Sigursælar Vestarr konur. Um
helgina fóru 16 konur frá GVG á Vesturlandsmót kvk. sem haldið var í
Borganesi. Sumar fóru á Laugardegi aðrar komu á Sunnudegi. Mótið fór
fram á Sunnudeginum og var leikið í öllum gerðum af veðri sem kom sér
vel þar sem við erum vanar ýmsum veðurbrigðum.Vestarr konur gerðu sér
lítið fyrir og sópuðu til sín öllum verðlaunum. Höggmeistari Vesturlands Hurgún Elísdóttir á 89 höggum. Punkatmeistari Vesturlands Kolbrún Haraldsdóttir á 42 punktum. Sveitakeppnina unnu Vestarr konur, í sveitinni eru Kolbrún Haraldsdóttir 42 punktar Kartrín Elísdóttir 41 punktur Freydís Bjarnadóttir 36 punktar Bryndís Theódórsdóttir 34 punktar. Heim komum við sigursælar með styttuna góðu og fáum að geyma hana í ár. Vestarr konur til hamingju með sigurinn.