08.09.2010 16:10
Starfslið Bosei íþróttalýðháskólans í heimsókn á Íslandi
Erling
Joensen, skólastjóri Bosei íþróttalýðháskólans í Danmörku ásamt
kennurum við skólann, var hér á landi í kynnisferð en hópurinn hélt af
landi brott í gær eftir vel heppnaða ferð.
Ungmennafélag Íslands er sem kunnugt er í samstarfi við
nokkra íþróttalýðháskóla í Danmörku og tók upp samstarf við
Bosei-skólann á síðasta ári þegar hann hóf starfsemi sína.
Glímusamband Íslands er ennfremur í samstarfi við skólann
sem kennir þar íslenska glímu. Skólinn hefur vaxið fiskur um hrygg, nú
eru um 70 nemendur við skólann, þar af einn frá Íslandi. Samstarfið við
Glímusambandið kemur meðal til vegna sérhæfingar skólans í
bardagaíþróttum.
Starfslið skólans átti hér vinnufund og heimsótti
íþróttafélög sem sérhæfa sig í bardagalistum og heimsótti höfuðstöðvar
UMFÍ við Sigtún.
Hópurinn fór meðal annars þar að Gullfoss og Geysi og kom
við á Íþróttaháskólanum að Laugarvatni. Danirnir lýstu yfir mjög
mikilli ánægju með ferð sína til Íslands sem þeir sögðu hafa verið
gagnleg og lærdómsrík.
UMFÍ á í góðu samstarfi við íþróttalýðháskóla í Danmörku og styrkir nemendur héðan til þátttöku í þeim.
Mynd. Starfslið Bosei íþróttalýðháskólans skoðaði sig um á Geysi þar sem þessi mynd var tekin.
06.09.2010 07:30
Snæfell í 4. sæti Rekjanescup.
Snæfell lenti í 4.sæti Reykjanescup invitational eftir 104-102 tap gegn
Keflavík um 3ja sætið. Snæfell lenti mest undir 87-65 en náðu með
harðfylgi að klóra sig áfram.
Emil Þór var valin í úrvalslið
mótsins ásamt Ægi Þór Steinarssyni og Tómasi Tómassyni úr Fjölni, Herði
Axel úr Keflavík og erlendum leikmanni hjá ÍR.
sbh

05.09.2010 13:43
Kompás - mannréttindafræðsla fyrir ungt fólk
Kompás
- mannréttindafræðsla fyrir ungt fólk verður haldið dagana 29.
september - 2. október nk. kl. 8:30 - 17:00 í húsi KFUM og KFUK á
Holtavegi 28, Reykjavík.
Námskeiðið er ætlað fagfólki í
tómstundastarfi, kennurum af öllum skólastigum sem og sjálfboðaliðum sem
starfa með ungu fólki á hvaða vettvangi sem er.
Vilt þú kynnast fjölbreyttum og skapandi leiðum
til að fræða ungmenni um mannréttindi? Þá er þetta námskeið fyrir þig. Á
námskeiðinu kynnast þátttakendur bókinni Kompás sem nýlega var þýdd á
íslensku og hefur reynst vel í mannréttindafræðslu víða um Evrópu.
Æskulýðsvettvangurinn stendur fyrir
námskeiðinu að tilstuðlan mennta- og menningarmálaráðuneytisins.
Evrópuráðið styrkir námskeiðið. Leiðbeinendur á námskeiðinu eru þau Buzz
Bury, Marija Gajic og Pétur Björgvin Þorsteinsson en öll hafa þau
reynslu af notkun bókarinnar.
Athugið: Námskeiðið kostar kr.
9.000. Innifalið í því er hádegismatur og kaffitímar dagana sem
námskeiðið stendur og Kompás bókin. Námskeiðið fer aðallega fram á
ensku.
Nánari upplýsingar má finna á www.kfum.is/namskeid eða í síma 588-8899 Skráning með tölvupósti á hjordis@kfum.is fyrir 15. september. Athugið: Aðeins 25 pláss!!!
05.09.2010 13:40
Fréttir af æfingarmótum mfl karla og kvenna.
Mfl kvenna lentu í 2.sæti í b-riðli Hraðmóts UmfN og Kosts á fimmtudag
með 40-26 sigri á Fjölni og 44-23 sigri á U16 liði Íslands. KR lenti í
fyrsta sæti en Snæfell tapaði naumt 38-31 fyrir þeim. Snæfell lék svo við
Hamar í undanúrslitaleik í kvöld.
Stúlkurnar okkar
sigruðu Hamar 52-45 og fóru í kjölfarið í úrslitaleik gegn KR en töpuðu
aftur fyrir þeim en nú með 17 stigum en minni munur var í hálfleik.
Strákarnir
töpuðu í Ljónagryfjunni í Njarðvík fyrir Fjölni 112-95 eftir að Fjölnir
hafði einnig yfir í hálfleik 59-48. Það ræðst svo í kvöld hverjir
mótherjarnir verða á sunnudag hjá strákunum í Reykjanescup en sá leikur
verður í Keflavík.
sbh
Snæfell sigraði Reykjanescup Initational fyrir ári síðan. 05.09.2010 13:39
Lokahófið
Lokahófið fór
fram í gær og þetta var mikil snilld. Ég held að allir hafi bara skemmt
sér gríðarlega vel og stemmingin hafi verið almennt mjög góð.

Leikmaður ársins valinn af leikmönnum: Aron Baldursson
Markahæsti leikmaðurinn: Heimir Þór Ásgeirsson
Efnilegasti leikmaðurinn: Sigurbjörn Bjarnason
Búinn að henda inn myndum sem eru misgóðar en lýsa stemmingunni nokkuð vel.
Af síðu umfg
05.09.2010 13:36

Víkingar
tryggðu sér sigur í 2. deild árið 2010 þegar liðið sigraði Hött frá
Egilsstöðum á Vilhjálmsvelli í dag. Með sigrinum fóru Víkingar í 52 og
þegar tvær umferðir eru eftir hefur liðið 8 stiga forystu á
BÍ/Bolungarvík sem sigraði Víði 4-2 í dag. Þar sem aðeins tvær umferðir
eru eftir geta Vestfirðingarnir ekki náð Víking að stigum og mun því
bikar fara á loft næstu helgi þegar Víðir frá Garði kemur í heimsókn í
Ólafsvík.
Vikingurol.is óskar öllum Víkingum nær sem fjær
hjartanlega til hamingju með þennan glæsta árangur. Þegar þetta er
skrifað sitja strákarnir á flugvellinum á Egilsstöðum og bíða eftir
flugi til Reykjavíkur. Gleðin í flugstöðinni er ósvikin og biðja allir
að heilsa og vonandi sjáum við sem flesta áhorfendur á Ólafsvíkurvelli
næstkomandi laugardag þar sem bikar mun fara á loft eftir
deildarmeistaratitil í fyrsta skiptið!
Lifið heil og áfram Víkingur Ólafsvík!
Af síðu Víkings
03.09.2010 10:52
Vestarr
Víkings og Valkyrjumótið var haldið þann 27. ágúst og er eitt af
síðustu mótum sumarsins sem fer nú óðum að kveðja okkur.
Alls mættu 37 keppendur og var keppt í tveim karlaflokkum og tveim kvennaflokkum
Vestarr Víkingur árið 2010í fyrsta flokk karla varð Ragnar Smári Guðmundsson
Vestarr Valkyrja árið 2010 í fyrsta flokk kvenna varð Hugrún Elísdóttir
Vestarr Víkingur í öðrum flokk karla árið 2010 varð Ágúst Jónsson
Vestarr Valkyrja árið 2010 í öðrum flokk flokk kvenna varð Þórey Jónsdóttir
Að loknu móti var boðið upp á grill hamborgara sem runnu ljúflega í mannskapinn



03.09.2010 10:29
02. september 2010 klukkan 18:30
Víkingur Ólafsvík
03.09.2010 10:27
Nina Björk bætti vallarmetið a Bárarvelli
Stórglæsilegt afmælismót Ragnars og Ásgeirs ehf var haldið á Bárarvelli þann 21. ágúst í ágætis veðri.
Frábær
mæting var á mótið og ágætisveður þótt smá gjóstur hefði verið á
vellinum. Alls mættu 80 manns í mótið . Nína Björk Geirsdóttir GKJ
bætti vallarmet kvenna af rauðum og spilaði hun a 76 höggum en
vallarmetið var 81 högg. Annars voru úrslit svo;
Án forgjafar voru efstu sæti
Staða Kylfingur Klúbbur Fgj. Síðasti hringur Hringir Alls
Hola F9 S9 Alls Mismunur H1 Alls Mismunur
1 Guðjón Reyr Þorsteinsson * GKJ 2 F 37 37 74 2 74 74 2
2 Grímur Þórisson * GÓ 2 F 39 37 76 4 76 76 4
3 Nína Björk Geirsdóttir * GKJ 0 F 36 40 76 4 76 76 4
En í punktamóti fóru leikar svo fyrstu fimm sæti:
Staða Kylfingur Klúbbur Fgj. Síðasti hringur Hringir Alls
Hola F9 S9 Alls H1
CSA leiðréttingar fyrir Stableford keppnir +1
1 Steinar Þór Alfreðsson * GVG 16 F 18 21 39 39 39
2 Anna María Reynisdóttir * GVG 22 F 21 18 39 39 39
3 Heimir Þór Ásgeirsson * GVG 17 F 17 20 37 37 37
4 Guðjón Reyr Þorsteinsson * GKJ 2 F 18 18 36 36 36
5 Helgi Kristjánsson * GK 23 F 20 16 36 36 36
Ragnar
og Ásgeir ehf buðu upp á veitingar á meðan móti stóð en að loknu móti
var öllum boðið í stórglæsilega veislu til höfuðstöðva fyrirtækisins sem
stóð fram á nótt.
Einnig færði fyrirtækið golfklúbbnum að gjöf skjöld þar sem allir þeir sem vinna það afrek að fara holu í hoggi verða skráðir.
Við
í stjórn golfklúbbsins þökkum Ragnari og Ásgeir ehf kærlega fyrir
höfðinglegan stuðning og óskum þeim til hamingju með stórafmælið.
02.09.2010 08:19
Mostri vann Vestarr í vinaklúbbakeppni
Vinaklúbbakeppni Mostra og Vestarr for fram á Víkurvelli í Stykkishólmi á
laugardaginn á frábærum velli í góðu veðri - til leiks voru skráðir 35
kylfingar hjá Mostra og 28 hjá Vestarr sem er metþáttaka .
fyrri hlutinn fór fram á Bárarvelli í vor og áttu Mostramenn 1 vinning í pokanum þegar komið var til leiks að Þessu sinni.
'i fyrstahluta - Texas scr. vann Mostri 9 - 5
í öðrum hluta - " foursome" vann Mostri 8 -5
í þriðja hluta - Tvímenning vann Vestarr með 15,5 - 11,5
Mostri vann því samanlagt með 4 vinninga forskot í lokinn og varðveitir því Ryderbikarinn áfram.
Mostri færir Vestarr bestu kveðjur fyrir góða og skemmtilega keppni

02.09.2010 08:17
Núna
er undirbúnigstímabilið farið af stað af alvöru og er Sean Burton
kominn heim og í kvennaliðið er Inga Muciniece komin. Liðin hafa æft
stíft og nú er komið að æfingarmótum hjá báðum liðum frá og með í dag og
fram á helgina.
Kvennaliðið fer á Hraðmót UmfN og Kosts en
Karlaliðið fer á Reykjanescup Invitational sem þeir unnu einmitt í
fyrra. Strákarnir byrja á móti Njarðvík kl 19.00 í Grindavík en
stúlkurnar kl 17.45 á móti Fjölni í Njarðvík.
Kvennamót UmfN og Kosts.
Karlamótið Reykjanescup Invitational.