15.08.2012 09:37
SAM-VEST samæfing í frjálsum í Borgarnesi - fyrir 11 ára og eldri
Föstudaginn 17. ágúst kl. 17.00 verður haldin þriðja og síðasta samæfing sumarsins, á Skallagrímsvelli í Borgarnesi.
Athugið breytta dagsetningu frá dagskrá sem birt var í vor.
Hér er um að ræða sameiginlega æfingu fyrir 11 ára (árgangur 2001) og eldri í frjálsum (öll félög á Vesturlandi og nágr.)
Skipt verður í hópa og farið í allar helstu greinarnar í frjálsum íþróttum.
Endilega látið Kristínu Höllu vita sem fyrst hverjir hafa áhuga á að mæta (s. 899 3043 eða
kristhall@centrum.is) - og hvort þið hafið far í Borgarnes.
með kveðju,
frjálsíþróttaráð UMFG
Kristín Halla - Björg - Jóhann R.