|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
11.08.2010 11:287 manna bolti 4fl kk4 flokkur karla í 7 manna boltanum fór í keppnisferð á Hvolsvöll síðastliðinn mánudag og keppti við KFR í blíðskapar veðri. Þeir sem fóru voru: Arnar Andri Már Andri Viðar Emil Robert Ólafur Sigþór Sævar Þorgeir Við vorum frekar fáliðaðir í þessari ferð og auk þess var Andri Viðar með mikið kvef þannig að hann gat ekki beitt sér að fullu. Við byrjuðum leikinn af krafti og það var ekki mikið liðið af leiknum þegar Sigþór slapp í gegn og kláraði færið af harðfylgi og kom okkur í 1-0. KFR jafnaði skömmu síðar og laumuðu svo einu marki fyrir lok hálfleiksins. Í síðari hálfleik fór að draga verulega af okkar mönnum og þreytan farin að segja til sín því fátt var um menn á bekknum til að leysa af. KFR skoraði 3 mörk í röð og staðan orðin 5-1. Þegar skammt er eftir af leiknum fáum við aukaspyrnu rétt fyrir utan teig. Arnar stillir sér upp við boltann og smyr hann í fjærhornið og lagar stöðuna fyrir okkur. Mjög vel gert hjá honum og staðan orðin 5-2. Þannig var staðan þegar dómarinn flautaði til leiksloka. Við gátum gengið stoltir af velli enda strákarnir búnir að gefa allt sitt í leikinn og stóðu sig með mikilli prýði. Skrifað af Tommi |
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 521 Gestir í dag: 103 Flettingar í gær: 586 Gestir í gær: 147 Samtals flettingar: 827020 Samtals gestir: 86214 Tölur uppfærðar: 7.2.2012 22:03:28 |