|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
Færslur: 2009 Desember03.12.2009 09:17Víkingur hafði beturVíkingur Ól - Grundarfjörður 7-4Jæja... Grannaslagurinn búinn. 7-4 tap og maður er hálf svekktur. Við fengum fullt af fínum færum en Einar nokkur Hjörleifsson markvörður Víkinga var í þvílíku fanta formi og hleypti engu inn. Tryggvi setti 3 mörk og Ragnar Smári 1Leikurinn byrjaði ágætlega. Víkingar komust í 1-0 en Ragnar Smári jafnaði fljótlega eftir það. Við reyndum að halda stöðum og vera fyrir aftan boltann. Víkingar komust í 2-1 en fljótlega jafnaði Tryggvi. Svo komust Víkingar í 3-2 og aftur jöfnum við minnir mig. Amk var staðan í hálfleik 4-3 Víkingum í vil. Í seinni hálfleik héldum við skipulaginu og það leið langur tími í næsta mark. Ragnar Smári fékk rauða spjaldið og við þurftum að vera einum færri í amk 2 mínútur eða þangað til að við fengum mark á okkur. Það var nú bara þannig að við vorum einum færri í c.a. 10 sek því að Víkingur komst í 5-3. Og svo strax uppúr því í 6-3 og róðurinn orðinn þungur fyrir Grundarfjörð. En Tryggvi náði að klóra aðeins í bakkann og lagaði stöðuna í 6-4 en lengra komumst við ekki. Víkingarnir áttu svo síðasta orðið og leikurinn endaði 7-4. Við vorum alveg vel inní þessum leik og áttum fullt af fínum færum. Þeir voru meira með boltann en við beittum skyndisóknum og fengum flest okkar færi úr því. Svo var það bara vendi punkturinn í kringum þetta rauða spjald að við fáum á okkur 2 mörk á einni mínútu og dagskránni þannig séð lokið. Við göngum samt stoltir af velli og reynum bara að gera betur næst. Við þökkum Víkingum fyrir leikinn og óskum þeim til hamingju með sigurinn. Skrifað af Tommi 02.12.2009 14:45Bón og þrif hjá SnæfellBón og þrif Snæfells endurtekin 12.desember
Leikmenn og meistaraflokka Snæfells í körfunni stóðu í ströngu á laugardaginn við þrif og bón á bílum bæjarbúa og höfðu ekki undan þrátt fyrir að vera með öll þrjú rýmin undir hjá Dekk og Smur og Áhaldahúsi bæjarins. Hægt var að fá þvott, bón og alþrif og þegar kíkt var við á Nesveginum voru bílar á öllum stöðvum og leikmenn og stjórnarmenn að taka þá í gegn. Bíll framkvæmdastjóra Héraðsmeistaranna vakti sérstaka athygli því það kom í ljós við þvottinn að bíllinn er í raun grænn en ekki brúnn. Þegar allir voru búnir að ljúka sinni vakt og þrifum þar með lokið í þetta skiptið var búið að taka 27 bíla í gegn. En þar sem enn var eftirspurn eftir þrifum og bóni á bílum þá ætla meistaraflokkarnir að bjóða aftur upp á bílaþrifin laugardaginn 12.desember og ná þá að taka þá sem urðu útundan núna og einnig þá sem ekki voru heima á laugardaginn og gátu því ekki nýtt sér tilboðin. Þetta var í sjálfsögðu allt gert til fjáröflunar meistaraflokkanna og tókst vel sem slíkt en svona hópvinna er ekki síður til að efla móralinn og þjappa hópunum saman um leið og hún eykur tengslin við íbúa og stuðningsfólk sem fær möguleika á að styrkja starfið og fá um leið eitthvað í staðinn. Skrifað af Garðar 02.12.2009 14:44Körfuboltaleiknum í kvöld frestaðLeik Snæfells og Hauka frestað
Leik Snæfells og Hauka í Iceland Expressdeild kvenna
sem leika átti í kvöld, hefur verið frestað vegna veðurs. Leikurinn
hefur verið færður til miðvikudagsins 9.desember kl.19:15.
Skrifað af Garðar 02.12.2009 14:42Jólaball KnattspyrnustarfsinsFótboltasamtarfið á Snæfellsnesi
Fótboltasamstarfið á Snæfellsnesi ætlar í samstafi við strákana í hljómsveitinni Matti IDOL og Draugabanarnir að halda ,, jólaball" fyrir fótboltakrakkana á Snæfellsnesi. Það kostar ekkert inn og vonumst við til þess að sjá sem flesta! Staður og stund: Fimmtudagur 3. desember 2009 Samkomuhúsið í Grundarfirði 5. flokkur og yngri mæta kl 18:30 og verða til 20:00 4. 3. og 2. fl mæta kl 20:30 og verða til kl 22:00 Draugabanarnir taka ekkert fyrir að spila fyrir krakkana og þökkum við þeim kærlega fyrir framtakið. Skrifað af Garðar 02.12.2009 14:20Nágrannaslagur í kvöldÍ kvöld spila Grundfirðingar og Ólsara í Futzal í Íþróttahúsinu í Ólafsvík. Leikurinn hefst kl. 19 og er eins og áður sagði í íþróttahúsinu í Ólafsvík Ljóst er að hér verður hörkuleikur en nokkrir af Grundfirðingunum sem hafa spilað með Víking síðustu ár eru komnir heim og eru tilbúnir að leggja allt sitt fram gegn gömlum félögum Hvetjum alla til að mæta í Ólafsvík og fylgjast með slagnum í kvöld Skrifað af Garðar |
Eldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 96 Gestir í dag: 32 Flettingar í gær: 1079 Gestir í gær: 143 Samtals flettingar: 902990 Samtals gestir: 96633 Tölur uppfærðar: 19.5.2012 05:24:29 |