|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
19.08.2010 19:35Snæfellsnes - GrindavíkÍ dag áttust við Snæfellsnes og Grindavík í 4 flokk karla 11 manna bolta. Leikurinn fór fram við ágætis aðstæður í Stykkishólmi. Svolítill vindur en annars allt á ágætum málum. Lið Snæfellsnes var þannig skipað: Þorgeir í marki Emil Robert í hægri bak Kristinn Hrafns í vinstri bak Ármann og Kristinn P voru miðverðir Ólafur hægri kantur Bergur Einar vinstri kantur Hilmar Orri og Rakel Sunna á miðjunni Vignir fyrir framan miðju Óttar frammi Bekkur: Sigþór Daði Kristján Arnar Viktor Andri Viðar Við byrjuðum á móti vindi og vorum með yfirhöndina í þessum leik. það var snemma leiks að Bergur kemst upp kantinn, gefur fyrir á Óttar sem á skot á markið, markvörðurinn ver og Ólafur nær frákastinu og nær að lauma boltanum í netið og staðan orðin 1-0. Andri Viðar kom inná fyrir Emil og fór í vinstri bak og þá færði Kristinn Hrafns sig í hægri bak. Viktor kom inn fyrir Berg Einar. Þannig var staðan í hálfleik. Í seinni hálfleik kom Sigþór inn fyrir Ólaf á hægri kantinn. Þá vorum við með vindinn í bakið og vorum að skapa okkur ágætis færi. Rakel Sunna var mjög óheppinn að bæta ekki við marki en það kom samt ekki að sök því að Hilmar Orri kom okkur í 2-0 með góðu langskoti. Örskömmu eftir það vorum við aðeins værukær í vörninni því að Grindavík komst yfir miðju í fyrsta sinn í hálfleiknum og minnkaði muninn í 2-1. Við það efldust Snæfellsnes liðar bara og héldu áfram að sækja linnulaust. Það var svo þegar skammt var til leiksloka að Kristinn P spólaði sig í gegnum vörnina og smellti blöðrunni í netið og gulltryggði stigin 3 sem í boði voru. Kristján Arnar kom inná fyrir Þorgeir í markinu sem var orðinn hel blár af kulda og aðgerðarleysi. Þá var tekið á það ráð að smella Þorgeiri í sóknina til að koma blóðinu á hreyfingu í drengnum. Leiknum lauk svo með 3-1 sigri okkar manna. Allir í Snæfellsnes liðinu voru að spila mjög vel og það var sérstaklega gaman að sjá hvað Rakel Sunna var öflug. Hún stóð sig mjög vel og gaf strákunum ekkert eftir. Snæfellsnes eru komnir með 19 stig í riðlinum og eru sem stendur í öðru sæti á eftir Fjölni 2 sem er með 20 stig en á einn leik til góða. Næsti leikur Snæfellsnes er einmitt gegn Fjölni 2 í Grafarvoginum og fer hann fram fimmtudaginn 26 ágúst næstkomandi kl 17:00 Skrifað af Tommi |
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 466 Gestir í dag: 91 Flettingar í gær: 586 Gestir í gær: 147 Samtals flettingar: 826965 Samtals gestir: 86202 Tölur uppfærðar: 7.2.2012 19:51:30 |