Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu

Færslur: 2010 Júní

03.06.2010 09:43

Hádegisfundur ÍSÍ þriðjudaginn 8 júní



Hádegisfundur ÍSÍ - Kynferðislegt ofbeldi

Næsti hádegisfundur verður haldinn þriðjudaginn 8. júní nk. í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal frá kl. 12.00-14.00.  Hann verður helmingi lengri en vant er, eða tvær klst. í stað einnar.  Fundarefnið að þessu sinni er alvarleiki, umfang og eðli kynferðisofbeldis.   Fyrirlesarar verða Fríða Rós Valdimarsdóttir og Kristbjörg Kristjánsdóttir frá STERK - samtökum gegn mannsali og Þórdís Elva Þorvaldsdóttir höfundur bókarinnar "Ofbeldi á Íslandi:  Á mannamáli".  Fundurinn er haldinn fyrir tilstuðlan mennta- og menningarmálaráðuneytisins.   

 Fundurinn er öllum opinn

02.06.2010 10:55

Aðalfundur Reynis

Aðalfundur Reynis var haldinn í Röstinni í gær, 1 júní
Kjörinn var ný stjórn og er Þóra Olsen form.
Stjórn Víkings mætti og sátu fundinn sem gestir og var góð umræða um
samstarf félagana undir nafni Víkingur Reynir. Voru allir sammála um nauðsyn
þess að það starf gangi vel.
Góð umræða var um starfið framundan og framtíð Reynis.
Garðar Svansson form HSH sótti fundinn ásamt Alexander Kristinssyni ritara HSH

01.06.2010 10:33

Sveinbjörg og Bjarki Íslandsmeistara

Sveinbjörg og Bjarki Íslandsmeistarar

Sveinbjörg Zophoníasdóttir úr Ungmennasambandinu Úlfljóti á Hornafirði bar sigur úr býtum í sjöþraut kvenna um helgina en keppnin fór fram á Kópavogsvelli.

 

Sveinbjörg hlaut 4.716 stig í þrautinni sem er mjög góður árangur. Sveinbjörg vakti  snemma athygli í frjálsum íþróttum og spáðu margir því að hún myndi ná langt sem nú er að koma á daginn.


Þess má geta að fyrir tveimur árum síðan lenti Sveinbjörg Zophoníasdóttir í 13. sæti í sjöþraut á heimsmeistaramóti unglinga í frjálsum íþróttum sem fram fór í á Ítalíu og hlaut þá 4609 stig.


Sveinbjörg þarf ekki að fara langt til að sækja hæfileika sína en móðir hennar, Guðrún Ingólfsdóttir, var um árabil ein fremsta kúlu- og kringlukastkona landsins og á í dag núgildandi Íslandsmet í kringlukasti.


Stefanía Valdimarsdóttir úr Breiðabliki hafnaði í öðru sæti með 4.581 stig en hún var í fyrsta sæti eftir fyrri dag keppninnar.


Bjarki Gíslason úr Ungmennafélagi Akureyrar sigraði í tugþraut karla og hlaut alls 5.966 stig en annar í þrautinni varð Sölvi Guðmundsson úr Breiðabliki með 5.251 stig.

01.06.2010 10:22

Hjólað til styrktar Snæfell

Föstudaginn 4. júní nk munu þeir kröftugu Helgafellsfrændur, Jón Bjarki Jónatansson og Þorgeir Ragnar Pálsson, hjóla frá Reykjavík til Stykkishólms. Þeir félagar ætla að tileinka hjólreiðaferð sína Íslands- og bikarmeisturum Snæfells í körfubolta og í tilefni þess hafa þeir hvatt alla að heita á þá með frjálsum framlögum sem rennur til Kkd Snæfells. Áætlað er að leggja af stað frá Reykjavík klukkan fjögur um morguninn föstudaginn 4. júní og koma í Stykkishólm um klukkan 18 sama dag. "Við hvetjum fólk og fyrirtæki að heita á þá frændur með frjálsu framlagi á reikning Snæfells og til að gera þetta skemmtilegra er gaman að hafa krónutölu á hvern kílómeter, en til fróðleiks þá er kílómetrafjöldi frá Reykjavík um Hvalfjörð er 213 km. (Um göngin 172 km)," segir í tilkynningu frá félaginu.

Hægt verður að fylgjast með hvernig gengur hjá þeim félögum.

 

 

 

Meðal annars mun Gísli Einarsson hitta þá á miðri leið í Borganesi, taka við þá viðtal og fylgjast með hjólreiðartúrnum fyrir RÚV. "Ef íbúar vilja slást í för með þeim félögum, og Snæfelli til stuðnings síðasta spölinn, þá er um að gera að láta slag standa, bóna hjólfákinn, smyrja keðjuna, herða bremsurnar og hjóla af stað. Gaman væri til dæmis að skella sér í hópinn við afleggjara Vatnaleiðar, Skjöld eða jafnvel Helgafell.

Með fyrirfram þökk til Helgafellsjötnanna Jóns Bjarka (Nonna Tana) og Þorgeirs Ragnars fyrir þeirra mikla framlag og ykkar allra sem viljið leggja málefninu lið." Næstu daga verður áheitablaði dreift í Stykkishólmi með upplýsingum um ferð félaganna og hvernig er hægt að leggja til framlög, en einnig verða upplýsingar á heimasíðu Snæfells og á Facebook. "Við tökum svo vel á móti þeim þegar þeir renna í Stykkishólm á föstudaginn og aldrei að vita nema að Jón Bjarki stórbarki hefji upp raust sína fyrir hópinn," segir að lokum í tilkynningu frá stjórn Kkd. Snæfells.

 

Frétt af Skessuhorni


01.06.2010 09:57

Fjölskyldan á Fjallið

Sunnudagin 30 maí síðastliðinn var gengið á Eyrarfjall í Eyrarsveit,
Sigríður Herdís sem hefur í gegnum tíðina verið forsvari fyrir göngunni býr fyrir austan og
nýtti ferðina heim í sveitina til að ganga á Eyrarfjall.
Góð þátttaka var eins og alltaf áður. Settur var upp nýr póstkassi og gestabók.
 



HSH

Nafn:

Héraðssamband Snæfellsnes og Hnappadalssýslu

Farsími:

865-0294

Afmælisdagur:

24 september 1922

Heimilisfang:

Sólvellir 3. 350 Grundarfirði

Heimasími:

436-1635

Önnur vefsíða:

umfi.is

Kennitala:

620169-5289

Bankanúmer:

0191-15-370322

Tenglar

Flettingar í dag: 96
Gestir í dag: 32
Flettingar í gær: 1079
Gestir í gær: 143
Samtals flettingar: 902990
Samtals gestir: 96633
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 05:24:29
Flettingar í dag: 96
Gestir í dag: 32
Flettingar í gær: 1079
Gestir í gær: 143
Samtals flettingar: 902990
Samtals gestir: 96633
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 05:24:29