Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu

Færslur: 2009 September

25.09.2009 08:45

Uppskeruhátíð Knattspyrnustarfsins

UPPSKERUHÁTÍÐ SNÆFELLSNES SAMSTARFSINS

verður haldin í íþróttahúsinu Stykkishólmi

sunnudaginn 27. sept. kl 14:00-17:00

Verðlauna afhending, Sundlaugarpartý, Grillaðar pylsur

Allir að mæta með góða skapið og í Snæfellsnesgöllunum sínum

Fótboltasamstarfið.

24.09.2009 14:23

Haustmót Ægis


Haustmót Ægis

Verður haldið í Laugardalslaug helgina 9. - 11. Október 2009

Keppt verður í 25m laug í fimm hlutum á þremur dögum.
Á föstudegi verður keppt í opnum flokki í 50m greinum og í 800m og 1500m skriðsundi.
Á laugardegi og sunnudegi verður keppt í 12 ára og yngri fyrir hádegi og 13 ára og eldri eftir hádegi.

Skráningarfresturinn rennur út sunnudaginn 4. október kl. 24.00.

>>> Nánari upplýsingar á http://www.aegir.is

23.09.2009 21:15

Snæfell lagði KR

Snæfell vann KR í æfingarleik

KR-ingar hófu leikinn með að leiða 9-4 en Hólmarar náðu undirtökunum í leiknum og leiddu 15-22 eftir fyrsta leikhluta.  Nonni Mæju og Hlynur Bærings skoruðu grimmt og liðið í heild var að berjast sem heild.  Snæfell náðu mest 17 stiga forystu í fyrri hálfleik en staðan í hálfleik var 34-47.  Brynjar Þór var að leika vel fyrir þá röndóttu og kemur strákurinn vel undan sumri.  Snæfell sem voru að fá gott framlag frá sínum mönnum bættu við forystuna í þriðja leikhluta en mikið var um pústra manna á milli og vel tekist á og áttu dómarar leiksins Davíð Hreiðarsson og Georgia Olga Kristiansen ekki auðvelt verkefni fyrir höndum. Mestur varð munurinn á liðunum 22 stig og leiddu Snæfell 53-75 eftir þrjá leikhluta.  Í fjórða leikhluta fengu allir leikmenn Snæfell tækifæri og voru lokatölur 76-87 Snæfell í vil.  

 

Það er að komast mynd á Snæfellsliðið en þeir voru greinilega komnir lengra með sín mál miðað við KR-inga sem voru að leika sinn fyrsta leik á undirbúningstímabilinu.  Margt á þó eftir að slípast saman hjá liðinu og munum leikmenn og þjálfari vinna hart í því að verða betri með degi hverjum en KR hefur rétt verið að ná í 10 manns á æfingar og erfitt að skera úr um heildargetu liðsins.   

 

Næsta verkefni er átta liða úrslit í Powerade-bikarnum í fjárhúsinu sunnudaginn 27. september klukkan 19:15 þegar að Stjörnumenn mæta í heimsókn en þeir sigruðu Hamarsmenn 103-83 og virka ferskir í upphafi móts.  Það þarf ekki að nefna það að Justin Shouse leikur með Stjörnumönnum og bjóðum við hann velkominn í Hólminn á sunnudag.   

 

Stigaskor leikmanna Snæfells: Jón Ólafur Jónsson 27, Hlynur Elías Bæringsson 21, Sigurður Ágúst Þorvaldsson 19, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 10, Sveinn Arnar Davíðsson og Emil Þór Jóhannsson 4 og Kristján Pétur Andrésson 2.  Allir þrettán leikmenn liðsins sem mættir voru í DHL-Höllina komu við sögu í leiknum.

 

Stigaskor leikmanna KR: Tommy Johnson 21, Brynjar Þór Björnsson 16, Finnur Atli Magnússon 9, Ólafur Már Ægisson 8, Fannar Ólafsson 7, Darri Hilmarsson 6, Jón Orri Kristjánsson 4, Steinar Kaldal 3 og Skarphéðinn Freyr Ingason 2.  Victor Fiour náði ekki að komast á blað. IÞS

21.09.2009 12:25

Vikingur Ólafsvík

Tap í síðasta leik og uppskera sumarsins

21. september 2009 klukkan 11:47

Víkingar spiluðu á Laugardag sinn síðasta leik á tímabilinu gegn Fjarðabyggð á heimavelli. Fyrir leikinn var ljóst að liðið myndi enda í 12. og neðsta sæti deildarinnar og því að litlu að keppa öðru en stoltinu. Það er skemst frá því að segja að leikar enduðu með 1-1. Fannar Hilmarsson skoraði mark okkar manna og hefur því skorað 5 mörk í deildinni alls eða einu færra en Josip Marosevic sem tókst að skora 6 áður en hann hélt heim til Króatíu.

 

 

Fyrstu tveir leikir mótsins gáfu góð fyrirheit um það sem koma skyldi en eftir tvær umferðir var liðið á toppi deildarinnar með fullt hús stiga. Í kjölfarið fylgdu sjö ósigrar þar sem liðið var að fá á sig allt of mörg mörk en aðalsmerki liðsins undanfarin ár hafði verið þéttur og góður varnarleikur. Brugðið var á það ráð að skipta um mann í brúnni og var Kristinn Guðbrandsson látinn taka pokann sinn.

 

Picture 003 by you.

Við liðinu tók Ejub Purisevic sem þekkir liðið jafn vel og handarbakið á sjálfum sér(ef ekki betur) enda þjálfari í Ólafsvík árin 2003-2008. Það var þó ljóst að Ejub gæti aðeins verið með liðið tímabundið sökum mikilla anna sem yfirþjálfari knattspyrnusamstarfsins á Snæfellsnesi. Eftir þjálfaraskiptin tapaði liðið naumlega fyrir Leikni á útivelli áður en liðið tók á móti ÍR þar sem gestirnir stálu stigi í blálokin á leiknum. Þessi úrslit fengu mikið á liðið en á tímabili virtist sem það væri að birta til en kjaftshöggið undir lok leiksins var einfaldlega of þungt. Í næsta leik tók liðið á móti nöfnum sínum frá Reykjavík en ljóst að leikurinn gegn ÍR-ingum sat í mönnum og gestirnir fóru með auðveldan 1-4 sigur af hólmi.

 

Fjórum dögum seinna var flogið Austur á land þar sem við heimsóttum Fjarðabyggð. Í þeim leik lékum við einum færri  lungað úr seinni hálfleik þar sem Dejan Podbreznik sem þá spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið fékk að líta rauða spjaldið þegar hann átti augljóslega að fá dæmda vítaspyrnu. Mynd er til af treyjunni sem var rifin í tætlur en Gunnar Jarl dómari leiksins sá ekki ástæðu til að dæma víti en rak Dejan í stað þess útaf með sitt annað gula spjald fyrir leikaraskap. Allt virtist stefna í 0-0 jafntefli en heimamönnum tókst með ólýsanlegum hætti að koma knettinum yfir línuna eftir fyrirgjöf sem fór aldrei fyrir heldur beint í markið. Í þessum leik átti liðið miklu meira skilið, menn voru að berjast fyrir hvorn anna og málstaðinn en uppskeran var af skornum skammti.

 

Næsti leikur var gegn Aftureldingu í Mosfellsbænum. Í þeim leik var liðið hvergi nærri því að vera líkt sjálfu sér, það var sem hugurinn væri allt annars staðar en á fótbolta vellinum. Hér var mér hugsað til lagsins um tunglið sem Helga Möller söng svo fallega þar sem segir í textanum ,,hugurinn ber þig hálfa leið ". Staðan var 2-0 í hálfleik en hefði hæglega geta verið 3-0 þar sem Einar varði vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks. Í seinni hálfleik hélt Einar áfram að verja eins og berserkur en hann kom þó ekki í veg fyrir að Afturelding skoraði sitt þriðja mark í leiknum og 3-0 tap staðreynd.

 

Í næsta leik gegn HK tapaði liðið naumlega fyrir sterku liði HK en í þeim leik sýndi liðið hvað í því bjó en þar var baráttan og viljinn til staðar. Tveimur dögum eftir leikinn gegn HK kom til landsins nýr þjálfari að nafni Darko Kavsic. Darko sem er Slóveni hafði þjálfað mikið í heimalandinu auk þess að vera með reynslu í þjálfarafræðum bæði í Austurríki og Saudi-Arabíu. Hans fyrsti leikur við stjórnvölin var gegn Haukum á útivelli þar sem við töpuðum 3-1 en mark okkar manna skoraði Brynjar Gauti á loka mínútum leiksins.

 

Næsti leikur gegn Selfossi á heimvelli þarf vart að minnast á og ætla ég mér því ekki að staldra lengi við hann því þá steinlá liðið gegn sprækum lærisveinum Gunnlaugs Jónssonar 1-6.  Í næsta leik sem fór fram á Skipaskaga beit liðið frá sér og allir börðust sem ljón og uppskeran var 0-0 jafntefli. Fyrir mót hefði það talist góð úrslit að halda hreinu á Akranesi en það verður þó ekki litið framhjá því að bæði lið börðust á botni deildarinnar og því um ásættanleg úrslit fyrir bæði lið að ræða.

 

Stemmningin í liðinu fyrir heimaleikinn gegn Þórsurum sem komu næst í heimsókn var góð.  Þegar þarna var komið réri liðið lífróður til að freista  þess að framlengja veru sinni í 1. deild að ári. Liðið fór með 2-0 sigur af hólmi í líklega besta leik liðsins á sumrinu, mörkin skoruðu Dejan og Danijel sem höfðu báðir komið um mitt sumar frá Slóveníu.

 

Viku seinna ráku nágrannar Þórsara, KA-menn seinustu naglana í kistuna þar sem liðið tapaði 3-0 á útivelli. Liðið komst aldrei í takt við leikinn og fékk mark á sig snemma líkt og í mörgum leikjum sumarsins. Næsti leikur var gegn Leiknismönnum á Ólafsvíkurvelli en sá leikur var sögulegur fyrir þær sakir að bæði lið spiluðu undir formerkjum heimaliðsins. Dómarinn Valgeir Valgeirsson taldi búning Leiknismanna of líkann búningi Víkings og þar sem gestirnir voru án varabúninga spiluðu þeir í varabúningum Víkings. Sá leikur endaði 2-2 jafntefli en mörk okkar manna skoruðu Brynjar Kristmundsson og Þorsteinn Már Ragnarsson.


(Víkingar heilsa Leiknismönnum fyrir leik liðanna í Ólafsvík) 

Viku seinna fór liðið í heimsókn í Neðra-Breiðholtið þar sem ÍR-ingar fóru með sigur af hólmi (4-3) í alveg hreint ótrúlegum leik. Víkingum tókst þá að vinna upp tveggja marka forystu ÍR-inga og komast yfir þegar innan við 10 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. ÍR-ingar sneru þó leiknum aftur sér í vil og tókst að merja sigur í uppbótartíma. Mörk okkar manna skoruðu Dejan og Brynjar Kristmundsson tvö.

 

Uppskera sumarsins var þá alls 13 stig sem fela í sér þrjá sigra (Víking R., Aftureldingu og Þór) og fjögur jafntefli (ÍR,ÍA,Leiknir, Fjarðabyggð) sem er minnsti stigafjöldi liðsins frá því liðið fór upp í 1. deild árið 2004. Það sem brýtur í bága er það að liðið skoraði 24 mörk en liðið hafði ekki gert jafn mörg mörk frá árinu 2004 þegar liðið spilaði í 2. deild. En það sem varð okkur að falli í sumar voru þau 54 mörk sem við fengum á okkur. Fleiri mörk höfum við ekki fengið á okkur í 1. deild frá því við komum upp árið 2004, en árið 2005 fékk liðið á sig 30 mörk þegar það þreytti frumraun sína í 1. deild.

 

Framundan er mikil undirbúningsvinna fyrir átökin sem bíða okkur í 2. deild að ári. Á árunum 2005-2009 spilaði  Víkingur Ólafsvík á meðal þeirra næst bestu og náði að hasla sér völl sem eitt af 24 bestu liðum landsins. Nú þegar við stöndum frammi fyrir því að þurfa byggja upp að nýju reynir á þá sem virkilega hafa bein í nefinu. Þess vegna hlýtur það að vera markmið bæði leikmanna og stjórnar að koma liðinu á þann stall sem því ber að vera og hefur verið undanfarin 5 ár. Áfram Víkingur!!!

 

21.09.2009 12:18

Spurningarkeppni UMFG

Pub Quiz nr 2

Meistaraflokkur karla í knattspyrnu stendur fyrir Pub Quiz spurningaleik á Kaffi 59 þriðjudagskvöldið 22. september kl 21:00. Þetta er í annað skiptið sem keppt er í þessum spurningaleik. Síðast voru spurningarnar íþróttatengdar og þá sigraði Team T-bone naumlega. Í þetta skiptið verða spurningarnar almenns eðlis úr daglegu lífi. Við í meistaraflokknum hvetjum sem flesta til að koma og taka þátt því þetta kostar bara 500 kr á mann og rennur allur ágóði í starf Meistaraflokks Grundarfjarðar.

 

Meistaraflokksráð. 

20.09.2009 20:10

Fræðslukvöld ísí

Fræðslukvöld ÍSÍ

Minnum á næsta fræðslukvöld

Fim. 24. sept. í Reykjavík.  Skipulag þjálfunar (fyrri hluti)

Kennt verður á milli kl. 17.00 og 21.00.

Fræðslukvöld ÍSÍ fara nú aftur af stað eftir sumarfrí og hefjast fimmtudaginn 17. september nk. á Akureyri og 24. september í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í Reykjavík.  Kennt verður í 5 kennslustunda lotum og er þessi fræðsla jafnframt liður í þjálfaramenntun ÍSÍ á 2. stigi almenns hluta.  Fræðslukvöldin hefjast kl. 17.00 á báðum stöðum og lýkur kl. 21.00. 

Fræðslukvöldin eru öllum opin, 16 ára og eldri, þ.m.t. þeim sem ekki ætla sér í þjálfaranám.  Fræðslan getur t.d. í sumum tilfellum hentað iðkendum íþrótta og aðilum sem þurfa að sækja sér endurmenntun.

Skráning er á namskeid@isi.is og þarf henni að vera lokið tveimur sólarhringum fyrir hvert námskeið.

Námskeiðsgjald er kr. 3.500.- og greiðist fyrir upphaf námskeiðs.

Allar frekari upplýsingar um fræðslukvöld ÍSÍ veitir sviðsstjóri fræðslusviðs í síma 460-1467 eða á vidar@isi.is




18.09.2009 14:04

Víkingur Ól, síðasti leikurinn í sumar

Á laugardaginn taka Víkingar á móti Fjarðabyggð í síðasta leik sumarsins og um leið kveðja þeir 1. deildina að sinni. Liðið mun eins og flestir vita spila í 2. deild að ári og freista þess að vinna sér sæti meðal þeirra næst bestu árið 2011. Leikurinn hefst kl. 14:00 á Ólafsvíkurvelli og eiga okkar menn harm að hefna frá því í fyrri leik liðina þar sem Austfirðingarnir báru nauman sigur úr bítum eftir að hafa skorað mark á loka mínútum leiksins. 
 
Auk Danijels sem er í leikbanni eru fleiri lykilmemenn liðsins ekki leikfærir. Hermann Geir og Garðar Eðvalds eru frá vegna meiðsla en Þorsteinn getur því miður ekki verið af persónulegum ástæðum. Í stað þeirra koma ungir leikmenn í hópinn og líklegt er að óreyndir en jafnfram spilþyrstir einstaklingar komi inn í liðið.

Leikurinn hefst sem fyrr segir kl. 14:00 og hvet ég alla til að kíkja á völlinn, áfram Víkingur!

18.09.2009 14:02

Brynar Gauti í U19.

Brynjar Gauti í eldlínunni með U-19


Brynjar Gauti Guðjónsson spilaði allar 180 mínúturnar í tveimur æfingaleikjum sem U-19 ára landslið Íslands spilaði gegn Skotum í þessari viku. Fyrri leikurinn var háður mánudaginn 7. september þar sem Brynjar og félagar fóru með 2-0 sigur af hendi. Seinni leikurinn fór fram ytra í gær miðvikudag þar sem liðið sigraði heimamenn 3-1. Brynjar var einn af fáum leikmönnum liðsins sem spilaði allar 90 mínúturnar báða leikina og því nokkuð ljóst að Kristinn Rúnar Jónsson þjálfari liðsins ber mikið traust til Brynjars.

16.09.2009 20:17

Uppskeruhátíð UMFGrundarfjarðar

Uppskeruhátíð UMFG

Uppskeruhátíð UMFG verður haldin sunnudaginn 20 september næstkomandi.

 

Takið daginn frá.

 

kveðja Stjórn UMFG 

16.09.2009 17:43

Sjálfboðaliðar óskast

Sjálfboðaliðar óskast!

http://www.olympic.is/idegaweb/bundles/com.idega.core.bundle/resources/transparentcell.gif

http://www.olympic.is/iw_cache/8249_2009IPC_Swimming_Reykjavik_logoSmallversion.jpgÍ október verður Evrópumót fatlaðra í sundi haldið í Laugardalslauginni. Keppendur fara að tínast til landsins dagana 15. - 17. október.  Keppni fer svo fram dagana 18. - 24. október. Opnunarhátíð fer fram þann 17. og lokahátíð 24. október. Um gríðar umfangsmikið verkefni er að ræða sem Íþróttasamband fatlaðra ber hitann og þungann af. Skráningarfrestur keppenda er liðinn og hafa yfir 400 skráð sig til leiks. Keppendum fylgja um 200 aðstoðarmenn og þjálfarar. Til að framkvæmd mótsins gangi sem best fyrir sig óskar ÍF eftir sjálfboðaliðum til aðstoðar við ýmis verkefni meðan á því stendur. Áhugasömum er bent á að hafa samband við skrifstofu ÍF í síma 514-4080 eða með tölvupósti á netfangið if@isisport.is

 

Skrá þarf sjálfboðaliða til almennra starfa t.d. í matsal, kaffiteríu, við afhendingu gagna, sendlastörf, við upplýsingaborð, á hótelum, körfubera á mótsstað o.s.frv.       Keppni fer fram 09-11 og 1700 - 2000 og þörf er á aðstoð á mótsstað á þeim tíma.   Verkefni utan keppnisstaðar eru á tímanum frá 0800 - 2000,  vaktaskipti verða þar m.t.t. óska sjálfboðaliða.

Vinsamlega látið þetta berast í ykkar umhverfi og endilega skráið ykkur sé áhugi á að aðstoða

16.09.2009 16:17

Snæfell Kvennakarfa

14. september 2009
Úrslit æfingaleiks við KR hjá mfl kvenna

Snæfellstelpurnar töpuðu 66-80 fyrir fyrnasterku KR liði sem sótti okkar stúlkur heim í hérað.  Leiknir voru sex leikhlutar þar sem fyrirhugað var að leika einnig gegn Keflavík en þær forfölluðust.  Eftir barning í upphafi leiks voru Snæfellsstelpurnar einu skrefi á eftir KR-stúlkum sem tefla fram gríðarlega öflugu liði í vetur.     

 

Eftir þrjá leikhluta hálfleik og leiddu KR þá 30-46 en mjög góður fimmti leikhluti hjá Snæfell kom muninum niður í sjö stig en KR-stúlkur bitu þá í skjaldarrendur og sigldu öruggum sigri í hús.  Lokastaðan 66-80 og bæði lið greinilega að hefja leiktíðina og eiga eftir að pússa til ýmislegt í sínum leik.     

 

Stigaskor Snæfellsstúlkna var eftirfarandi: Björg Guðrún Einarsdóttir og Unnur Lára Ásgeirsdóttir voru stigahæstar með 14 stig, Berglind Gunnarsdóttir 10, Gunnhildur Gunnarsdóttir 8, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 6, Sara Sædal Andrésdóttir 5 en hún snéri sig í leiknum og verður vonandi ekki mikið frá. Hrafnhildur Sif Sævarsdóttir, María Björnsdóttir og Hildur Björg Kjartansdóttir 3 stig hver en þær Rósa Indriðadóttir og Erna Rut Kristjánsdóttir léku príðilega en náðu ekki að skora.    

 

Hjá KR var Unnur Tara Jónsdóttir stigahæst með 16 stig, Signý Hermannsdóttir 13, Jenny Fiuora 11, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir og Þorbjörg Andrea Friðriksdóttir 9, Helga Einarsdóttir 6, Hildur Sigurðardóttir 5, Rakel Viggósdóttir og Jóhanna Sveinsdóttir 4, Brynhildur Jónsdóttir 2 og Heiðrún Jónsdóttir 1.    

 

Framundan eru fleiri æfingaleikir hjá stelpunum en þeir verða tilkynntir um leið og þeir hafa verið staðfestir.

16.09.2009 16:14

Starfandi Frjálsíþróttaþjálfarar

Ágætu sambandsaðilar FRÍ.

Í framhaldi af samþykkt stjórnar FRÍ um upptöku á nýju fræðslukerfi fyrir þjálfara kom í ljós að ekki er til nægjanlega vel uppfærður listi yfir starfandi frjálsíþróttaþjálfara og aðra sem áhuga hafa á að fylgjast með fræðslumálum þjálfara.

Því er hér með leitað til sambandsaðila FRÍ, héraðssambönd, félög og þjálfara, að senda til okkar lista með starfandi þjálfurum hjá ykkur. Það sem við óskum eftir að hafa er:

nafn,

símanúmer (fars., eða annað númer),

netfang,

samband eða félag sem viðkomandi starfar fyrir, aldurshópa og sérgreinar eftir því sem við á.

Með betri  upplýsingum er auðveldara fyrir okkur að koma upplýsingum til réttra aðila, auk þess að hafa betri sýn á frjálsíþróttastarfið í landinu.

Eins er það gott að vita ef enginn þjálfari er starandi í frjálsíþróttum innan sambandsins.

Það er von okkar að hægt sé að verða við þessari ósk okkar fljótlega. Vinsamlegast sendið svar á jonas@fri.is

Með frjálsíþróttakveðju, ...

Frjálsíþróttasamband Íslands
Icelandic  Athletic Federation
Engjavegi 6

104 Reykjavík
Tel. +354 514-4040
Mob.+354 897-1863
fri@fri.is / www.fri.is

14.09.2009 14:46

Dómarnámskeið í Sundi

Góðan dag,

Dómaranámskeið verður haldið í kringum Ármannsmótið og fer bóklega kennslan fram 22. og 24. sept frá 19-22 í húsi ÍSÍ en verklega kennslan fer svo fram í tengslum við mótið.

Skráningarfrestur er til 21. sept.  hjá SSÍ  sundsamband@sundsamband.is

Lágmarksþátttaka er 10 manns.

14.09.2009 11:50

Sundmót Óðins


Sprengimót Óðins verður haldið 26.-27. september næstkomandi í Sundlaug Akureyrar. Mótið er sprettsundsmót og opið fyrir öll félög á landinu. Boðið er upp á mat og gistingu í Brekkuskóla.

Skipulag og greinaröðun

Miðað við 12 ára og eldri, keppt er í 50 m og 100 m greinum í opnum flokki kvenna og karla. Mótið byrjar kl. 9:30 (upphitun klst. fyrr) á laugardaginn og er í þremur hlutum.

Hluti: 1 Laugardagur fyrir hádegi - Byrjar kl 09:30

Grein
1 Konur 50 Skriðsund
2 Karlar 50 Skriðsund
3 Konur 100 Bringusund
4 Karlar 100 Bringusund
5 Konur 50 Flugsund
6 Karlar 50 Flugsund
7 Konur 200 Bringusund Boðsund
8 Karlar 200 Bringusund Boðsund

Hluti: 2 Laugardagur eftir hádegi  - 14:00

Grein
9 Konur 100 Fjórsund
10 Karlar 100 Fjórsund
11 Konur 50 Bringusund
12 Karlar 50 Bringusund
13 Konur 100 Baksund
14 Karlar 100 Baksund
15 Konur 200 Flugsund Boðsund
16 Karlar 200 Flugsund Boðsund

Hluti: 3 Sunnudagur fyrir hádegi - Byrjar kl 10:00

Grein
17 Konur 100 Skriðsund
18 Karlar 100 Skriðsund
19 Konur 50 Baksund
20 Karlar 50 Baksund
21 Konur 100 Flugsund
22 Karlar 100 Flugsund
23 Blandað 400 Skriðsund Boðsund( 8x50m skriðsund, konur og karlar til skiptis)

Skráningarfrestur er til 21. september og skilist á Hytek formi á netfangið unnurak@simnet.is

Hytek skrá

Gisting, matur og skráningargjöld
Innheimt verða skráningargjöld, 300 kr. fyrir einstaklingsgreinar og 600 kr. fyrir boðsund.  Boðið verður upp á gistingu og mat í Brekkuskóla. Morgunmat, hádegismat og kvöldmat á laugardag og morgunmat á sunnudag. Verð fyrir gistingu og mat er 5.500 kr. á mann. Öll verð eru óbreytt verð frá fyrra ári.

Gjöld fyrir skráningu og gistingu leggist inn á tékkareikning Óðins:
1145-26-80180 Kt. 580180-0519

14.09.2009 11:44

Fræðslukvöld ÍSÍ

Fræðslukvöld ÍSÍ

Kennt verður á milli kl. 17.00 og 21.00.

Fræðslukvöld ÍSÍ fara nú aftur af stað eftir sumarfrí og hefjast fimmtudaginn 17. september nk. á Akureyri og 24. september í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í Reykjavík.  Kennt verður í 5 kennslustunda lotum og er þessi fræðsla jafnframt liður í þjálfaramenntun ÍSÍ á 2. stigi almenns hluta.  Fræðslukvöldin hefjast kl. 17.00 á báðum stöðum og lýkur kl. 21.00. 

Fræðslukvöldin eru öllum opin, 16 ára og eldri, þ.m.t. þeim sem ekki ætla sér í þjálfaranám.  Fræðslan getur t.d. í sumum tilfellum hentað iðkendum íþrótta og aðilum sem þurfa að sækja sér endurmenntun.

Skráning er á namskeid@isi.is og þarf henni að vera lokið tveimur sólarhringum fyrir hvert námskeið.

Námskeiðsgjald er kr. 3.500.- og greiðist fyrir upphaf námskeiðs.

Allar frekari upplýsingar um fræðslukvöld ÍSÍ veitir sviðsstjóri fræðslusviðs í síma 460-1467 eða á vidar@isi.is

Skipulag fræðslukvölda á haustönn 2009 (með fyrirvara um ófyrirsjáanlegar breytingar):

Fim. 17. sept. á Akureyri.  Næring íþróttafólks/lyf og íþróttir

Fim. 24. sept. í Reykjavík.  Skipulag þjálfunar (fyrri hluti)

Fim. 8. okt. á Akureyri.  Íþróttameiðsl.

Fim. 15. okt. í Reykjavík.  Skipulag þjálfunar (seinni hluti)

Fim. 22. okt. á Akureyri.  Skipulag þjálfunar (fyrri hluti)

Fim. 29. okt. í Reykjavík.  Starfsemi líkamans

Fim. 5. nóv. á Akureyri.  Skipulag þjálfunar (seinni hluti)

Fim. 12. nóv. í Reykjavík.  Íþróttasálfræði

Fim. 19. nóv. á Akureyri.  Siðfræði/forvarnir.

Fim. 26. nóv. í Reykjavík.  Siðfræði/forvarnir

Fyrirlesarar/kennarar á framangreindum fræðslukvöldum verða m.a. eftirtaldir:

Rúnar Andrason                                  Sálfræðingur

Hafrún Kristjánsdóttir              Sálfræðingur

Fríða Rún Þórðardóttir                         Næringarfræðingur

Örvar Ólafsson                                    Verkefnisstjóri hjá ÍSÍ

Stefán Ólafsson                                   Sjúkraþjálfari

Viðar Sigurjónsson                  Sviðsstjóri fræðslusviðs ÍSÍ


HSH

Nafn:

Héraðssamband Snæfellsnes og Hnappadalssýslu

Farsími:

865-0294

Afmælisdagur:

24 september 1922

Heimilisfang:

Sólvellir 3. 350 Grundarfirði

Heimasími:

436-1635

Önnur vefsíða:

umfi.is

Kennitala:

620169-5289

Bankanúmer:

0191-15-370322

Tenglar

Flettingar í dag: 92
Gestir í dag: 30
Flettingar í gær: 1079
Gestir í gær: 143
Samtals flettingar: 902986
Samtals gestir: 96631
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 05:03:28
Flettingar í dag: 92
Gestir í dag: 30
Flettingar í gær: 1079
Gestir í gær: 143
Samtals flettingar: 902986
Samtals gestir: 96631
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 05:03:28