Magnús og Axel lágu báðir í Danaveldi: Sigur hjá Guðna og Sigurði
Þrír leikir fóru
fram í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld sem markaði þar með lok annarar
umferðar í deildinni. Magnús Þór Gunnarsson og Axel Kárason máttu báðir
þola ósigur með sínum liðum en Guðni vann Íslendingaslaginn.
Guðni Valentínusson og félagar í
Bakken Bears tóku á móti Magnúsi Þór og félögum í Aabyhoj í kvöld.
Lokatölur reyndust 77-53 Bakken í vil. Guðni lék í 10 mínútur í leiknum
og skoraði 6 stig. Magnús Þór gerði 3 stig í leiknum á rúmum 27 mínútum
og setti 1 af 6 þriggja stiga skotum sínum í leiknum. Bakken hefur unnið
tvo fyrstu leiki sína á tímabilinu en Aabyhoj tapað einum og unnið
einn.
Axel Kárason og Værlöse tóku á móti SISU og
máttu sætta sig við naumt 80-85 tap. Axel átti fínan leik með 7 stig, 6
fráköst og 4 stoðsendingar á rúmum 28 mínútum. Værlöse hefur tapað báðum
leikjum sínum í deildinni.
Í gær var Sigurður Þór
Einarsson svo í eldlínunni með Horsens IC sem sótti heim BK Amager.
Horsens náði í góðan útisigur 73-91 þar sem Sigurður gerði 10 stig og
gaf 3 stoðsendingar á 8 mínútum.
Aðeins þrjú lið í dönsku deildinni eru enn ósigruð, Guðni og félgar í Bakken, Sigurður og Horsens IC og svo Svendborg Rabbits.
Almennt - þriðjudagur 28.sep.10 17:57 - Lestrar 28
Ungmennalandsliðin í blaki U17 ára koma
saman um helgina á æfingum. Um er að ræða forvalshópa þar sem þjálfarar
liðanna hafa valið 22 stúlkur og 16 stráka. Eftir helgina verða hóparnir
skornir niður í 12 leikmenn sem halda á Norðurlandamót U17 í Ikast í
Danmörku dagana 18.-22. október nk.
Zdravko Demirev er þjálfari U17 drengja og hefur valið eftirtalda leikmenn í forvalið.
Nafn
Félag
Hilmar Leó Antonsson
Vik/Reyni
Sigurður Helgi Ágústsson
UMFG
Baldur Þór Sigurðsson
UMFG
Tomasz Weyer
UMFG
Friðfinnur Kristjánsson
UMFG
Stefán Gunnar Þorsteinsson
HK
Lúðvík Már Matthíasson
HK
Lárus Jón Thorarensen
Stjarnan
Ævar Freyr Birgisson
KA
Gunnar Pálmi Hannesson
KA
Jóhann Eiríksson
KA
Geomar M. Orbon
Stjarnan
Andreas Hilmir Halldórsson
HK
Egill Þorri Arnarson
Stjarnan
Benedikt Rúnar Valtýsson
KA
Benedikt Baldur Tryggvason
Stjarnan
Apostol Apostolov er landsliðsþjálfari U17 stúlkna og hefur valið eftirtaldar stúlkur í forvalið:
Nafn
Félag
Sylvía Kolbrá Hákonardóttir
Þróttur Nes.
Rannveig Júlía Sigurpálsdóttir
Þróttur Nes.
Hafrún Hálfdánardóttir
Þróttur Nes.
Ragnheiður Björk Harðardóttir
Þróttur Nes.
Kristina Apostolova
Þróttur Nes.
Lilja Einarsdóttir
Þróttur Nes.
Katrín Sara Reyes
Vík.-Reynir
Jóhanna Jóhannesdóttir
Vík.-Reynir
Véný Viðarsdóttir
Vík.-Reynir
Alda Dís Arnardóttir
Vík.-Reynir
Ísey Dísa Hávarsdóttir
KA
Sesselja Fanneyjardóttir
KA
Auður Anna Jónsdóttir
KA
Alda Ólína Arnarsdóttir
KA
Sunna Valdimarsdóttir
KA
Harpa Björnsdóttir
KA
Eva Sigurðardóttir
KA
Berglind Gígja Jónsdóttir
HK
Hugrún Óskarsdóttir
HK
Særún Erla Baldursdóttir
HK
Nicole Hannah Johansen
Stjarnan
Ísabella Erna Sævarsdóttir
Stjarnan
Ungmennin
verða á fjórum æfingum um helgina og það verður svo tilkynnt á mánudag
hvaða 12 leikmenn það eru sem fara í ferðina til Ikast.
"Ég
er ósáttur við að knattspyrnusambandið skuli ekki á tímum eins og
þessum, þegar staða sveitarfélaga er þröng, sýna tilslökun frá sínu
leyfiskerfi. Hér hefur umgjörð leikja alltaf verið góð og aðstaða fyrir
áhorfendur ágæt, aðkomufólk sem hingað hefur komið á leiki aldrei
kvartað undan aðstöðunni þótt hér séu ekki föst áhorfendasæti við
völlinn," segir Kristinn Jónasson bæjarstjóri í Snæfellsbæ. Nú þegar
Víkingar eru aftur komnir upp í 1. deild setur KSÍ fram stífa kröfu um
að félagið komi upp áhorfendastúku við Ólafsvíkurvöll með föstum sætum
fyrir 300 áhorfendur. Forráðamenn Víkings funda með KSÍ forustunni á
næstu dögum vegna þessa, en sú staða blasir nú við að Víkingar fái ekki
að óbreyttu að spila sína heimaleiki í Ólafsvík næsta sumar.
Síðast þegar Víkingar spiluðu í
1. deild, í fyrra og sumrin þar á undan var félagið á undanþágu með
stúkumálin, en nú finnst forráðamönnum KSÍ ekki lengur stætt á því að
veita áframhaldandi undanþágu. Kristinn bæjarstjóri sagði í samtalinu
við Skessuhorn vera þeirrar skoðunar að miðað við stöðuna í þjóðfélaginu
í dag, væri vel forsvaranlegt að veita umþóttunartíma, enda áhorfendur í
Ólafsvík ekkert öðruvísi en á Ísafirði eða Bolungarvík, en lið
Vestfirðinganna fær líklega undaþágu fyrsta sumarið í 1. deildinni.
"Það er dýrt fyrir samfélagið að fara upp um deild og við þurfum hér
að ráðast í ýmiss verkefni, en vitaskuld er stutt í að stúkan komi,"
segir Kristinn. Kostnaður við umrædda áhorfendastúku er áætlaður um 30
milljónir króna, þar af greiði mannvirkjasjóður KSÍ um 10 milljónir
króna. Áætlað er að stúkan við Ólafsvíkurvöll rísi í brekkunni undir
svölunum þar sem farið hefur vel um áhorfendur til þessa og mun gera það
áfram, að sögn Kristins bæjarstjóra í Snæfellsbæ.
Fjölnir og Snæfell áttust við í æfingaleik í Íþróttamiðstöðinni í
Dalhúsum sunnudaginn 26. september. Stelpurnar mættu aðeins of seint
vegna úrslitaleiksins hjá strákunum og voru dálítið spenntar einsog
allir þeir sem fylgdust með þeim leik. Í upphafi var jafnt á milli
liðunum, í stöðunni 9-10 fyrir Snæfell skoruðu heimastúlkur 11-2 og
leiddu 20-12 eftir fyrsta leikhluta.
Allt annað lið kom
til leiks síðustu þrjá leikhlutana og sigruðu Snæfellsstúlkur annan
leikhluta 10-25 og voru yfir í hálfleik 30-37. Stigaskorið dreifðist
jafnt og sýndu stelpurnar áræðni í leikhlutanum. Varnarleikur beggja
liða var ekki góður og þurfa bæði lið að skerpa vel á þeim hluta
leiksins.
Snæfellsstelpurnar komust í fimmtán stiga
forystu í þriðja leikhluta 35-50 en þá gerðu þær sig sekar um að slaka á
og Fjölnisstúlkur voru snöggar að nýta sér það, staðan eftir þrjá
leikhluta 45-53. Fjölnir náðu að minnka muninn niður í 50-55 en
yfirvegun skilaði Snæfell fljótlega yfir 50-63 og silgdu þær sigrinum
örugglega í hús 57-74.
Bæði lið þurfa að skerpa á leik
sínum fyrir tímabilið og eru þau bæði að tefla fram gríðarlega ungum og
efnilegum leikmönnum. Það verður spennandi að fylgjast með
Snæfellsstúlkum í vetur en fyrsti deildarleikurinn er gegn Hamri á
útivelli miðvikudaginn 6. október.
Stigaskor leikmanna
Fjölnir:
Maggie McCloskey 16, Bergþór Holton Tómasdóttir 9, Grétar María
Grétarsdóttir og Eva María Emilsdóttir 8, Erla Sif Kristinsdóttir 6,
Heiðrún Harpa Ríkarðsdóttir og Birna Eiríksdóttir 4 og Erna María
Sveinsdóttir 2.
Snæfell: Inga Muciniece 13
stig, Jamie Braun 12, Björg Guðrún Einarsdóttir 11, Sara Mjöll
Magnúsdóttir 10, Helga Hjördís Björgvinsdóttir og Berglind Gunnarsdóttir
8, Hildur Björg Kjartansdóttir 7, Ellen Alfa Högnadóttir 5 en þær
Hrafnhildur Sif Sævarsdóttir og Aníta Rún Sæþórsdóttir léku en náðu ekki
að skora.
Gullæðinu er hvergi
nærri lokið í Stykkishólmið því Snæfell eru Lengjubikarmeistarar í
karlaflokki 2010. Æðið heldur áfram og nú lágu KR-ingar í valnum 97-93.
Pálmi Freyr Sigurgeirsson fór á kostum í liði Snæfells með 33 stig, 6
fráköst og 3 stoðsendingar. Hjá KR var Hreggviður Magnússon með 24 stig
og 6 fráköst. Pavel Ermolinskij var ekki síðri í liði KR með 17 stig, 17
fráköst og 10 stoðsendingar.
Íslands- og bikarmeistarar
Snæfells byrjuðu betur og komust í 7-0 áður en miðherjinn Fannar
Ólafsson kom KR á blað. Vesturbæingar voru þó fljótir að jafna sig og
minnkuðu muninn í 9-8 en það voru Hólmarar sem leiddu 24-21 að loknum
fyrsta leikhluta. Hreggviður Magnússon var með fína innkomu af bekknum í
fyrsta leikhluta hjá KR og Atli Rafn Hreinsson sömuleiðis í liði
Snæfells.
Sean Burton fékk sína þriðju villu
snemma í öðrum leikhluta og sást lítið það sem eftir var fyrri
hálfleiks, slíkt hið sama má segja um Fannar Ólafsson en nokkur harka
var í öðrum leikhluta.
Pálmi Freyr Sigurgeirsson
var stigahæstur Hólmara í hálfleik með 22 stig þar sem hann setti niður 4
af 5 þristum sínum en hann hélt rauðum við efnið. KR-ingar reyndust þó
sprækari undir lok fyrri hálfleiks og leiddu 51-47 í leikhléi.
Hreggviður Magnússon og Pavel Ermolinskij voru báðir með 12 stig í
hálfleik hjá KR en Pavel auk þess 9 fráköst og 7 stoðsendingar.
Eftir
um 25 mínútna leik gerðist tvennt nokkuð athyglisvert, Ryan Amoroso
fékk sína fimmtu villu í liði Snæfells þegar hann fékk dæmt á sig
tæknivíti. Dóminn hlaut Ryan fyrir að eiga við boltann eftir að hann fór
ofan í körfu KR, Amoroso hafði fengið tvær aðvaranir í fyrri hálfleik
fyrir að leika sama leik og lét sér ekki segjast. Dómarar leiksins gáfu
honum því tæknivíti fyrir vikið og Amoroso sást ekki meir eftir frekar
dapra frammistöðu í leiknum.
Í annan stað tók það
Pavel Ermolinski aðeins 25 mínútur að landa þrennu, 15 stig, 10 fráköst
og 10 stoðsendingar! KR-ingar voru ívið sterkari í þriðja leikhluta en
Pálmi Freyr var sjóðandi heitur í liði Snæfells og skoraði nánast að
vild. Fannar Ólafsson sá þó til þess að KR héldi forystunni og leiddu
Vesturbæingar 80-78 að loknum þriðja leikhluta.
Með
Amoroso fjarverandi héldu Hólmarar áfram í svæðisvörn sem gekk ágætlega
enda gekk KR illa að finna körfuna með 4 þrista í 22 tilraunum! Þörf
var á að annar leikmaður Snæfells myndi stíga upp á lokasprettinum enda
Pálmi orðinn nokkuð þreyttur. Sean Burton svaraði kallinu og með fimm
stigum í röð minnkaði hann muninn í 88-87, Hólmarar komnir á bragðið.
Næst
dró til tíðinda þegar mínúta var til leiksloka en þá vippaði Burton sér
upp á nýjan leik og smellti niður öðrum þrist og kom Snæfell yfir í
fyrsta sinn í síðari hálfleik og staðan 93-95 fyrir Snæfell. Þegar 18
sekúndur voru til leiksloka átti Atli Rafn Hreinsson tvö vítaskot fyrir
Snæfell sem bæði rötuðu rétta leið og staðan orðin 97-93 og KR-ingar
skyndilega komnir með bakið upp við vegg eftir að hafa leitt lungan úr
síðari hálfleik. Næsta sókn KR fór í súginn eftir erfitt þriggja stiga
skot og því var eftirleikurinn auðveldur hjá Snæfell og lokatölur
reyndust 97-93.
Stigaskor leikmanna:
Snæfell:
Pálmi Freyr Sigurgeirsson 33/6 fráköst, Jón Ólafur Jónsson 20/7
fráköst, Sean Burton 18, Atli Rafn Hreinsson 10/6 fráköst, Lauris Mizis
9/5 fráköst, Ryan Amaroso 6/6 fráköst, Emil Þór Jóhannsson 1, Egill
Egilsson 0, Sveinn Arnar Davíðsson 0, Gunnlaugur Smárason 0, Hlynur
Hreinsson 0, Kristján Andrésson 0.
Aníta Rún Sæþórsdóttir og Rebekka Rán Karlsdóttir hafa verið boðaðar á
æfingu með U16 landsliði í körfubolta. Þetta er 52. stúlknahópur sem er
boðaður á æfingu hjá Margréti Sturlaugsdóttur í Ljónagryfjunni í
Njarðvík. Eins og fyrr segir þá telur hópurinn 52 stúlkur og ljóst að
það verður skorið niður í framhaldinu á æfingarhópnum. En við óskum
Anítu og Rebekku góðs gengis og vonum að þær njóti sín sem best.
Víkingar
voru atkvæðamiklir þegar fotbolti.net opinberaði lið ársins í 2. deild í
Gyllta salnum á Hótel Borg nú síðdegis. Alls áttu Víkingar 6 liðsmenn í
liðinu og kom það í hlut þjálfara og fyrirliða deildarinnar að velja
lið sumarsins.
Liðið er þannig skipað að Einar Hjörleifsson stendur í markinu, í vörninni eru þeir Brynjar Kristmundsson, Brynjar Gauti, Tomasz Luba og Anton Ásvaldsson (Hetti). Á miðjunni áttu Víkingar einn fulltrúa en það er Eldar Masic. Með Eldar eru þeir Stefán Eyjólfsson (Hetti) og Emil Pálsson (BI/Bolungarvík). Það þarf fáum að koma á óvart að Þorsteinn Már Ragnarsson er einn
af þremur sóknarmönnum í liði ársins en með honum eru Andri Rúnar
Bjarnason og Jónmundur Grétarsson sem báðir leika með BÍ/Bolungarvík.
Okkar
maður Ejub Purisevic var kjörinn þjálfari ársins, Brynjar Gauti
leikmaður ársins og Þorsteinn Már sá efnilegasti. Það má því með sanni
segja að tímabilið hafi endað með miklum glæsibrag og eru okkar menn vel
að þessu komnir.
Víkingurol.is óskar strákunum sem og öðrum
leikmönnum til hamingju því ekkert af þessu væri mögulegt ef ekki væri
fyrir góða liðsheild. Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir og með því
smella á þær er hægt að sjá þær stærri.
Snæfell: Emil Þór, Nonni Mæju, Pálmi Freyr, Sean B, Ryan A. Grindavík: Páll Axel, Ómar Örn, Guðlaugur E, Ólafur Ó, Andre Smith.
Dómarar leiksins voru þeir Eggert Þór Aðalsteinsson og Kristinn Óskarsson.
Liðin
voru jöfn í fyrsta leikhluta og í stöðunni 8-8 hafði Andre skorað öll
stig Grindavíkur og Snæfell náði aðeins forskoti en leikurinn jafnaðist
aftur 17-17. 27-28 var staðan eftir fyrsta fjórðung fyrir Grindavík en
Andre var kominn með 16 stig af þeim.
Snæfell byrjaði
annan fjórðung með látum og skoruðu fyrstu 14 stigin og komust í 42-28.
Snæfell hélt forskoti sínu í leikhlutanum þrátt fyrir þrjá þrista í röð
hjá Grindavík á kafla og leiddu í leikhlé 61-50. Andre Smith var kominn
með 22 stig fyrir Grindavík og Guðlaugur Eyjólfs 11 stig. Ryan Amoroso
var kominn með 23 stig fyrir Snæfell, Emil Þór 11 stig og Pálmi 10 stig.
Nonni
Mæju fauk útaf fyrir lítið með 5 villur eftir 4 mín leik í þriðja
hluta. Undir lok þriðja hleyptu Snæfellingar Grindavík nær sér sem voru
að spila betri vörn en Snæfell leiddi þó 83-78. Í fjórða leikhluta náðu
Grindvíkingar að jafna 93-93. Snæfellingaar týndust útaf á eftir Ómari
hjá Grindavík fyrst Ryan og svo Lauris.
Lokamínúturnar
voru æsispennandi og virkilega heitar en staðan var 97-95 fyrir Snæfell
og Pálmi kláraði tvö á línunni. Snæfell sigraði leikinn 101-98 eftir
hörku lokafjórðung beggja liða.
Snæfell mætir KR sem
sigraði Keflavík 88-92, í úrslitum Lengjubikarsins sunnudaginn 26.
september í Laugardalshöllinni kl 15:30.
Atkvæðahæstu menn liðanna:
Snæfell: Ryan 33 stig, 15 frák. Emil Þór 19 stig, Sean 17 stig, Pálmi 14 stig, 11 stoðs.
Fjölnir: Andre 34 stig, Páll Axel 17 stig, 8 frák. Guðlaugur 16 stig.
Það var mikið um dýrðir á lokahófi mfl. Víkings sem var haldið á
Hótel Ólafsvík nú um helgina. Víkingsliðið kórónaði frábært tímabil með
glæsilegum útisigri á næstbesta liði deildarinnar þar sem okkar mönnum
tókst að koma knettinum fimm sinnum í markið en heimamenn aðeins
tvisvar.
Þegar heim til Ólafsvíkur var komið höfðu stjórnarmenn
gert allt klárt og kokkarnir á Hótel Ólafsvík tilbúnir með dýrindis
krásir. Jónas Gestur Jónasson setti hátíðina áður en veislustjóri
kvödsins Gunnar Örn Arnarson tók við stjórnartaumunum.
Þegar
líða tók á kvöldið voru úrslit leikmannakosningar kunngjörð þar sem
Þorsteinn Már Ragnarsson var valinn bestur en hann var jafnframt
markahæsti leikmaður liðsins í sumar með 15 mörk. Dominik Bajda var
valinn efnilegastur af þjálfurum og stjórn félagsins og óskum við
þeim sem og öllum í liðinu til hamingju með frábært sumar.
Stjórnin
vill að endingu koma á framfæri þakklæti sínu til allra sem lögðu hönd á
plóg við að gera þetta sumar jafn eftirminnilegt líkt og raun ber
vitni.
Þorsteinn og Dominik: Myndir tók Ingibjörg sumarliðadóttir
Brynjar
Gauti Guðjónsson fyrirliði Víkings Ó. var í síðustu viku valinn í 22
manna hóp U-19 ára landsliðs Ísland sem mætir Norður-Írum í tveimur
æfingaleikjum sem fara fram í þessari viku. Sá fyrri stendur núna yfir
og er háður á Sparisjóðsvellinum í Sandgerði.
Seinni leikurinn
verður næstkomandi miðvikudag eða þann 22. september. Sá leikur verður
háður á Fylkis-velli og hefst leikurinn kl. 16:00. Víkingurol.is verður
af sjálfsögðu á staðnum og mun fylgjast með gangi mála.
Byrjunarliðin í kvöld þegar Fjölnir mætti Snæfelli í Lengjubikarnum voru:
Snæfell: Nonni Mæju. Pálmi Freyr. Ryan Amoroso. Emil Þór og Sean Burton.
Fjölnir: Tómas Tómasson. Ægir Steinarsson. Sindri Kárason. Jón Sverrisson og Arnþór Guðmundsson.
Snæfell komst í upphafi leiks í 6-0 með þristum frá Ryan og Sean en leikurinn var rétt að byrja og byrjaði á harðahlaupum fram og til baka. Staðan var 21-13 fyrir Snæfell eftir fyrsta leikhluta og voru þeir aðeins sprækari á sprettinum en Fjölnismenn þó lítill munur væri á milli liðanna framan af. Snæfell spilaði heldur þéttari vörn og fengu á móti auðveldari skot og lay-up. Fjölnismenn reyndu oft pressu sem Snæfell leysti vel og náðu yfirleitt að skora eftir slíka.
Staðan eftir annan leikhluta var 39-34 og náðu Fjölnismenn að stilla sig betur af og voru að sækja í sig veðrið eftir að Snæfell höfðu komist 14 stigum yfir 25-13. Emil Þór var kominn með 12 stig hjá Snæfelli og Sean 10 stig. Ryan var kominn með 9 stig og 9 fráköst. Hjá Fjölni var Jón Sverrisson drjúgur með 10 stig og 5 fráköst. Ægir Þór 9 stig og Tómas 5 stig.
Fjölnir gáfu í í þriðja hluta með Tómas og Ægi í fararbroddi og minnkuðu muninn í 51-46 þegar Snæfell tók við sér og smelltu næstu 11 stigum og komust í 62-46. Eftir þriðja hluta stóðu leikar 65-54 fyrir Snæfell en hjá þeim var Sean Burton kominn með 4 villur. Snæfell komst í 73-58 en þá var komið að Fjölni með Tómas, Ægi og Jón Sverris. Þeir komu leiknum í 73-67 en Snæfellingar komu tilbúnir tilbaka. Jón Sverrisson fór svo útaf með 5 villur þegar um 4 mín voru eftir og staðan 82-67 fyrir Snæfell þar sem Ryan og Emil að skora vel. Á lokasprettinum gaf Snæfell í og kláraði annars gott lið Fjölnis 94-76.
Atkvæðamestu leikmenn liðanna:
Snæfell: Emil Þór 21 stig, 7 fráköst. Ryan Amoroso 20 stig, 12 fráköst. Sean Burton 17 stig, 7 frák og 5 stoðs.
Í kvöld kemur í ljós hvaða fjögur lið
tryggja sér sæti í undanúrslitum Lengjubikars karla en allir fjórir
leikir 8-liða úrslitanna fara fram í kvöld.
Það verða án efa margir
spennuleikirnir í kvöld en þau fjögur lið sem sátu hjá í fyrstu umferð
Lengjubikarsins spila í kvöld en það eru Snæfell, Keflavík, KR og
Njarðvík.