Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu

Færslur: 2010 Mars

05.03.2010 12:04

Herra og konukvöld Víkings

Myndir frá Herra & Konukvöldi Víkings

Á facebook síðu Víkings má sjá myndir af Herra & Konukvöldi mfl. Víkings frá því 27. febrúar síðastliðnum. Ýtið á myndina til að fara inn á myndabanka Víkings

05.03.2010 11:56

Tap á Króknum

Isom sjóðheitur í Tindastólssigri

Isom sjóðheitur í Tindastólssigri

Tindastóll lagði í kvöld bikarmeistara Snæfells í spennandi leik á Króknum þar sem Cedric Isom fór á þvílíkum kostum með 48 stig. Þegar rúm mínúta var eftir var staðan 91 - 91, en Stólarnir sem voru komnir í bónus fór þá ótt og títt á línuna og innsigluðu sigurinn þar án svars frá gestunum. Lokatölur 99 - 91 í frábærum körfuboltaleik.
 
.
 
Stigaskor: Isom 48, Rikki 15, Donatas 15, Helgi Rafn 7, Helgi Freyr 5, Axel 4, Einar Bjarni 2, Svavar 2 og Sigmar 1.
 
Snæfell: Sean 33, Sigurður 18, Martins 17, Jón Ólafur 13, Emil 6 og Sveinn 3.
 

 
Dómarar leiksins voru þeir Rögnvaldur Hreiðarsson og Einar Þór Skarphéðinsson og áttu þeir góðan leik.
 
Áhorfendur um 200 og fögnuðu vel í leikslok.
 

 

 

04.03.2010 09:10

Leiðtoganámskeið NSU

Langar þig á leiðtoganámskeið í Noregi?

NSUDagana 5. - 11. júlí nk. verður haldið leiðtoganámskeið í Noregi á vegum NSU.   UMFÍ á þar tvö pláss sem eru ætluð ungu fólki á aldrinum 18 - 25 ára.

Nú er UMFÍ að leita að ungu fólki sem  er tilbúið að fara til Noregs á þetta námskeið.

Enginn kostnaður á að falla á þátttakendur en skipuleggjandinn 4H í Noregi og UMFÍ greiða ferðir og þátttökugjöldin.

Allir sem áhuga hafa eru hvattir til þess að hafa samband við Garðar á skrifstofu HSH  eða Ómar Braga hjá UMFÍ 568 2929 omar@umfi.is

04.03.2010 08:35

Grindavík gaf gegn SnæGrím


Bikarmeistarar í drengjaflokki áttu að spila við Grindavík í kvöld en leikurinn var gefinn af hálfu UmfG og eru úrslit þá skráð 20-0 fyrir Snæfell/Skallagrím.

 

 

 

 

03.03.2010 16:52

Snæfellsstúlkur í úrslitakeppnina

Snæfell vann Val og fara í úrslitakeppni í fyrsta sinn.

Kvennalið Snæfells sigraði lið Vals í Iceland express deildinni 58-83 í Vodafonehöllinni í kvöld. Með sigrinum fara Snæfellsstúlkur inn í úrslitakeppnina í fyrsta skipti á meðan það kom í hlut Valsstúlkna að fara niður um deild í ár. KR og Hamar sem eru í 1. og 2. sæti deildarinnar sitja hjá og fara beint í undanúrslit en Snæfell mætir þá 3ja sætinu sem er Keflavík í umspili um undanúrslitasæti. Snæfell varð að vinna leikinn og vona að Haukar ynnu Njarðvík til að allt gengi upp sem það gerði.

 


 

Fyrsti hluti var mjög jafn og endaði 18-15 fyrir Snæfell. Annar hluti var jafn framan af og var staðan 25-25 þegar Valur komst yfir 27-25 en þá setti Snæfell stopp á allt hjá Val og settu 8 stig í röð og leiddu í hálfleik 27-33. 

 

Eftir þennan sprett í lok annars hluta var tóninn settur og Snæfellsstúlkur litu aldrei til baka og leiddu allann leikinn og juku forskotið meira og meira. Staðan eftir 3ja hluta var 44-56 og svo tóku þær fjórða hluta 14-27 og kláruðu leikinn sannfærandi 58-83. 


 

 

Sherell Hobbs var stigahæst með 30 stig og 7 stolna bolta. Gunnhildur spilaði einnig vel með 16 stig og setti niður 3 af 4 þristum og var með 24 framlagsstig. Hrafnhildur Sævars átti flottann dag með 12 stig og 7 frákös. Björg Guðrún setti 10 stig sýndi töffaratakta þegar hún kom Snæfelli yfir 27-28 með einum af þremur þristum sem hún setti niður og gaf tóninn fyrir það sem á eftir kom. Helga Hjördís skoraði 6 stig og tók 6 fráköst. Sara Sædal setti 3 stig og tók 7 fráköst. Rósa, Unnur og Hildur voru með 2 stig hver og Rósa tók 5 fráköst og Unnur 4 fráköst. Sara Mjöll skoraði ekki en spilaði í leiknum.

 

Glæsileg frammistaða hjá stúlkunum sem mæta Keflavík á laugardaginn 6. mars í úrslitakeppninni í Keflavík.

 


 

 

Tölfræði leiksins

 Af vef Snæfells

Símon B. Hjaltalín

Mynd: Þorsteinn Eyþórsson

 


 

03.03.2010 08:24

Aðalfundur Mostra í kvöld

02.03.2010 10:26

3fl.karla í 3 sæti í Futsal

Strákarnir úr 3fl karla sem náðu 3 sæti í Futsal núna í Janúar.


02.03.2010 08:35

SnæGrímur Bikarmeistarar

Drengjaflokkur Snæfells/Skallagrímur bikarmeistarar.

 


 

BIKARMEISTARAR DRENGJAFLOKKS 2010

SNÆFELL/SKALLAGRÍMUR

nánar á karfan.is

02.03.2010 08:34

Handboltanámskeið í Grundarfirði

Handboltanámskeið í Grundarfirði

HANDBOLTI.

Nú er komið að því að halda handboltanámskeið.  Ætlunin er að hafa námskeiðið um helgar þar sem íþróttahúsið er upp bókað alla vikuna. 

Þjálfari er Bjarni Einarsson í Grundarfirði.  Tíminn mun kosta kr. 500,- 

Verður krökkunum skipt niður sem hér segir:

 Laugardagur  6 mars
11:00 - 12:00  --  1-2-3-4 bekkur blandað strákar og stelpur
12:15 - 13:15  --  5-10 bekkur stelpur
13:15 - 14:15  --  5-7 bekkur strákar
14:15 - 15:15  --   8-10 bekkur strákar
15:15 - 16:15  --  Eldri en 16 ára

Sunnudagur   7 mars

11:00 - 12:00  --  1-2-3-4 bekkur blandað strákar og stelpur
12:15 - 13:15  --  5-10 bekkur stelpur
13:15 - 14:15  --  5-7 bekkur strákar
14:15 - 15:15  --  8-10 bekkur strákar
15:15 - 16:15  --  Eldri en 16  ára

Skráning fer fram Hjá Bryndísi í síma    868 4596 eða 554 4596 eftir kl. 14:00.  Með von um góða þátttöku og skemmtun.

Með kveðju

Stjórn UMFG og Bjarni Einarsson


02.03.2010 08:30

UMFG Blak

Blaklið kvenna gerir það gott

Síðastliðna helgi hélt blaklið kvenna í Grundarfirði á Hvolsvöll að keppa í 3. deild í blaki.  Var þetta önnur helgin af þremur.  Voru þær  í 3. sæti eftir fyrsta mótið sem haldið var í Mosfellsbæ í október.  En nú gekk allt upp hjá stelpunum. Þær komu sáu og sigruðu, því þær unnu alla sína  leiki sem voru fimm talsins með 2 - 0 og er það frábær árangur.  Munu þær í framhaldinu keppa um 1. - 6. sæti í byrjun apríl og vonum að allt gagni eins vel og smurt og nú um helgina.  Óskum þeim til hamingju með árangurinn.

Af síðu umfg

01.03.2010 10:52

UMFG- Augnablik 2-1

Grundarfjörður - Augnablik 2-1

Á laugardaginn síðasta skruppu strákarnir í UMFG í Hafnarfjarðarsveit og kepptu æfingaleik við Augnablik, meðfylgjandi er ferðasaga þeirra.

Við strákarnir hérna fyrir vestan rifum okkur upp fyrir allar aldir og hópuðumst í hópferðarbílinn fyrir ferðina suður. Okkur leist ekkert sérstaklega vel á veðrið en lögðum samt af stað með góða skapið.

Svo var mætt á Ásvelli og ástandið á vellinum var ekkert sérstakt en slapp þó til þegar búið var að sópa frá línunum.

Byrjunarliðið var þannig skipað:
Viktor stóð í markinu
Ingi Björn var hægri bak
Hinni Rauði vinstri bak
Aron Baldurs og Jón Frímann voru miðverðir
Tommi hægri kantur
Tryggvi vinstri kantur
Hrannar og Styrmir voru á miðjunni.
Ragnar Smári fyrir framan miðju
Arnar Dóri á toppnum.

Bekkurinn:
Atli Kristins
Runni
Batti
Þorri
Axel

Við byrjuðum með vindi og vorum með smá hríð í bakið fyrstu tuttugu mínúturnar eða svo. Við pressuðum á þá nánast allan fyrri hálfleikinn og ég held að þeir hafi átt c.a. eina sókn. Viktor hafði amk mjög lítið að gera í fyrri hálfleik. Fljótlega í leiknum fengum við aukaspyrnu í skotfæri. Tryggvi stillti sér upp og bjuggust allir við skotinu. Arnar Dóri hafði þá laumað sér bak við vegginn og Tryggvi renndi boltanum beint á hann og Dóri smurði hann í stöngina nær og inn. 1-0.
Fljótlega eftir það sendi Tryggvi eitraða sendingu inn fyrir vörnina þar sem að Ragnar Smári kom á ferðinni og slapp einn innfyrir. Hann kláraði færið vel og hamraði boltann í netið 2-0. Styrmir fékk líka dauðafæri og svo átti Ragnar skot í stöng. Með smá heppni hefðum við getað verið 4-0 í hálfleik.

Í seinni hálfleik var lagt á ráðin að halda boltanum niðri og gekk það ljómandi vel. Við vorum að fá fín færi í seinni hálfleik þegar Axel var kominn á vinstri vænginn og átti hann marga eitraða spretti. Augnablik minkaði muninn þegar c.a. 20 mín voru eftir og pressuðu þá frekar stíft á okkur en við náðum að halda þetta út. Fyrsti sigurinn okkar saman og þetta var rosalega massívt.

Við vorum að minnsta kosti hressir á leiðinn heim á hópferðabílnum og Siggi Hlö var ánægður með okkur.

01.03.2010 10:10

Snæfell vann ÍR 96-86

Ekki auðvelt hjá bikarmeisturunum
frétt af Karfan.is

Ekki auðvelt hjá bikarmeisturunum

ÍR mætti Snæfelli í kvöld í Iceland Express deildinni eftir frestaðan leik þar sem veðrið var að sperra sig á fimmtudaginn s.l. Hlynur Bæringsson sat á tréverkinu og var hvíldur þennann leik vegna meiðsla í kálfa.
Eitthvað voru Snæfellsmenn hikstandi í upphafi leiks en einnig komu ÍR meira tilbúnir en oft áður og var fyrsti hluti mjög jafn þar sem liðin skiptust á að skora en Snæfell átti fleiri færi í að komast í forystu en voru að eitthvað óakveðnir og skotin slök. Með sprækari mönnum Snæfells var Sigurður Þorvalds og Sean Burton átti fínann sprett undir lokin sem kom Snæfelli í 23-17 forystu eftir fyrsta hluta.

ÍR spilaði fast og uppskáru villur í byrjun annars hluta á meðan Snæfell lagaði stöðuna betur og var að detta í léttari spilamennsku sem kom þeim í 31-24. ÍR komu til baka með látum og spiluðu góða vörn og staðan varð 36-34 og Snæfell tók leikhlé þar sem margt þurfti að leysa. Sean Burton var að berjast grimmt í vörn og sókninni sérstaklega en hann stjórnaði sínum mönnum í næsta 12-2 áhlaupi og ÍR tók þá leikhlé í stöðunni 48-36.  ÍR klóraði í bakkann og staðann var 48-42 í hálfleik.

Hjá Snæfelli var Sigurður Þorvalds atkvæðamestur með 16 stig og 9 fráköst. Sean Burton var kominn með 10 stig og Jón Ólafur 7 stig. Í liði ÍR var jafnara skor milli leikmanna og var Nemanja Sovic kominn með 9 stig. Eiríkur Önundar og Steinar Arason 8 stig hvor. Kristinn Jónasson 7 stig og 5 fráköst. Robert Jarvis var kominn með 6 stig og 7 stoðsendingar.

Snæfellingar fóru í þungar sóknir í byrjun þriðja hluta og ekkert féll með þeim. Robert Jarvis hjá ÍR nýtti sér það og setti tvo góða þrista í röð en þeir máttu nú fara að detta hjá honum eftir einhverjar tilraunir og staðan varð 52-48. Mikil röð mistaka og pirrings gætti í liði Snæfells og kom það verulega niður á leik þeirra. Nemanja Sovic minnkaði svo muninn fyrir ÍR í eitt stig 54-53 og kom þeim svo yfir 56-57.  Sean Burton setti loksins sína fyrstu þriggja stiga körfu eftir allmargar tilraunir eða 8 alls og Snæfell skreið hægt og bítandi með gríðalegri seiglu og stífri vörn fram úr og Pálmi Freyr setti síðustu þrjú stig Snæfells í þriðja hluta og setti sinn stimpil á meðbyr heimamanna og staðan 69-57.

Snæfell hélt uppteknum hætti í byrjun fjórða hluta og voru ÍR meira í að brjóta sem gaf þeim lítið. Steinar Ara og Robert Jarvis minnkuðu eilítið muninn niður í 12 stig með sinn hvorn þristinn sem dugði skammt þegar Snæfell renndi sér í áhlaupin sem gaf þeim stöðuna 86-68. ÍR var þó með baráttuna í lagi og fyrrnefndur Jarvis var þeirra maður þegar þeir löguðu stöðuna 88-77 og svo 88-81 en hann kom illa niður eftir gott skot sitt þar og fór haltrandi útaf. Þegar mínúta var eftir var staðan 92-83. Snæfellingar átti ekki auðvelt kvöld og var spilamennska ÍR nokkuð hress á köflum og voru þeir oft að koma til baka en spiluðu einkar fast varnarlega. Snæfell hafði þó sigur að lokum 96-86 með harðfylgi.

Hjá Snæfelli var Sigurður öflugastu  með 25 stig og 18 fráköst og Sean kom næstur á eftir með 23 stig. Jón Ólafur setti 13 stig og tók 6 fráköst. Martins Berkis setti 11 stig ásamt Pálma Frey en tók 9 fráköst að auki. Hjá ÍR var Robert Jarvis með 24 stig og 7 stoðsendingar. Eiríkur og Nemanja Sovic með 16 stig hvor og Sovic 12 fráköstum betur. Steinar Arason 14 stig.

Snæfell sem saknaði frákstarans Hlyns Bærings voru eilítið ráðavilltir á köflum en tóku þó fleiri fráköst eða 55 vs 39 hjá ÍR. Ingi Þór var að vonum ánægður eftir leikinn og sagðist gríðalega ánægur með að landa mikilvægum stigum miðað við álag á leikmönnum undanfarið. Góður sigur í höfn þó spilalega mátti hann vera betri og Snæfell langt frá að eiga auðveldann leik og spurninig hvort ÍR séu að hressast fyrir lokasprettinn en þeir eru í baráttu um sæti í úrslitakeppni og fallbaráttu einnig.

Símon B. Hjaltalín

HSH

Nafn:

Héraðssamband Snæfellsnes og Hnappadalssýslu

Farsími:

865-0294

Afmælisdagur:

24 september 1922

Heimilisfang:

Sólvellir 3. 350 Grundarfirði

Heimasími:

436-1635

Önnur vefsíða:

umfi.is

Kennitala:

620169-5289

Bankanúmer:

0191-15-370322

Tenglar

Flettingar í dag: 96
Gestir í dag: 32
Flettingar í gær: 1079
Gestir í gær: 143
Samtals flettingar: 902990
Samtals gestir: 96633
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 05:24:29
Flettingar í dag: 96
Gestir í dag: 32
Flettingar í gær: 1079
Gestir í gær: 143
Samtals flettingar: 902990
Samtals gestir: 96633
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 05:24:29