Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu

Færslur: 2010 Febrúar

03.02.2010 16:54

Úrslitakeppni í knattspyrnu innanhús

Sunnudaginn 7.febrúar fer fram úrslitakeppni Futsal hjá 3.fl ka og 4.fl kv

Mótið hjá strákunum fer fram í Austurbergi og hefst það kl 13:00. Riðilinn þeirra má sjá hér.

Stelpurnar í 4.fl spila í Smáranum og hefst þeirra mót einnig kl 13:00. Riðilinn þeirra má sjá hér.

Því miður komust strákarnir í 4.fl ka ekki áfram þrátt fyrir góðan árangur en aðeins eitt lið úr þeirra riðli komst áfram. ]

Nánar á snæfell.is

03.02.2010 16:49

Línudans 50+

UMSK mótið í línudansi 50+

line-dancing_~u18517213

Opið mót í línudansi fyrir þátttakendur 50+ Íþróttahúsinu Varmá í Mosfellsbæ  27. mars 2010.  Mótið hefst kl.14.00 og líkur kl. 17.00.

 Húsið opnar kl. 12.00. Hópar geta staðsett sig á keppnisgólfi kl. 12.30 - 13.30.

Verðlaun 1.2.og 3. sæti. Bikar til eignar fyrir hópinn.

Þátttökuskráning þarf að berast til UMSK fyrir 17. mars 2010, ásamt

þáttttökugjaldi kr. 1.000.- pr þátttakanda.  

 Upplýsingar í síma 514 4090/894 8503 eða umsk@umsk.is

03.02.2010 16:46

Muna að skrá sig í Lífshlaupið

Lífshlaupið hafið

Í dag kl: 11:00 hófst Lífslaupið formleg í þriðja sinn í Sjálandsskóla í Garðabæ.
Daníel Breki Johnsen, 9 ára nemandi í Sjálandsskóla, bauð gesti velkomna en Ólafur Rafnsson, forseti ÍSÍ, Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra og Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra ávörpuðu gesti og kepptu ásamt Gunnari Einarssyni, bæjarstjóri Garðabæjar, Margréti Björnsdóttur, forstjóra Lýðheilsustöðvar, Hafsteini Pálssyni formanni almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, Helga Grímssyni skólastjóra Sjálandsskóla  og 6 nemendum úr Sjálandsskóla í skemmtilegri þraut í anda Skólahreystis undir stjórn Andrésar Guðmundssonar.

Nú hafa 666 lið frá 274 vinnustöðum og 191 bekkur frá 29 grunnskólum skráð sig til leiks. Minnum á að hægt er að skrá sig til leiks til 23.febrúar inná www.lifshlaupid.is




 

02.02.2010 16:38

Þing HSH

Ágætu félagar

Þingi HSH  hefur verið frestað til 23 febrúar


Vegna breytinga á leikdögum hjá Körfuknattleikssambandinu
hefur verið settur leikur í Stykkishólmi þann 10. febrúar og  ekki
er mögulegt að breyta því.


Þing HSH verður því haldið í Stykkishólmi 23 Febrúar kl. 18.00
í Grunnskóla Stykkishólms.

Beðist er velvirðingar á þessar breytingu

02.02.2010 16:23

Víkingur/Reynir Bikarmeistari

Víkingur Reynir Bikarmeistari 3 flokki stúlkna

Um helgina fór fram bikarmót yngriflokka í annað sinn. Heimaliðið var sigursælt og hampaði tveimur gullverðlaunum og einu bronsi en keppt var í 2. og 3. flokki drengja og stúlkna.

 

Í gærkvöld hófst keppnin með leikjum í öllum flokkum. Alls voru 14 lið mætt til leiks frá 7 félögum. Mótið fór fram í Fagralundi í Kópavogi og var ekki að sjá annað en að allir hefðu skemmt sér vel á vel skipulögðu móti.

Í 3. flokki stúlkna varð Víkingur/Reynir bikarmeistari árið 2010. Jason Ívarsson, formaður BLÍ mætti til að afhenda bikarinn í þessum flokki en sigurliðið vann alla sína leiki, þó lentu þær í oddahrinu í tveimur leikjunum sem þær unnu svo. Í öðru sæti var lið Stjörnunnar og í því þriðja endaði KA. Alls voru 6 lið að keppa í 3. flokki stúlkna á þessu bikarmóti.

Í 3. flokki drengja varð lið KA bikarmeistari árið 2010. KA liðið vann Stjörnuna í tæplega tveggja tíma leik, 3-2 en Stjarnan endaði í öðru sæti keppninnar. HK og Grundarfjörður voru hin tvö liðin sem tóku þátt í þessum flokki og hafði HK betur gegn Grundfirðingum í lokaleiknum en bæði lið höfðu þá tapað sínum leikjum. HK endaði því í þriðja sæti og fengu bronsverðlaun. Sævar Már Guðmundsson, framkvæmdastjóri BLÍ áfhenti verðlaun í þessum flokki.

02.02.2010 16:16

Stúlknaflokkur Snæfell

Stúlknaflokkur tóku annað sætið á fjölliðamóti.

Þriðja umferðin á Íslandsmótinu í stúlknaflokki A-riðli fór fram í Keflavík í Toyotahöll þeirra suðurnesjamanna.  Vel var haldið utan um mótið og stóðust allar tímasetningar sem og dómgæsla sem var í góðu lagi.  Snæfellsstúlkur voru einungis mættar með fimm leikmenn þannig að höfuðverkur þjálfara að velja byrjunarlið og skipta inná var úr sögunni :-)  Á síðasta móti enduðu stelpurnar í þriðja sæti á heimavelli, en þar bættist Ellen Alfa Högnadóttir inní hópinn en því miður leika stelpurnar án Berglindar sem sleit krossbönd.  Í liðið er kominn aftur Sara Mjöll Magnúsardóttir eftir dvöl sína í US and A, nánar tiltekið Los Angeles.

 


Fyrsti leikur stelpnanna var gegn Keflavík b en þær höfðu unnið sér sæti í A-riðli með góðri spilamennsku í B-riðli í annari umferð.  María Ben Jónsdóttir lék með Keflavík b að þessu sinni en hún hefur verið lykilmanneskja í A-liðinu.  Hittni beggja liða var slök í fyrsta leikhluta og stigaskorið lágt.  Snæfellsstúlkur voru að skapa sér mýmörg færi en voru stífar og stressaðar til að byrja með.  Snæfell leiddu 11-7 eftir fyrsta leikhluta þar sem Sara Mjöll hafði skorað 6 stig.  Í öðrum leikhluta kviknaði á Ellen Ölfu, hún raðaði niður þriggja og með henni dansaði Björg Guðrún.  Snæfellsliðið röðuðu niður körfunum á meðan ekkert gekk hjá heimastúlkum.  Snæfell sigruðu leikhlutann 16-3 og leiddu í hálfleik 27-10.  Í þriðja leikhluta byrjuðu heimastúlkur leikinn á þremur þriggja stiga körfum og staðan 27-19.  Snæfellsstúlkur með frábærri vörn svöruðu þeim körfum með 20-2 kafla og leiddu 47-21 eftir þrjá leikhluta.  Í fjórða leikhluta bættu Snæfellsstúlkur enn frekar við og var Ellen sjóðandi heit.  Allar stelpurnar lögðu sig fram og var Sara Mjöll að byrja sterkt í sínum fyrsta stúlknaflokksleik.  Allar nutu þær sín í góðu samspili og samstilltri vörn sem skilaði 51 stigs sigri 74-23.

 


 

Síðari leikur laugardagsins var gegn Keflavík a en athygli þar vakti Ingunn Erla sem er fædd 1995, gríðarlega efnilegur bakvörður þar á ferðinni.  Sara Mjöll opnaði leikinn með góðri körfu en 7 stig í röð frá heimastúlkum eftir mistök í sóknarleik Snæfells kom þeim yfir 7-2.  Stelpurnar bitu frá sér og leiddu eftir fyrsta leikhlutann 7-10 þar sem hittni beggja liða var slök.  Jafnt var á flestum tölum en Snæfell komust yfir 11-15 og leiddu svo í hálfleik 18-20 eftir að liðin höfðu skiptst á að leiða.  Þrjár þriggjastigakörfur í röð hjá Kelfavík komu þeim yfir 30-24 og má segja að þessi smá kafli hafi verið munurinn á liðunum.  Stelpurnar lentu átta stigum undir 36-28 eftir þriðja leikhluta og svo mest tólf í byrjun þess fjórða 40-28.  Ágætis barátta og varnarleikur sást hjá Snæfell en þær höfðu ekki erindi sem erfiði gegn sprækum Keflavíkurstúlkum að þessu sinni.  Lokatölur 51-39.

 


 

Fyrsti leikur sunnudagsins var gegn eina liðinu sem Snæfell höfðu ekki sigrað í vetur, en það voru Haukastúlkur.  Jafnræði var á milli liðanna í upphafi eftir að Snæfell höfðu leitt 2-7 og Haukar jafnað 9-9.  Góður varnarleikur Snæfells og fráköst skiluðu þeim 12-19 forystu eftir fyrsta leikhluta.  Haukar komust yfir í þrígang í öðrum leikhluta en með góðum þrist frá Ellen og góðri körfu frá Hrafnhildi þá leiddu stelpurnar 27-28 í hálfleik.  Í þriðja leikhluta var gríðarlega lítið skorað, Snæfell náðu að halda Haukastúlkum stigalausum í sex mínútur með frábærri vörn og leiddu 27-35, staðan eftir þrjá leikhluta var svo 31-37.  Snæfellsstúlkur sem engan skiptimann höfðu gáfust aldrei upp og voru að spila vel saman í sókninni, þær náðu tíu stiga forystu 34-44 og náðu alltaf að svara áhlaupum Hauka.  Síðustu fjögur stig leiksins voru Hauka og lokatölur 42-49.  Frábær sigur og sá fyrsti á Haukum í vetur.

 


 

Fjórði og síðasti leikurinn var gegn Njarðvíkurstúlkum sem höfðu tapað báðum leikjum sínum (fyrir Keflavík a og Haukum)  Fjórði leikurinn hjá stelpunum á tveimur dögum var farinn að segja til sín.  Frábær byrjun hjá stelpunum þar sem Ellen raðaði niður þristum og leiddu stelpurnar 14-7 eftir fyrsta leikhluta en þær komust í 27-7 þar sem Hrafnhildur var mögnuð í kringum körfuna.  Samspil stelpnanna var gott og alltaf voru þær tilbúnar að finna færi fyrir næstu.  Staðan í hálfleik 31-11.  Njarðvíkurstúlkur byrjuðu síðari hálfleikinn sterkt og náðu muninum niður í 34-18 en þá komur tvær þriggja frá Björgu og Snæfell komust aftur í góða forystu leiddu 44-26.  Fjórði leikhluti var jafn en lítið bensín var eftir hjá Snæfellsstúlkum sem sigldu lygnan sjó, lokatölur 58-43 í öruggum sigri og annað sæti Snæfellsstúlkna.

 


 

Stelpurnar stóðu sig gríðarlega vel á mótinu og var magnað að fylgjast með baráttu þeirra Hrafnhildar og Söru Mjallar undir körfunum.  Björg Guðrún kom boltanum vel upp völlinn oft á tíðum undir mikilli pressu og Ellen var mjög ógnandi fyrir utan.  Hildur Björg skilaði sínu hlutverki vel og saman var gaman að fylgjast með liðinu.  Framundan er undanúrslitaleikur í bikarnum gegn Keflavík og svo fjórða umferðin á Íslandsmótinu.

 


 

 

Stigaskor stelpnanna um helgina

 

>>>> 

Kefv.b

Kefv

Hauk

Njarðv

Samtals

Meðaltal

Hrafnhildur

5

8

15

16

44

11

Hildur

16

0

4

8

28

7

Björg

13

4

6

10

33

8,25

Ellen

21

10

8

9

48

12

Sara

19

17

16

15

67

16,75

Samtals>

74

39

49

58

>>>> 

>>>> 



 


3. febrúar:
- Karfa > Snæfell-Haukar.IE-deild kvenna. Fjárhúsið kl 19:15


4. febrúar:
- Karfa> Snæfell-Keflavík. IE-deild karla. Fjárhúsið. Kl 19:15


6. febrúar:
- Karfa > Minnibolti drengja. Fjölliðamót. Vestmannaeyjar.


7. febrúar:
- Karfa > Keflavík-Snæfell. Subwaybikar. Keflavík kl 15:00



01.02.2010 19:34

Snæfell safnar gömlum GSM

Snæfell safnar GSM símum og fartölvum

Íþróttafélagið Snæfell hyggst hefja nýstárlega fjáröflun sem felst í því að safna gömlum fartölvum og GSM símum sem ekki eru lengur í notkun á heimilum og hjá fyrirtækjum í bænum. Þá mun félagið einnig taka á móti stafrænum myndavélum, upptökuvélum og MP3 spilurum. Félagið fær greitt fyrir þau tæki sem safnast en þau eru flutt út í endurnýtingu.

       Fyrirtækið Græn framtíð annast flutning á tækjunum  til viðurkenndra endurvinnslufyrirtækja erlendis sem tryggja endurnýtingu á þeim með ábyrgum hætti. Heilir símar og fartölvur verða nýttir áfram í þróunarlöndum og íhlutir úr ónýtum tækjum verða nýttir í annan búnað. Þá verður spilliefnum úr þeim eytt með löglegum hætti.

       Félagar í Snæfelli munu á næstu dögum ganga í hús og safna búnaði sem er ekki lengur í notkun og vonast þeir til þess að íbúar í Stykkishólmi taki vel á móti þeim; styrki félagið og stuðli að því að gömul raftæki öðlist framhaldslíf.

                                                          

01.02.2010 19:27

Víkingur Ó tapaði fyrir Njarðvík

Tap gegn Njarðvík í æfingaleik

01. febrúar 2010

Víkingur Ó og Njarðvík áttust við í æfingaleik í gær sem fram fór í Reykjaneshöllinni Reykjanesbæ og lauk leiknum með 2-1 sigri heimamanna. Það voru hins vegar Víkingar sem komust yfir á 53. mínútu eftir markalausann fyrri hálfleik með glæsilegu marki Brynjars Kristmundssonar beint úr aukaspyrnu.

Á 79. mínútu jöfnuðu heimamenn með marki sem kom einnig eftir aukaspyrnu en þar var að verki Rafn Vilbergsson. Aðeins nokkrum mínútum síðar náðu heimamenn svo að knýgja fram sigurmark en þar var að verki Árni Þór Ármannsson. 

Lið Víkings: Ingólfur Kristjánsson í marki, Alfreð Hjaltalín og Dominik Baida bakverðir, Suad Begic og Tomas Luba miðverðir. Ólafur Hlynur Illugason og Brynjar Kristmundsson á vængjunum. Brynjar Gauti Guðjónsson og Þór Steinar Ólafs á miðjunni. Þorsteinn Már Ragnarsson sóknartengiliður. Og fremstur var Besim. 

Bekkur: Andri Freyr Hafsteinsson, Sindri Friðþjófsson, Jón Haukur Hilmarsson og Ejub Purisevic sjálfur. Einar Hjörleifsson markvörður og fyrirliði var veikur og Fannar Hilmarsson ekki leikfær.

HSH

Nafn:

Héraðssamband Snæfellsnes og Hnappadalssýslu

Farsími:

865-0294

Afmælisdagur:

24 september 1922

Heimilisfang:

Sólvellir 3. 350 Grundarfirði

Heimasími:

436-1635

Önnur vefsíða:

umfi.is

Kennitala:

620169-5289

Bankanúmer:

0191-15-370322

Tenglar

Flettingar í dag: 96
Gestir í dag: 32
Flettingar í gær: 1079
Gestir í gær: 143
Samtals flettingar: 902990
Samtals gestir: 96633
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 05:24:29
Flettingar í dag: 96
Gestir í dag: 32
Flettingar í gær: 1079
Gestir í gær: 143
Samtals flettingar: 902990
Samtals gestir: 96633
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 05:24:29