Byrjunarlið Víkings:
Einar Hjörleifsson, Bega, Tomasz Luba, Brynjar Kristmunds, Alfreð Hjaltalín, Brynjar Gauti, Dominik, Edin Beslija, Eldar Masic, Þorsteinn Már, Aleksandrs Cekulajev
Varamannabekkur:
Andri Freyr Hafsteinsson , Fannar Hilmarsson, Jón Haukur Hilmarsson, Ólafur Hlynur Illugason, Sindri Hrafn Friðþjófsson.
Hvatarmenn fengu fyrsta alvöru færið strax í byrjun leiks en tókst sem betur fer ekki að nýta sér það og varnarmenn Víkings hreinsuðu boltann frá. Baráttan á miðjum vellinum var mikil og var hart barist. Hvatar-menn voru þó fyrr til að skora í leiknum en það gerðu þeir um miðbik fyrri hálfleiks eftir góða fyrirgjöf frá hægri vængnum. Staðan var 1-0 í hálfleik og gengu Víkingar niðurlútir af velli enda ekki sáttir með eigin frammistöðu.
Annað horfði við í síðari hálfleik. Víkingar komu mjög ákveðnir til leiks og voru ekki lengi að jafna metin. Þar var að verki fyrirliðinn Brynjar Gauti Guðjónsson sem skallaði boltann framhjá Atla Jóhannssyni markverði Hvatar af harðfylgi. Fannar Hilmarsson gerði svo sigurmarkið eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Markið hans Fannars var einnig með skalla en töldu margir að hann hefði verið rangstæður. Línuvörðurinn hélt hins vegar flagginu niðri og markið stóð. Víkingar voru með yfirhöndina allan síðari hálfleikinn og sigurinn í raun aldrei í hættu. Hvatar menn áttu þó skot í þverslánna en Einar var vel á verði í markinu.
2-1 sigur staðreynd sem þýðir að Víkingar spila til úrslita gegn Völsungi næstkomandi fimmtudag. Völsungur vann í dag BÍ/Bolungarvík í framlengdum leik.
Fannar kom inn á í dag og skoraði sigurmark Víkings.
