru þeir búnir að æfa mikið fyrir mótið.

Íslenska Gámafélagið var skipað af "Pabba" allra gáma í Stykkishólmi honum Gunna Jóns og öllum börnunum hans. Þau áttu fína spretti og unnu tvo leiki og töpuðu einum naumlega, ef Kiddi Rauði hefði verið með þá hefðu þau komist í úrslit. Skora á Gunna að taka hann með í næstu keppni.

 

Næst í röðinni er Olís með stórskyttuna og varnartröllið Gumma á bensó. Með honum í liði voru nokkrir spilarar sem hafa átt betri daga, það var greinilegt að Dekk og Smur fékk alla tímana í íþróttahúsinu, Olís hefðu mátt fá einn til að æfa smá. En Olís vann einn leik og voru nálægt einum til viðbótar. Þeir koma dýrvitlausir á næsta mót.

 

Palli Sig, er liðið hans Palla Sig. íþróttaráðherra Stykkishólms. Hann komst því miður ekki að kvetja sitt lið í ár. En stefnir á að mæta 2030. Liðið var skipað vaxtarætkartröllum, bankastarfsmönnum og ps3-spilurum. Þeir fóru í úrslitaleikinn og áttu góðan sjens þar. Fínasta lið sem hefði átt að láta Adda Páls skjóta meira.

Síðasta lið A-riðils heitir Strumparnir, eigandi liðsins fannst það við hæfi þar sem enginn meðlimur liðsins náði yfir 155 cm. Þeir voru komnir á þetta mót til að hafa gaman og skemmta áhorfendum. Það varð raunin. Það sem einkenndi lið stumpanna var sprengikraftur. Þeir töpuðu öllum sínum leikjum en sýndu góða takta á köflum.

 

Þá erum við komin í B-riðil Efstir á blaðið þar var Mjöður ehf. Miði mjöð mjeð...já já við vitum öll hvaða lið það er. Bjórinn okkar hólmara. Þetta lið var skipað flottum leikmönnum og var maður mótsins í liðinu. Þeir fóru í úrslitaleikinn.

Útg. Arnars eru næstir, þau mættu til móts með ágætlega sterkt lið og voru miklar skyttur fyrir utan þriggja stiga línuna. Þau töpuðu reyndar öllum leikjunum í riðlinum enda gríðarlega sterkur riðill.

 

Þá er komið að frændum okkar í Ólafsvík eða Fiskmarkaði Íslands. Þeir mættu í þessum fínu búningum með nokkrar svakalegar byssur á borð við Lauga Rabba og Tóta. Undir körfunni var Mímir tilbúinn í allt. Þeir áttu fínt mót og spiluðu um 5.sætið.

Síðastir en alls ekki sístir voru það lögreglumennirnir okkar, þeir voru með svakalegt lið. Fyrrverandi landsliðsmenn og miklar fótboltastjörnur. Þar af tveir markmenn, hvað er það? Þeir sýndu okkur góða takta þó svo að formið hafi verið að stríða þeim á löngum köflum. Þeir fóru í undan úrslit og sigurvegari þriggja stiga keppninnar kom úr þeirra röðum. Jón Detlef Eyþórsson.

Þá er búið að fara yfir þessi 9 lið sem tóku þátt.

 

Í 9. sæti enduðu Strumparnir.

8. sæti Útgerð Arnars

7. sæti Olís

6. sæti Íslenska Gámafélagið

5. sæti Fiskmarkaður Íslands

3.-4. sæti Dekk og Smur / Lögreglan

2. sæti Palli Sig.

1. sæti Mjöður ehf.

 

Við viljum þakka þeim sem komu í stúkuna að horfa og auðvitað liðunum sem tóku þátt.

 

Kkd Snæfells þakkar fyrir sig, góðar stundir.

Hér fyrir neðan má sjá alla leiki mótsins.

 

F.h Snæfells

Gunnlaugur Smárason.

 Nánar á Snæfell.is


03.01.2011 08:32

Heimir, Einar og Brynjar áfram hjá Víking

31. desember 2010

Víkingur framlengdi í vikunni samninga við þrjá leikmenn. Brynjar Kristmundsson til ársloka 2012, Einar Hjörleifsson til loka 2011 og Heimir Þór Ásgeirsson til ársloka 2012.

Brynjar Kristmundsson sem einungis er 18 ára hefur leikið 58 leiki í bæði deild og bikar frá árinu 2007. Fimm sinnum hefur honum tekist að koma knettinum í mark andstæðinganna ásamt því sem hann hefur lagt upp ófá mörkin.


Einar Hjörleifsson hefur verið einn af máttarstólpum liðsins undanfarin ár. Frá árinu 2001 hefur Einsi leikið 141 leik fyrir Víking (og HSH) og staðið sig með mikilli prýði.

Heimir Þór Ásgeirsson skipti á dögunum yfir til Víkings eftir eins árs veru hjá uppeldisfélaginu sínu í Grundarfirði. Heimir á að baki 16 leiki í deild og bikar þar sem honum tókst að setja eitt mark.

Strákarnir þrír eru allir í æfingahóp íslenska landsliðsins í futsal sem hefur verið við æfingar milli hátíðanna. Spennandi verður að fylgjast með hvort þeir verða í endanlegum hóp en strákarnir hafa verið boðaðir til áframhaldandi æfinga þann 2. janúar.

 

HSH

Nafn:

Héraðssamband Snæfellsnes og Hnappadalssýslu

Farsími:

865-0294

Afmælisdagur:

24 september 1922

Heimilisfang:

Sólvellir 3. 350 Grundarfirði

Heimasími:

436-1635

Önnur vefsíða:

umfi.is

Kennitala:

620169-5289

Bankanúmer:

0191-15-370322

Tenglar

Flettingar í dag: 96
Gestir í dag: 32
Flettingar í gær: 1079
Gestir í gær: 143
Samtals flettingar: 902990
Samtals gestir: 96633
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 05:24:29
Flettingar í dag: 96
Gestir í dag: 32
Flettingar í gær: 1079
Gestir í gær: 143
Samtals flettingar: 902990
Samtals gestir: 96633
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 05:24:29