Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu

Færslur: 2009 Nóvember

17.11.2009 19:23

Dregið í bikarkeppni Blaksambandsins

Í hádeginu var dregið í riðla í Bridgestone bikarnum. Mikil spenna ríkti í loftinu því þegar verið er að draga í riðla getur allt gerst. Arngrímur Þorgrímsson, framkvæmdastjóri Betra Grips sá um að draga.

 

Fyrst var dregið í A riðil karla en þar voru fastir deildarmeistarar Þróttar Reykjavíkur. Upp úr hattinum komu Umf. Hrunamenn, Hamar og UMFGrundarfjarðar. Þá var það orðið ljóst að KA fékk í sinn riðil HK, Stjörnuna og Þrótt Nes en síðastnefnda liðið er eina liðið sem er í 2. deild karla í þessum riðli. Það verður því spennandi keppni í báðum þessum riðlum en efsta liðið fer beint í undanúrslit.


1 umferð verður spiluð 28 og 29 nóv. í Fylkishöllinni

15.11.2009 11:38

Gott gengi hjá yngri flokkum

8. flokkur stúlkna fóru úr C-riðli í B-riðil

11.flokkur drengja upp um riðil

8.flokkur drengja héldu sæti sínu.

Tveir sigrar og tvö töp hjá stúlknaflokk

Síðustu helgi fór fram 2.umferð  hjá yngri flokkunum í körfunni.
Krökkunum gekk mjög vel í þessari umferð og má lesa nánar um gengi þeirra
á síðu Snæfell.

HSH óskar þeim til hamingju með árangurinn.


15.11.2009 11:35

Snæfell -FSU.

Snæfell sigraði Fsu örugglega


Snæfell kláraði leikinn örugglega 107-74.

Hjá Snæfelli var breiddin mikil og var Pálmi stigahæstur með 19 stig og 8 frák. Hlynur 16 stig og 13 frák. Jón Ólafur og Emil Þór 15 stig hvor. Sean Burton 13 stig 6 frák og 6 stoð. Páll Fannar 10 stig. Hjá Fsu var Brynjar Karl ferskur og setti 20 stig. Dominic Baker 18 stig og 7 frák. Corey Lewis 12 stig og 7 frák. Aleksas Zimnicks 11 stig og 9 fráköst.

15.11.2009 11:29

Grundarfjörður tapaði fyrir Fjölni.

Íslandsmótið í Futsal 

Fjölnir 6 - Grundarfjörður 5 þannig fór um sjóferð þá. Við leiddum 4-1 í hálfleik en sprungum á úthaldinu. Hemmi með 3 mörk og Heimir með 2. Við þökkum kærlega fyrir stuðninginn en ófáir Grundarar voru á svæðinu og studdu vel við bakið á okkur. Baldur og trommusveitin stóðu sig frábærlega. Takk fyrir.

13.11.2009 13:38

Golfklúbburinn Mostri 25 ára í dag


Mostri 25 ára í dag.

HSH óskar Mostrafélögum til hamingju með daginn.

adalmynd


13.11.2009 10:16

Víkingur styrkir leikmannahópinn.

Pólverjinn Tomasz Luba gekk í dag til liðs við Víking en samningur þess efnis var undirritaður nú síðdegis. Tomasz sem er 23. aldursári kemur frá Reyni Sandgerði þar sem spilaði við góðann orðstír. Tomasz sem er varnarmaður kom til Reynismanna fyrir tímabilið og spilaði 19 leiki og skoraði í þeim eitt mark. Áður en hann gekk til liðs við Sandgerðinga spilaði hann með LKS Lomza í Póllandi.


Tomasz er væntanlegur til Ólafsvíkur seinna í þessum mánuði þar sem hann mun hefja æfingar með liðinu.

Tekið af vef víkings

12.11.2009 19:39

NM í frjálsum á Akureyri í ágúst

Norðurlandamót í frjálsum íþróttum á Akureyri
Frjálsíþróttasamband Íslands hefur skrifað undir samstarfssamning við UMSE og UFA um rekstur og framkvæmd á Norðurlandamóti ungmenna U20. Mótið mun fara fram á Frjálsíþróttavelli Akureyrar, þar sem Landsmót UMFÍ fór fram fyrr í sumar, dagana 28. - 29. ágúst á næsta ári.

Mótið var haldið í borginni Vasaa í Finnlandi fyrr á árinu og voru keppendur um 270 talsins. Það má því búast við 250 erlendum gestum á Frjálsíþróttavöll Akureyrar á næsta ári.
 
Norðurlandamót ungmenna U20 var síðast haldið á Íslandi árið 2000 og þá í Borgarnesi, en síðan þá hefur reglum mótsins verið breytt og það einungis haldið á 8 brauta völlum, líkt og á Akureyri og í Laugardalnum.
 
Frjálsíþróttasambandið gegnir forystuhlutverki í samstarfi Norðurlandanna á árinu 2010. Norðurlandaþing frjálsíþróttasambanda verður haldið þann 19. mars næstkomandi á Íslandi, sem og fundur framkvæmdastjóra frjálsíþróttasambanda Norðurlandanna, en hann fer fram næsta haust.

12.11.2009 15:26

Fundur með stjórn Reynis.

Undir Skrár hér til hægri er fundargerð 9 fundar stjórnar HSH.
Fundurinn var haldinn á Hótel Hellissandi og var að hluta til með stjórn Reynis .

Fundurinn var mjög ánægulegur og fræðandi fyrir báða aðila.

12.11.2009 15:24

Snæfell tapaði fyrir Keflavík

Snæfell lá í Keflavík

Snæfellsstúlkur voru mættar stemmdar í leik við Keflavík í Toyotahöll þeirra Keflvíkinga.  Lið heimastúlkna hafði verið að styrkjast undanfarna daga og var innanborðs nýr útlendingur sem gaf liðinu mikið ásamt Bryndís Guðmundsdóttur.  Snæfellsstúlkur voru staðráðnar að leggja allt í sölurnar fyrir stigin tvö sem í boði var en þær hreinlega hlupu á vegg í fyrsta leikhluta þegar að þær mættu gríðarlega ákveðinni vörn Keflavíkur og leiddu þær 23-5 að honum loknum.   

 

Gunnhildur Gunnarsdóttir lék best Snæfellinga í kvöld og skoraði 11 stig í röð og bættu þær Hildur Björg 5 stigum, Sara Sædal og Berglind tveimur stigum og staðan orðinn 31-22.  Reynsla leikmanna Keflavíkur tók þá við og settu þær niður góð skot eftir fínan undirbúning og leiddu þær 42-24 í hálfleik.  Í síðari hálfleik náðu stelurnar muninum niður í 15 stig en þá bættu Keflavík bara við og sigruðu örugglega 83-56.   

 

Snæfellsstelpurnar náðu ekki að koma með í leikinn þann kraft og baráttu sem þær innihalda og áttu þær því engin svör við kraftinum sem Keflavík hóf leikinn með.  Liðið er ásamt þremur öðrum liðum með tvo sigra í deildinni og á einn leik eftir í fyrri umferðinni. Sá leikur er gegn toppliði Hamarsstúlkna sem koma í Fjárhúsið miðvikudaginn 18. nóvember og hefst hann klukkan 19:15. Stelpurnar þurfa að halda áfram að bæta leik sinn og umfram allt berjast á öllum vígstöðum á vellinum.  

 

Stigaskor Snæfellstúlkna: Kristen Green 18 stig og 7 fráköst, Gunnhildur Gunnarsdóttir 17 stig, Berglind Gunnarsdóttir 6 stig, Hildur Björg Kjartansdóttir 5, Hranfhildur Sif Sævarsdóttir 3 stig og 10 fráköst, Helga Hjördís Björgvinsdóttir, afmælisstúlkan Sara Sædal Andrésdóttir og Rósa Indriðadóttir 2 stig og Björg Guðrún Einarsdóttir 1 stig.  

11.11.2009 15:43

Subwaybikar 16 liða úrslit


 

Leikið verður helgina 5. til 7. desember.

Konur
Grindavík b - Njarðvík
Haukar - Valur
Laugdælir - Stjarnan
Keflavík b - Þór Ak.
Skallagrímur - Fjölnir
Keflavík - Grindavík
KR - Hamar

Snæfell situr hjá

Karlar
Breiðablik - ÍBV
Skallagrímur - Fjölnir
Grindavík - Ármann
Laugdælir - Tindastóll
Valur - Keflavík
Snæfell - Hamar
Hrunamenn - Njarðvík
KFÍ - ÍR

10.11.2009 13:13

Mikil félagaskipti yfir til UMFG

Futsal hefst á laugardaginn

Fyrsti leikur UMFG í Futsal er á laugardaginn kl 14:00 í Grafarvoginum gegn Fjölni.

Nú þegar hafa 13 nýir leikmenn verið keyptir og gerð félagaskipti yfir í UMFG



1 Aðalgeir Gestur Vignisson Snæfell Grundarfjörður 20.02.2010
2 Heimir Þór Ásgeirsson FH Grundarfjörður 23.10.2009
3 Hermann Geir Þórsson Víkingur Ó. Grundarfjörður 20.02.2009
4 Ingi Björn Ingason Snæfell Grundarfjörður 04.11.2009
5 Ingólfur Örn Kristjánsson Víkingur Ó. Grundarfjörður 20.02.2010
6 Jón Frímann Eiríksson Snæfell Grundarfjörður 20.02.2010
7 Przemyslaw Andri Þórðarson Snæfell Grundarfjörður 20.02.2010
8 Ragnar Smári Guðmundsson Víkingur Ó. Grundarfjörður 20.02.2010
9 Rúnar Geirmundsson Snæfell Grundarfjörður 04.11.2009
10 Tomasz Weyer Snæfell Grundarfjörður 04.11.2009
11 Tómas Freyr Kristjánsson Snæfell Grundarfjörður 20.02.2010
12 Viktor Örn Jóhannsson Snæfell Grundarfjörður 04.11.2009
13 Víkingur Hermann Guðjónsson Snæfell Grundarfjörður 20.02.2010

09.11.2009 23:57

Auðvelt hjá Snæfell

Snæfell vann Álftanes 122-49

Álftanes tók á móti Snæfelli í Subwaybikarnum á Álftanesi. Álftanes leikur í 2. deild. Snæfell átti fyrstu stigin og voru 0-3 yfir í smátíma. Álftanes jafnaði 4-4 en leikur liðanna var stirður fyrst um sinn á meðan drengirnir voru að hitna. Snæfell fór  að sýna yfirburði sína fljótlega og komust í 4-11 og svo 9-28 áður en flautað var út úr fyrsta hluta.

 

Sean Burton var að spila sinn fyrsta leik fyrir Snæfell og var að fá að finna taktinn eftir aðeins sólarhringsdvöl á klakanum. Allir fengu að spreyta sig hjá Snæfelli og voru flestir í gírnum. Hjá Álftanes voru allir að spila einnig en máttu þeir sín lítils gegn sterku liði Snæfells sem voru komnir í 16-45 þegar seig á annan hluta. Snæfell leiddi í hálfleik 22-59.

 

Í seinni hálfleik sigu Snæfellingar lengra og lengra og voru yfir 33-88 eftir þriðja hluta. Þeir rufu svo 100 stiga múrinn í stöðunni 43-103. Svenni átti 2 góðar troðslur og átti svo Sean góða sendingu í einhverja loftfimleikatakta Sveins Arnars sem hefði verið svakaleg ef það hefði tekist. Ekki þarf að hafa fleiri orð um þetta en að Kristján Pétur setti lokaflautukörfu og Snæfell vann 49-122.

 

 Allir spiluð vel og mikið en ekki var unnt að halda utan um tölfræði vegna gríðalegrar skrifinsku sem hefði skapast. En þess má geta að Rafn Jóhannsson stýrði Snæfelli til stórsigurs í sínum fyrsta leik sem þjálfari í fjarveru Inga Þórs sem tók út leikbann og hafði hann á orði að pressa væri kominn á menn eftir svona gríðalega góða frammistöðu.

09.11.2009 23:27

Grundarfjörður vann Aftureldingu

Loksins vöknuðu Grundfirðingar. Allt annað var að sjá til Grundfirðinga núna heldur en í síðasta leik. Þeir tóku á móti Aftureldingu í 2 deildinni í blaki og gáfu heimamenn aldrei neitt eftir og unnu 3-0 (25-15  25-20  25-23)
Grundfirðingar byrjuðu leikinn ákveðnir í að vinna. Gestirnir voru þó ekki komnir til tapa og í fyrstu hrinu var jafnt upp að 12-12 en þá skildi í milli og heimamenn unnu hrinuna nokkuð létt. í annari hrinu var nokkurt stress hjá gestunum og voru þeir að gera klaufa stig. En hrinan var skemmtileg og sáust nokkur tilþrif hjá leikmönnum bæði í sókn og vörn. Þriðja hrinan var nokkuð kaflaskipt þó Grundfirðingar höfðu ávalt forystu. Afturelding náði að jafna í 23 - 23 en þá hleyptu heimamenn þeim ekki lengra og kláruðu leikinn með 2 síðustu stigunum.
Að vanda var fullt hús og frábær stemming en um 110 áhorfendur voru á pöllunum og studdu vel við sína menn. Sérstaklega var gaman að sjá gesti úr nágranna bæjum komna til að kvetja sitt lið.

HSH

Nafn:

Héraðssamband Snæfellsnes og Hnappadalssýslu

Farsími:

865-0294

Afmælisdagur:

24 september 1922

Heimilisfang:

Sólvellir 3. 350 Grundarfirði

Heimasími:

436-1635

Önnur vefsíða:

umfi.is

Kennitala:

620169-5289

Bankanúmer:

0191-15-370322

Tenglar

Flettingar í dag: 92
Gestir í dag: 30
Flettingar í gær: 1079
Gestir í gær: 143
Samtals flettingar: 902986
Samtals gestir: 96631
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 05:03:28
Flettingar í dag: 92
Gestir í dag: 30
Flettingar í gær: 1079
Gestir í gær: 143
Samtals flettingar: 902986
Samtals gestir: 96631
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 05:03:28