Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu

Færslur: 2010 Janúar

06.01.2010 09:04

Firmakeppni Snæfells í Körfu

BB og synir sigurvegarar Firmakeppni Snæfells 09/10

 

Hin árlega firmakeppni Snæfells fór fram 2. jan síðastliðinn og voru 9 lið mætt til leiks, reynt var að hafa aðeins meiri og skemmtilegri umgjörð þetta árið. Þótti það takast  nokkuð vel og nú ættu fleiri fyrirtæki að taka sig til og taka þátt á næsta ári. Flott væri ef liðin tækju Matta og Draugabanana til fyrirmyndar sem og Íslenska Gámafélagið, með því að mæta allir í eins búningum. Það setti skemmtilegan svip á leik þessara liða.



Nánar á Snæfell.is

05.01.2010 15:56

ULM 2002


Settar hafa verið nokkrar myndir frá ULM 2002 inn í myndaalbúm


05.01.2010 15:23

Ferðafélag Íslands fréttir

Eitt fjall á viku - nýársverkefni Ferðafélags Íslands

Ferðafélag Íslands hefur hrundið af stað verkefninu ,,Eitt fjall á viku" en í verkefninu verður gengið á eitt fjall á viku allt árið 2010 og því samtals 52 fjöll á árinu. Meðal annars verður gengið á öll fjöll í nágrenni Reykjavíkur en einnig verður gengið á fjöll víða um land. 

,,Við viljum með þessu hvetja fólk til að hreyfa sig og stunda útiveru og fjallamennsku en fjallgöngur eru ein allra besta likamsrækt sem völ er á," segir Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri FÍ sem verður fararstjóri í öllum ferðunum 52.  Við göngum á bæði létt fjöll en einnig á sum af stærri fjöllum landsins og má nefna sem dæmi að við göngum t.d. á Helgafell, Úlfarsfell og Grímarsfell en einnig á Heklu, Snæfellsjökul og Hvannadalshnúk.

Undirbúningsfundur fyrir verkefnið verður haldinn fimmtudaginn 7. janúar kl. 20 í sal FÍ Mörkinni 6 og fyrsta fjallgangan verður sunnudaginn 10. janúar en þá verður gengið á Helgafell.

Á undirbúningsfundinum verður meðal annars farið yfir dagskrá ársins en búið að að velja öll fjöll og ákveða dagssetningar en fjallgöngurnar skiptast niður á miðvikudaga, fimmtudaga, laugardaga og sunnudaga eftir árstíðum.

Hópurinn sem gengur á fjöllin 52 verður aldrei stærri en 52 en ef þátttaka verður mikil þá verða myndaðir fleiri hópar.    

Þrettándagleði í Grafarvogi - Ferðafélag barnanna

Hin árlega þrettándagleði Grafarvogsbúa verður haldin miðvikudaginn 6. janúar.  Ferðafélag barnanna mætir á svæðið og tekur þátt í dagskránni sem er eftirfarandi:  kl. 17: kakó- og kyndlasala í Hlöðunni, skólahljómsveit Grafarvogs leikur létt lög. kl. 17.30 Blysför undirbúin við Hlöðuna; álfakóngur, Grýla, jólasveinar og aðrar kynjaverur sjá um að kveikja í brennunni. kl. 18. Gengið aftur niður að Hlöðunni þar sem verður fjöldasöngur og önnur skemmtilegheit. Fólk er hvatt til að taka með sér restar af flugeldum og skjóta upp á sérmerktu svæði.  Bílastæði við Gylfaflöt og Bæjarflöt.

Nýársglaðningur FÍ til félagsmanna

Ferðafélag Íslands hefur náð hagstæðum samningum við Cintamani og býður nú öllum félagsmönnum sínum glæsilega Cintamani peysu úr techno - strechts með merki FÍ og íslenska fánanum í saumað á kr. 10.000 en söluvirði slíkrar peysu úr verslun er kr. 22.000.  Aðeins er um einn lit að velja, sérstakan Ferðafélagslit, fallega blár. Félagsmenn geta pantað peysu á skrifstofu félagsins fyrir 21. janúar.  Hægt verður að máta stærðir á skrifstofunni, Mörkinni 6 frá og með 7.janúar.

Allir starfsmenn Valitors í Ferðafélag Íslands

Allir starfsmenn Valitors / Visa Island gengu í Ferðafélag Íslands nú fyrir áramótin, alls rúmlega 100 starfsmenn. Um var að ræða nýársgjöf fyrirtækisins til starfsmanna en FÍ hafði sl. haust og nú fyrir jólin kynnt jákvæðan jólapakka þar sem fyrirtækjum og einstaklingum var boðið að ganga í félagið en árgjaldið í FÍ 2010 er kr. 5.800 og er þá árbókin innifalin og aðgangur að öllu starfi félagsins og afsláttur í ferðir og skála og fjölda útivistarverslana. Að sögn forsvarsmanna Valitors þótti þeim þetta tilvalin hugmynd að færa starfsmönnum jákvæðan og uppbyggilegan nýársglaðning og stuðla meðal annars að hreyfingu og heilbrigðum lífsstíl starfsmanna. Nánar verður sagt frá þessari nýársgjöf Valitors á heimasíðu FÍ á næstunni en Valitor hefur verið samstarfsaðili FÍ undanfarin ár og styrkt meðal annars skiltagerð félagsins á Laugaveginum, Fimmvörðuháls og við Öræfajökul.

Hádegisgöngur FÍ halda áfram

Hádegisgöngur Ferðafélags Íslands sem hófust 1. desember sl. halda nú áfram og eru næstu gönguferðir þriðjudaginn 12. Janúar kl. 12 frá Árbæjarsundlaug og fimmtudaginn 14. Janúar kl. 14 frá baðaðstöðunni í Nauthólsvík.  Um er að ræða léttar og hressandi gönguferðir við allra hæfi og þátttaka ókeypis og allir velkomnir.  Gönguferðirnar taka 60 - 90 mínútur og eru þátttakendur hvattir til að mæta vel búnir.

04.01.2010 21:17

Ferðasjóður ÍSÍ

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands

Umsóknarfrestur í Ferðasjóð íþróttafélaga er til miðnættis 11. janúar

Aðildarfélögin hvött til þess að kynna sér sjóðinn gaumgæfilega


Umsóknarfrestur í Ferðasjóð íþróttafélaga, vegna keppnisferða á mót á nýliðnu ári, þ.e. 2009, rennur út á miðnætti 11. janúar næstkomandi. Aðildarfélög eru hvött til þess að kynna sér sjóðinn gaumgæfilega.

Til að komast inn á umsóknarsvæðið þarf að smella á kassann sem merktur er Ferðasjóður á heimasíðu ÍSÍ.

Öll íþrótta- og ungmennafélög innan vébanda ÍSÍ geta sótt um styrk úr sjóðnum vegna ferða á mót sem fyrirfram hafa verið skilgreind sem styrkhæf mót. Leiðbeiningar og svör við algengum spurningum varðandi sjóðinn er að finna á umsóknarvefnum.

ÍSÍ hefur haft þá starfsreglu varðandi styrki til boltagreina að Íslandsmót innanhúss og utanhúss eru styrkhæf.

Ferðasjóðnum var úthlutað 60 milljónum vegna ársins 2009.

Nánari upplýsingar má fá hjá Íþrótta- og Olympíusambandi Íslands.

04.01.2010 19:28

Karfa Subway bikarinn

Subwaybikarinn: Leikdagar í 8-liða úrslitum


Subwaybikar karla

Sunnudagur 17. janúar
Breiðablik · ÍR kl. 17.00 - Smárinn
Snæfell · Fjölnir kl. 19.15 - Stykkishólmur
Tindastóll · Grindavík kl. 19.15 - Sauðárkrókur

Mánudagur 18. janúar
Keflavík · Njarðvík kl. 19.15 - Toyoyta-höllin

Subwaybikar kvenna

Laugardagur 16. janúar
Njarðvík · Þór Ak. kl. 15.00 - Njarðvík
Fjölnir · Laugdælir kl. 16.00 - ÍM Grafarvogi
Snæfell · Haukar kl. 17.00 - Stykkishólmur

Sunnudagur 17. janúar
Keflavík · Hamar kl. 19.15 - Toyota-höllin

04.01.2010 19:03

Nýr þjálfari hjá UMFG

Mikið að gerast

Góðan daginn kæru hálsar og gleðilegt nýtt ár.

Það er búið að vera mikið í gangi undanfarna daga. Við vorum að spila í gær á móti Fjölni og tapaðist sá leikur 6-11. Við vorum einfaldlega sprungnir á limminu. Það er nokkuð augljóst að nú þurfum við að taka á því og lýsi ég hér með að undirbúningstímabil okkar er hafið. Á næstu dögum munum við koma með æfingaprógram sem samanstendur af útihlaupum, útiæfingum, inniæfingum og lyftingum til að koma okkur í gírinn fyrir næsta vor. Nýr yfirþjálfari hefur verið kynntur til sögunnar en hann skrifaði loksins undir í gær eftir langar og strangar samningaviðræður. Það tók langan tíma að koma honum í skilning um að við hefðum ekki efni á að kaupa 17 portúgalskar fylgdardömur eins og hann krafðist þannig að hann ákvað að slá til og gera þetta frítt.

Yfirþjálfari Meistaraflokks Grundarfjarðar er enginn annar en Tryggvi Hafsteinsson öðru nafni T-Bone sem mun sigla skútunni á næstu leiktíð og jafnvel lengur. Tryggvi mun verða spilandi þjálfari þar sem að hann er líka hrikalega góður útileikmaður eins og hann segir sjálfur frá. Tryggvi er ættaður úr Grundarfirði og sleit fyrstu takkaskónum sínum hérna á malarvellinum í gamla daga. Hann hefur nánast allan sinn meistaraflokksferil spilað með nágrönnunum í Víkingi Ólafsvík en hefur nú ákveðið að söðla um og gerast spilandi þjálfari hjá uppeldisklúbbnum sínum. Velkominn heim Tryggvi.

Honum til halds og trausts verða þeir Tómas Freyr Kristjánsson og Jón Frímann Eiríksson en þeir hafa nánast enga reynslu af svona við hliðina á T-Bone. Ég hef fulla trú á að þetta verði magnað. Amk þangað til annað kemur í ljós.

Ég treysti því að leikmenn sýni Tryggva þá virðingu sem hann á skilið og fari í einu og öllu eftir fyrirmælum hans.


Fyrir hönd stjórnar.
Tommi

04.01.2010 18:35

Snæfellingur og Söðulsholt með folaldasýningu

Folaldasýning í Söðulsholti

Laugardaginn 9.Janúar kl. 13.00 ætlum við í Söðulsholti í samstarfi við Snæfelling að vera með folaldasýningu í Söðulsholti.. Hver skráning kostar 1000 kr, hægt er að skrá hjá Einari í síma 8993314 eða hafa samband á einar@sodulsholt.is. Sýningin er opin öllum.

Gefa þarf upp nafn,lit, fæðingarstað,föður, móðir, ræktanda og eiganda. Keppt verður í kynjaskiptum flokkum.  Skráningargjald greiðist inn á 0354-26-4027 og kt 540999-2019.
Síðasti skráningardagur er fimmtudaginn 7.janúar Aðgangseyrir er 1000 kr og innifalið í því eru kaffiveitingar, frítt fyrir 12 ára og yngri.

02.01.2010 22:12

Nýr leikmaður hjá Snæfell


Sherell Hobbs hefur tekið tilboði Snæfells um að leika með kvennaliðinu eftir áramót þar sem Kristen Green þurfti frá að hverfa vegna meiðsla.  Sherell Hobbs lék með Auburn háskólanum við góðan orðstýr og voru tvær bestu úr hennar liði færðar strax í WNBA.  Hobbs spilaði í sterku liði Auburn og er fjölhæf, spilar flestar stöður, sækir hart að körfu og er fín skytta.  Sherell Hobbs er fantavarnarmaður sem mun hægt að sígandi verða jafn góður félagi og Kristen Green var, er og verður. Tímasetning á komu Sherell er í loftinu en stefnt er á að hún komi hingað 3-5 janúar. Snæfellsstúlkur eiga leik við KR þann 9. janúar sem verður hennar fyrsti leikur.

HSH

Nafn:

Héraðssamband Snæfellsnes og Hnappadalssýslu

Farsími:

865-0294

Afmælisdagur:

24 september 1922

Heimilisfang:

Sólvellir 3. 350 Grundarfirði

Heimasími:

436-1635

Önnur vefsíða:

umfi.is

Kennitala:

620169-5289

Bankanúmer:

0191-15-370322

Tenglar

Flettingar í dag: 96
Gestir í dag: 32
Flettingar í gær: 1079
Gestir í gær: 143
Samtals flettingar: 902990
Samtals gestir: 96633
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 05:24:29
Flettingar í dag: 96
Gestir í dag: 32
Flettingar í gær: 1079
Gestir í gær: 143
Samtals flettingar: 902990
Samtals gestir: 96633
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 05:24:29