Tvöfalt hærri vinningur
Gerðar hafa verið breytingar á útborgunarhlutfalli í getraunum
sem taka gildi í þessari viku. Nú fá tipparar helmingi hærri upphæð
fyrir 13 rétta en áður í Enska seðlinum og Evrópuseðlinum. 65% af
upphæðinni sem tippað er fyrir fer í vinninga í stað 46% áður og bætast
því milljónatugir við vinningana. Nú tippa allir í Getraunum.
160 milljónir!!
Meðal nýjunga í Getraunum sem taka gildi í þessari viku, er að
ef tippari er stakur með alla 13 leikina rétta á Enska seðlinum, fær
hann tryggðar 10 milljónir sænskra króna í vinning eða um 160 milljónir
íslenskra króna. Þetta gildir ekki á Evrópuseðlunum.