Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu

Færslur: 2010 Apríl

09.04.2010 09:14

Næsti leikur Snæfell - KR


Jæja þá förum við að þjappa okkur saman fyrir næsta leik og koma okkur í gírinn. Það skal tekið fram að við leggjumst ekki á sama klósettplan og nokkrir stuðningmenn KR og hvetjum okkar lið eins og við gerðum í Vesturbænum síðast sem var til sóma og engann dónaskap, flott mál.

 

Ef einhverjir sprækir ökuþórar vilja vera með í að keyra á leikinn í Dhl höllinni á laugardaginn mega hafa samband við Hermund Páls eða Davíð Sveins. Brottför frá íþróttahúsi kl 12:00

09.04.2010 09:12

Ungt fólk og lýðræði

,,Ungt fólk og lýðræði" á Laugum

Ráðstefnan Ungt fólk og lýðræði stendur ný yfir á Laugum í Dalasýslu. Þetta er í annað sinn sem ráðstefnan er haldin en sú fyrsta var á Akureyri í fyrra. Yfir 50 manns taka þátt í ráðstefnunni að þessu sinni.

 

Í hópastarfinu í gær var meðal annars farið yfir samvinnu ólíkra aðila, svo sem fjölmiðla, félagasamtaka og stjórnvalda. Jörgen Nilsson bauð upp á hópefli þar sem þátttakendum var skipt í tvo flokka og þurftu að smíða lendingarbúnað fyrir egg.

 

Báðum hópunum tókst að koma egginu sínu óbrotnu til jarðar, um 3-4 metra fallhæð (ofan úr áhorfendastúkunni í íþróttasalnum á Laugum).

 

Hjörtur Ágústsson frá Evrópu unga fólksins, EUF, kynnti verkefnið og lét þátttakendur hanna umsókn.

 

Stefán Bogi Sveinsson, UÍA og Útsvarskempa, kenndi ræðumennsku og fundarstjórn. Í lok fyrirlestrarins kenndi hann þátttakendum lykilatriðin að baki góðu handabandi.

 

Ráðstefnunni lýkur eftir hádegi í dag.

 

08.04.2010 13:03

Pub Quiz UMFG

Pub Quiz Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 08 Apríl 2010 11:48

Meistaraflokkur karla stendur fyrir Pub Quiz í kvöld. Keppnin hefst kl 21:00 á Kaffi 59 og kostar aðeins 500 kr. á mann. Við hvetjum alla til að mæta, skemmta sér og styrkja strákana okkar í leiðinni.

Meistaraflokksráð.

08.04.2010 09:49

Golfmót KKÍ 2010 í Stykkishólmi

Golfmót Körfuboltamanna 2010
Ríkharður Hrafnkelsson, mótastjóri golfmóts Körfuboltamanna, hefur hafið undirbúning að mótinu í sumar og hefur tryggt sér völlinn í Hólminum fyrir hið árlega golfmót körfuboltamanna

Mótið fer fram föstudaginn 18. júni á Víkurvelli í Stykkishólmi og verður ræst út af öllum teigum kl. 14:30.

Síðastliðið haust voru teknar í notkun nýjar holur og endurbættur völlur í Stykkishólmi sem verður afar spennandi að leika. Þetta verður í þrettánda sinn sem mótið fer fram, en mótið var fyrst haldið í Hólminum árið 1998.

Á mótið eiga erindi allir þeir sem einhvern tíma hafa komið nálægt körfubolta, sem leikmenn, dómarar, stjórnarmenn eða á einhvern annan hátt og eru að fikta við golfið. Makar eru að sjálfsögðu einnig velkomnir.

Leiknar verða 18 holu punktakeppnir, bæði með og án forgjafar, þar sem hámarksforgjöf verður 24 hjá körlum og 28 hjá konum.

Skráning og nánari upplýsingar er hjá Ríkharði Hrafnkelssyni í síma 897-6279 eða á tölvupóstfangi: rikkihr@visir.is.

Mótið í fyrra var vel sótt og stórskemmtilegt, en þá var leikið að Flúðum og voru rúmlega 60 manns skráðir til leiks. KKÍ hvetur alla sem áhuga hafa til að skrá sig og eiga góðan dag í góðra manna hópi þann 18. júní.

08.04.2010 09:32

Síðasti skiladagur á Felix er 15 apríl

Starfsskýrsluskil - 15. apríl

Skilafrestur starfsskýrslna til ÍSÍ rennur út 15. apríl nk. Sem fyrr er einungis hægt að skila starfsskýrslum í gegnum Felix, tölvukerfi ÍSÍ og UMFÍ.
Þau félög sem ekki geta skilað ársreikningi 15. apríl geta sótt um frest til skrifstofu ÍSÍ á þeim hluta skýrslunnar en verða engu að síður að skila uppfærðu iðkenda- og félagatali og stjórnarupplýsingum á tilsettum tíma.

Aðstoð við skil veita Rúna H. Hilmarsdóttir verkefnisstjóri Felix og Halla Kjartansdóttir skrifstofustjóri ÍSÍ í síma 514 4000. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netföngin
runa@felix.is og halla@isi.is


08.04.2010 09:20

KR jafnaði í Hólminum


KR jafnaði 1-1

Snæfellingar höfðu ekki fengið á sig meira en 98 stig á heimavelli í vetur en það breyttist í kvöld þegar KR settu niður 107 stig. Snæfell gerði eins í DHL-Höllinni í síðasta leik en þar hafði enginn farið yfir 100 stigin. KR kom í Hólminn með látum og tóku öll völd í leiknum strax í upphafi. Vesturbæingar spiluðu fantavörn og voru funheitir í hittni sinni. Í fjórða hluta gerðu Snæfellingaar sig líklega í stöðunni 75-84 en KR tók þá öll völd, stálu, blokkuðu, tróðu og settu upp skotsýningu á meðan Snæfell strögglaði á öllum sviðum leiksins og fór KR með 88-107 sigur af Hólmi.  


08.04.2010 09:09

Aðalfundur Víkings 15 apríl



Aðalfundur UMF.Víkings


Verður haldinn í íþróttahúsi Snæfellsbæjar

15. apríl kl. 20:00

                                           

Dagskrá:

1. venjuleg aðalfundastörf

2.önnur mál

Hvetjum alla til að mæta,

Stjórn Víkings


07.04.2010 13:47

Uppskeruhátíð og ball hjá UMFG

Síðasta vetrardag eða þann 21. apríl verður slegið upp veislu

í Samkomuhúsinu með mat og balli.

Húsið opnar kl 19.00

Matseðill:

Forréttur

Sjávarréttasúpa

Aðalréttur

Gratíneraður plokkfiskur

Fish & chips

Eftirréttur

Súkkulaði bomba.

Óvæntar uppákomur

Matti og Draugabanarnir

Miðaverð er einungis 3000 kr á mann fyrir mat og ball. Ballið opnar á miðnætti og kostar 1500 kr.

 Miðapantanir eru í síma 868-4474 (Lára) & 662-1709(Gæi).

Panta þarf miða í mat fyrir 15. Apríl.

18 ára aldurstakmark.

  Meistaraflokkar kk & kvk í blaki og fótbolta  

07.04.2010 09:01

KR Íslandsmeistari kvenna

Iceland Express-deildin: KR Íslandsmeistari kvenna 2010

Mynd: Hilmar Þór · Sport.is

KR tryggði sér íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express-deild kvenna með sigri á Hamar í oddaleik í kvöld.

Leikurinn var jafn og skemmtilegur og frábærlega leikinn af báðum liðum. Bæði lið sýndu frábæra takta og léku af talsverðri hörku. Staðan í hálfleik var 33:37 fyrir Hamar.

KR-stúlkur komu ákveðnar til leiks í seinni hálfleik og náðu 19:2 spretti og sem vó þungt, en Hamar sótti á í restina og minnkaði muninn í tvö stig þegar skammt var eftir. KR stúlkur gerðu vel og lönduðu sigri og þar með titlinum, lokatölur 84:79.

07.04.2010 08:56

Víkingur Ó - Hamar á föstudaginn

Næsti leikur hjá Víking Ó í lengjubikarnum er á föstudaginn kl. 20 á Gervigrasvellinum Laugardal.

Víkingur mætir Hamar frá Hveragerði.

http://farm3.static.flickr.com/2770/4375941743_ede4b927df_o.jpg

06.04.2010 17:10

Getraunastarfið hjá UMFG



Úrslit

3. apríl  2010

1.                  deild

Lengjan - Guiennes  5-7                    Sæstjarnan - Sverðdís  7-5

Hjónin - Meistararnir  7-8                 Sjóarar - Trukkarnir  7-7

Bryggjupollar - Litla ljónið  7-6        Timon og Pumba - Frænkan  5-7

S.G. Hópurinn E.D.is    9-0               R.B. Púkarnir  7-8

Sæbjúgun - Tveir bjartsýnir  8-8      

2. deild

Up the irons - H.G.  10-9                  Tóm steypa - Texas bræður  0-6

What ever - Máfarnir  7-0                 H.H. Hópurinn  - Gosar  6-7

E.N. Hópurinn - Frændurnir  9-6      Pétursson  -  N1  6-7

Önundur - Huldumenn  5-6              Óreyndir - Grobbelear  7-7



1. deild
Leikvika 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 STAÐAN
Hópur                                
1 Sæstjarnan 1 3 3 3 3 3 3 3 0 3 3 1 3     32
2 Meistararnir 3 1 3 0 3 3 3 3 1 1 3 3 3     30
3 Sverðdís 0 3 3 1 3 3 3 3 3 3 1 3 0     29
4 Bryggjupollar 3 1 1 1 0 3 3 3 0 1 3 3 3     25
5 Púkarnir 3 3 3 0 0 0 3 0 1 1 3 0 3     20
6 R.B 3 3 3 3 3 3 0 0 0 0 1 0 0     19
7 Timon og Pumba 0 0 1 0 1 1 3 3 3 3 3 1 0     19
8 Guiennes 1 3 0 3 1 0 1 0 3 3 0 0 3     18
9 Lengjan 1 3 1 3 0 3 3 3 0 0 0 0 0     17
10 S.G. Hópurinn 1 0 0 3 3 1 0 0 1 1 3 1 3     17
11 Litla ljónið 3 3 0 0 0 0 1 0 3 3 0 3 0     16
12 Sjóarar 0 0 1 3 3 3 0 3 0 0 0 0 1     14
13 E.D.is 0 3 0 0 1 0 0 3 3 0 3 0 0     13
14 Frænkan 0 0 0 0 0 0 3 0 3 1 0 3 3     13
15 Tveir bjartsýnir 0 0 3 1 0 0 0 3 1 1 0 3 1     13
16 Sæbjúgun 0 0 3 0 3 1 0 0 0 1 0 3 1     12
17 Hjónin 3 0 0 3 1 1 0 0 1 0 0 1 0     10
18 Trukkarnir 3 0 0 1 0 0 0 0 1 1 3 0 1     10
2. Deild
Leikvika 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 STAÐAN
Hópur                                
1 N1 3 0 3 3 3 1 1 0 3 1 3 3 3     27
2 Texas bræður 1 3 3 3 0 3 1 3 3 0 0 1 3     24
3 Máfarnir 3 3 3 0 3 3 3 0 0 1 1 3 0     23
4 Up the irons 0 3 0 3 1 3 0 3 1 3 0 3 3     23
5 E.N. Hópurinn 3 1 3 0 0 0 3 3 0 1 3 1 3     21
6 Groobelear 0 0 0 3 1 0 1 1 3 3 3 3 1     19
7 Óreyndir tipparar 3 3 0 3 1 3 1 0 1 0 3 0 1     19
8 Pétursson 0 3 3 1 1 0 3 3 1 0 0 3 0     18
9 What ever 0 0 3 0 1 3 1 1 0 3 3 0 3     18
10 H.G. 1 1 3 0 0 3 0 1 1 1 3 3 0     17
11 H.H. Hópurinn 3 1 3 0 3 3 1 1 1 1 0 0 0     17
12 Tóm steypa 3 1 0 1 3 0 1 0 0 3 1 3 0     16
13 Gosar 0 1 0 0 1 1 3 0 3 0 3 0 3     15
14 Frændurnir 0 3 0 3 0 0 0 3 3 0 0 0 0     12
15 Huldumenn 3 0 0 0 3 0 1 0 0 1 0 0 3     11
16 Önundur 0 1 0 3 0 0 0 3 1 3 0 0 0     11

05.04.2010 21:17

Snæfell vann KR

Snæfell skellti KR í Vesturbænum


Henry Birgir Gunnarsson skrifar:

Snæfell er komið með yfirhöndina í undanúrslitaeinvíginu gegn KR eftir magnaðan útisigur í Vesturbænum í kvöld, 84-102.

KR byrjaði betur en strax í öðrum leikhluta tók Snæfell völdin og hélt forystunni allt til enda.

Snæfell spilaði frábæran körfubolta í kvöld á báðum endum vallarins og KR-ingar áttu einfaldlega ekki svar við sterkum leik þeirra.

KR þarf nú að fara í Hólminn á miðvikudag og reyna að jafna metin. Það verður ekki auðvelt.

Tekið af vísi.is

02.04.2010 13:17

KR- Snæfell úrslitakeppni

Leikdagar KR vs SNÆFELL
KR-Snæfell

Mánudagur 5. apríl Leikur 1 KR-Snæfell DHL-höllin kl. 19.15

Miðvikudagur 7. apríl Leikur 2 Snæfell-KR Stykkishólmur kl. 19.15

Laugardagur 10. apríl Leikur 3 KR-Snæfell DHL-höllin kl. 16.00

Mánudagur 12. apríl Leikur 4 Snæfell-KR Stykkishólmur kl. 19.15 ef þarf

Fimmtudagur 15. apríl Leikur 5 KR-Snæfell DHL-höllin kl. 19.15 ef þarf

Hvetjum alla Snæfellinga að fjölmenna á leikina og hvetja strákana til sigurs. Framundan er
erfið keppni og þörf er á öllum stuðningi sem hægt er að fá.

HSH

Nafn:

Héraðssamband Snæfellsnes og Hnappadalssýslu

Farsími:

865-0294

Afmælisdagur:

24 september 1922

Heimilisfang:

Sólvellir 3. 350 Grundarfirði

Heimasími:

436-1635

Önnur vefsíða:

umfi.is

Kennitala:

620169-5289

Bankanúmer:

0191-15-370322

Tenglar

Flettingar í dag: 96
Gestir í dag: 32
Flettingar í gær: 1079
Gestir í gær: 143
Samtals flettingar: 902990
Samtals gestir: 96633
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 05:24:29
Flettingar í dag: 96
Gestir í dag: 32
Flettingar í gær: 1079
Gestir í gær: 143
Samtals flettingar: 902990
Samtals gestir: 96633
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 05:24:29