|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|||||
Færslur: 2009 Október16.10.2009 13:13Snæfell- Njarvík kl. 15 á morgun![]() Skrifað af Garðar 15.10.2009 21:25Uppskeruhátíð VíkingsLokahóf Víkings Ólafsvík 2009Lokahóf Víkings var haldið með pomp og prakt laugardagskvöldið 3 október í Félagsheimilinu Klifi Ólafsvík. Útnefndir voru efnilegustu- og bestu leikmennirnir auk þess sem sem markhæsti leikmaður liðsins fékk viðurkenningu. Veislustjóri kvöldsins var Gunnar Örn Arnarson og á boðstólunum voru dýrindis krásir sem reiddar voru fram af sælkerakokkunum Alla Netó, Lalla Löggu og Stebba Fera(Furu:)Efnilegsti leikmaður Víkings árið 2009 var kjörinn Brynjar Gauti Guðjónsson en auk þess að spila með Víkingum tók Brynjar þátt í hinum ýmsu verkefnum með U-18 landsliði Íslands þar sem hann var fastur byrjunarliðsmaður. Bestur að mati leikmanna Víkings var kosinn Tryggvi Hafsteinsson sem spilaði vel í hægri bakvarðarstöðu liðsins á liðnu sumri. Tryggvi sem undanfarin sumur hefur glímt við þráðlát meiðsli hélt sér heilum í allt sumar og spilaði nær alla leiki liðsins. Markahæsti leikmaður liðsins var svo Fannar Hilmarsson með 6 mörk og fékk hann viðurkenningu fyrir þann glæsilega árangur. Ekki er hægt að segja að Fannar sé að upplagi framherji en hann fyllti svo sannarlega í skarð Josip Marosevic sem yfirgaf liðið á miðju sumri. Í ræðu formanns (Jónas Gestur) kom svo fram að nokkrir leikmenn liðsins hefðu skrifað undir nýja samninga en þeir eru; Þorsteinn Már Ragnarsson, Brynjar Gauti Guðjónsson og Fannar Hilmarsson. Það er nokkuð ljóst að mikilvægt er að liðið haldi sem flestum leikmönnum frá liðnu sumri til að byggja liðið upp að nýju og koma því upp um deild sem allra fyrst. Undirritaður vill svo þakka öllum ánægjulegar stundir og samstarf á sumrinu sem nú er liðið. Gunnar Örn Arnarson ![]() Tryggvi,Brynjar og Fannar taka við viðurkenningum ![]() ![]() Tryggvi og Guðný tóku lagið Jónas fékk derhúfubikarinn fyrir flottasta rauða spjaldið. ![]() Þessir vildu ekki myndatöku. Tapliðið í Ungir vs. Gamlir ![]() Skrifað af Garðar 15.10.2009 21:22Stelpurnar unni Val![]() Snæfellstúlkur sigruðu sinn fyrsta leik á tímbilinu í kvöld þegar þær lögðu Val 59-63 í jöfnum og skemmtilegum leik. Valur hafði yfir eftir fyrsta hluta 17-12 en Snæfell létu ekki buga sig strax í byrjun og jöfnuðu 19-19 og náðu að vinna annan leikhluta 16-17 en Valur leiddi í leikhléi 33-29. Kristen Green ásamt þeim Gunnarsdætrum Berglindi og Gunnhildi voru atkvæðamestar í fyrri hálfleik.
Skrifað af Garðar 15.10.2009 21:20Snæfell lagði Hamar![]() Hlynur var með 21 stig og 17 fráköst. Fram fór fyrsti leikurinn í Fjárhúsinu þessa leiktíð og voru gestir Snæfells að þessu sinni nýliðar Hamars frá Hveragerði. Dæmendur voru þeir sveigjanlegu Rögnvaldur Hreiðarsson og Jakob Árni Ísleifsson. Hamarsmenn byrjuðu með látum og héldu Snæfelli niðri en voru ekki að gera stóra hluti í sókninni sálfir og allt byrjaði í járnum og lítilli hittni. En eftir hálfleikinn komu Snæfellingar ferskari inná og settu sig í betri gír í sókninni og kláruðu leikinn 90-58.
Skrifað af Garðar 14.10.2009 16:18snæfell spáð silfri Snæfellingum
er spáð silfursætinu í Iceland Express-deild karla í körfuknattleik á
komandi leiktíð, en Snæfell verður hins vegar í næstneðsta sæti Iceland
Express-deildar kvenna ef marka má spá þjálfara, fyrirliða og
forráðamanna liðanna í deildunum. Snæfellsliðin eru bæði undir stjórn
hins margreyndar Inga Þórs Steinþórssonar, sem á von á viðburðarríkum
vetri. Sportvarpið hitti á Inga Þór á fréttamannafundi KKÍ í dag og
viðtalið við hann má nálgast með á linkinum hér fyrir neðanhttp://www.sport.is/fullfrettir.php?idnews=15175 Skrifað af Garðar 12.10.2009 19:45Karfa 8 fl stúlkna![]() Stúlkurnar léku á Ásvöllum í Hafnarfirði á laugardaginn. Spilið gekk oft mjög vel hjá þeim en þær þurfa samt að bæta sig í sendingum, skotum og ákveðnari hlaupum í gegn. Margir ljósir punktar sáust hjá liðinu og með góðri nýtingu á æfingatíma og nokkrum aukaæfingum ná þessar efnilegu stúlkur enn lengra og ættu að sigra B riðil. Til þess að svo verði þurfa þær fyrst og fremst að mæta með tíu leikmenn í mót og æfa vel. Það vantar herslumuninn því leikirnir voru jafnir fram á síðustu mínútur. Kristen Green er þjálfari þeirra og á hún örugglega eftir að gera góða hluti með þeim. Foreldrar í þessari ferð voru: Dóra, Hafsteinn og Davíð.
Úrslit:
Skrifað af Garðar 12.10.2009 15:45Evrópa ungafólksins
Næsti umsóknarfrestur til að skila inn umsóknum er 1. nóvember 2009 Verkefnin verða að hefjast á tímabilinu 1. febrúar - 31. júlí 2010 Umsækjendur eru hvattir til að lesa Handbók 2009 í umsóknarferlinu
Umsóknarfrestir eru fimm sinnum á ári og er einnig hægt að sækja um styrk 1. febrúar 2010.
Evrópa unga fólksins (EUF) veitir styrki til fjölbreyttra verkefna. Hægt er að sækja um í eftirtalda flokka:
Ungmennaskipti Skólahópar, hópar úr félagsmiðstöðvum eða ungmennahúsum, og ungmenni í æskulýðsstarfi geta fengið styrk til að mynda tengsl við sambærilega hópa í öðrum Evrópulöndum.
Frumkvæði ungs fólks Ungir frumkvöðlar geta fengið styrk til að koma hugmyndum sínum á framfæri. Styrkir eru veittir til verkefna sem unga fólkið kemur með hugmyndir að og skipuleggur vinnuna með aðstoð leiðbeinenda.
Lýðræðisverkefni Verkefni í þessum flokki eru ætluð til þess að hvetja ungt fólk til að taka virkan þátt í lýðræðislegu samfélagi og til þess að þau láti sig umhverfi sitt skipta.
Sjálfboðavinna Ungt fólk getur fengið styrk til að vinna sjálfboðaliðastörf erlendis í allt að 12 mánuði. Stofnanir/samtök geta einnig útbúið verkefni og fengið til sín sjálfboðaliða í 2 - 12 mánuði. Þannig geta þau útvíkkað starfið og fengið nýjar víddir með því að fá áhugasamt ungt fólk frá Evrópu með í hópinn.
Þjálfun og samstarf Í þessum flokki eru veittir styrkir til þeirra sem eru virkir í ungmennastarfi og hafa hug á að skipuleggja og/eða sækja tengslaráðstefnur og ýmis námskeið og kynningarSkrifað af Garðar 12.10.2009 07:31Karfa 8 fl pilta![]() Hinir ungu peyjar í 8. flokki kepptu í Fjárhúsinu á laugardaginn þrjá leiki. KFÍ afboðaði komu sína á fjölliðamótið vegna veðurs þannig að ákveðið var að keyra þetta á laugardeginum. Strákarnir í Snæfell unnu alla sína leiki undir stjórn Hlyns Bæringssonar og áttu þeir tvo auðvelda leiki á móti Fjölnib og Fsu en síðasti leikurinn við UMFH var spennandi fram á lokasekúndur. Hér að neðan eru úrslit leikja Snæfells.
Skrifað af Garðar 12.10.2009 07:29Helga Guðrún endurkjörin Helga Guðrún var ein í kjöri og reis þingheimur úr sætum og klappaði innilega fyrir henni. Helga Guðrún var fyrst kvenna í sögu hreyfingarinnar kjörin formaður fyrir tveimur árum. Um 120 þingfulltrúar sátu sambandsþingið. Fjölmörg mál og tillögur voru til umfjölunnar og afgreiðslu á þinginu. ,,Á þessari stundu er mér efst í huga þakklæti, gleði og ánægja að fá að takast á við þetta göfuga, skemmtilega og góða hlutverk næstu tvö árin. UMFÍ er hreyfing sem er að vinna öflugt starf sem skiptir svo marga máli," sagði Helga Guðrún Guðjónsdóttir. Helga Guðrún sagði að þingið hefði verið mjög málefnalegt og umræður góðar og góður andi ríkti yfir því. ,,Það eru allir sammála um það að slá skjaldborg um það starf sem við erum að vinna sem skiptir svo miklu máli á þeim tímum sem við erum að upplifa um þessar mundir. Framtíðarsýnin er að vinna áfram samkvæmt þeim göfugu markmiðum sem hreyfingin stendur fyrir. Þau eru ,,Ræktum lýðs og lands" og byggðar á ungmennafélagsandanum. Vonandi eigum eftir að upplifa aftur bjarta tíma sem gerir okkar allt miklu auðveldara. Hreyfingin er samt búin að vera undirbúa sig undir þessar aðstæður sem við búum við í dag. Ég er vongóð um að okkur takist að halda okkar striki og helst að auka starfið enn frekar því félagsmönnum fjölgar. Markmiðið alltaf er að vinna eins vel og við getum að íþrótta- og æskulýðsstarfi í landinu eins og okkur er frekar kostur," sagði Helga Guðrún Guðjónsdóttir formaður Ungmennafélags Íslands. Ný stjórn var kosin og í aðalstjórn eru Helga Guðrún Guðjónsdóttir, Björg Jakobsdóttir, Björn Ármann Ólafsson, Einar Haraldsson, Örn Guðnason, Garðar Svansson og Eyrún Hlynsdóttir. Í varastjórn voru kosin Ragnhildur Einarsdóttir, Haraldur Þ. Jóhannsson, Einar K. Jónsson.10.10.2009 18:06Þing UMFÍÞing UMFÍ sett í Reykjanesbæ í morgun
Það var Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, sem setti þingið og fór víða í sinni ræðu. Þá fluttu ávörp Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, Gunnar Bragason, gjaldkeri ÍSÍ, Árni Sigfússon bæjarstjóri í Reykjanesbæ og Hafsteinn Þorvaldsson, fyrrverandi formaður UMFÍ og heiðursfélagi UMFÍ.
Myndir: Helga Guðrún Guðjónsdóttir,formaður UMFÍ, setti 46. sambandsþing hreyfingarinnar í Reykjanesbæ í morgun. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, flutti ávarp af því tilefni. Skrifað af Garðar 09.10.2009 13:45Karfa 8 fl. kvk![]() Til foreldra/forráðamanna 8 fl. Kvk í körfubolta. Helgina 10 og 11. október n.k. eiga stúlkurnar að keppa í Hafnarfirði, Ásvellir. Lagt verður af stað frá Íþróttamiðstöðinni kl. 08:30 á laugardagsmorgun. Farið verður með einkabílum. Umsjón hafa foreldrar Silju Katrínar, Heklu og Katrínar Evu. Þjálfari: Kristen Green Eins og áður þurfa þeir sem fara að greiða ferðakostnað kr. 2.000,- Gisting kr. 1.000,- í Gistiheimili Capital Inn, sjá meðfylgjandi Látið hollt og gott nesti í töskuna hjá stúlkunum. Ekki gleyma svefnpoka, dýnu, kodda, tannburstanum, handklæði og íþróttafötum. Kær kveðja, Foreldrafélag Snæfells. Skrifað af Garðar 08.10.2009 16:42Blakmót í StykkishólmiÁgætu blakarar,
Okkur hjá blakdeild
Snæfells langar til að kanna hug ykkar varðandi blakmót helgina 14. -
15. nóv. í Stykkishólmi. Vinalið okkar úr Aftureldingu ætlar að mæta
með karla og kvennalið. Ef það er einhver áhugi hjá ykkur væri gott að
fá að vita það í tíma og einnig hversu mörg lið kæmu frá félögunum.
Mótsgjald yrði kr. 9.000 fyrir eitt lið og svo kr. 6.000 fyrir hvert
umfram lið.
Endilega látið okkur vita hvort einhver áhugi er meðal ykkar félagsmanna.í netfangið elisabet.vald@stykk.is Kveðja Stjórn blakdeildar Snæfells Skrifað af Garðar 08.10.2009 16:39Íþróttamaður og meiðsliNámskeið: "Hvenær er Íþróttamaður tilbúinn til æfinga eftir meiðsli" Miðvikudaginn 11. nóvember klukkan 20.00-22.00 hjá Keili á Ásbrú (Reykjanesbæ)
Ert þú eða íþróttamaður þinn búinn að vera meiddur á hné eða ökkla? Er hann tilbúinn að spila? Ef þú ert ekki viss, viltu þá ekki bara krossa fingur, teipa og vona það besta og láta hann spila á 50% getu? Eða viltu vita meira um hann, læra að meta hann og setja hann inn þegar hann er tilbúinn?
Miðvikudaginn 11. nóvember klukkan 20.00-22.00 verður Einar Einarsson, sjúkraþjálfari með námskeið í íþróttameiðslum á hné og ökkla. Námskeiðið er sérstaklega ætlað fyrir fagfólk í íþróttum og heilsurækt en nýtist einnig vel íþróttamönnum sem vilja vera vakandi yfir eigin ástandi.
Nánar um námskeiðið: Miklar kröfur eru gerðar til íþróttafólks í dag. Æfinga og keppnisálag hefur aukist og pressan á toppíþróttamenn að keppa og spila er mikil, ekki sýst þar sem peningar eru í spilinu. Þetta aukna álag veldur því að tíðni íþróttameiðsla er að hækka og hætta á endurteknum meiðslum og álagsmeiðslum vex til muna.
En hvernig vita þjálfarar eða íþróttamennirnir sjálfir hvort viðkomandi sé tilbúinn til keppni eða ekki?
Í þessum tveggja tíma fyrirlestri mun Einar Einarsson sjúkraþjálfari fjalla um aðferðir til að getuprófa íþróttamenn og meta líkamsástand þeirra. Sjónum verður beint sérstaklega að ökkla og hné og farið yfir próf og helstu æfingar sem hægt er að nota í ástandsmælingar og mat á hreyfigetu og styrk.
Verð á námskeiði: 4.900 krónur
Skráning fyrir 30. október hér: https://www.inna.is/Kennarar/keilir/ Þátttakendur fá sendan greiðsluseðil þegar þeir hafa skráð sig í gegnum meðfylgjandi hlekk. Ef greiðandi er annar en þátttakandi skal þátttakandi greiða seðilinn sjálfur og fá endurgreitt frá þeim sem greiða á námskeiðið (íþróttafélag eða annað). Mikilvægt er að seðillinn sé greiddur fyrir eða á gjalddaga ellegar er litið á sem svo að þátttakandi ætli ekki að mæta á námskeiðið.
Nánar um leiðbeinandann á námskeiðinu: Einar Einarsson, sjúkraþjálfari Menntun: M.S.c Hreyfivísindi 2006 Aarhus University MTc Liðfræði 2000 University of St. Augustin BSc Sjúkraþjálfun Háskóla islands 1991 Íþróttakennari frá Laugarvatni 1986
Einar hefur kennt sjúkraþjálfun í Árósum og í Háskóla Íslands. Í dag starfar hann sem klínískur sérfræðingur hjá KINE og kennir þjálffræði við ÍAK einkaþjálfun.
Ef einhverjar spurningar koma upp þá endilega hafið samband við mig. Upplýsingar hér að neðan
bestu kveðjur,
Sævar Ingi Borgarsson verkefnastjóri Heilsuskóla Keilis 862-6911 Skrifað af Garðar 08.10.2009 10:28Taflfélag Snæfellsbæjar
Skrifað af Garðar 08.10.2009 10:21ÆskusundmótÆskusundmót 2009
Hér með boðar Sundfélagið Húnar til Æskusundmóts árið 2009.
Mótið verður haldið laugardaginn 17. október í Sundlauginni á Hvammstanga og hefst klukkan 13.00.
Dagskrá:
12:30 Upphitun hefst
13.00 Keppni hefst í 32 greinum í samræmi við reglugerð fyrir Æskusundmót í eftirfarandi aldursflokkum; 10 ára og yngri 11-12 ára 13-14 ára
17:00 Kaffisamsæti og verðlaunaafhending að keppni lokinni.
Skráningar keppenda þurfa að berast í síðasta lagi miðvikudaginn 14. október til Sundfélagsins Húna á netfangið hunarnir@simnet.is.
Frekari upplýsingar veitir Anna María í síma 897-9300
Hvammstangi 7.október 2009
Með bestu kveðjum Sundfélagið Húnar Skrifað af Garðar |
Eldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 92 Gestir í dag: 30 Flettingar í gær: 1079 Gestir í gær: 143 Samtals flettingar: 902986 Samtals gestir: 96631 Tölur uppfærðar: 19.5.2012 05:03:28 |
||||