09.08.2010 19:09
Ólafsvíkurvöllur skartaði sínu fegursta
þegar heimamenn í Víking tóku á móti Völsungi frá Húsavík í dag.
Leikurinn fór fjörlega af stað og á fyrstu tveimur mínútum leiksins
hafði hvort liðið um sig átt kjörið marktækifæri. Gestirnir nýttu sér
misskilning í vörn heimamanna þegar Hrannar B. Steingrímsson átti gott
skot sem fór rétt yfir mark Víkings strax á fyrstu mínútu. Í kjölfarið
sparkaði Einar frá markinu sínu og Tomasz Luba varnarmaður Víkings átti
góða sendingu inn fyrir vörn Völsungs þar sem Edin Beslija kom á fullri
ferð og var sloppinn einn gegn Steinþóri í marki Völsungs. Skot Edins
var hins vegar ekki nógu hnitmiðað og fór knötturinn hárfínt framhjá.
Víkingar
voru mun sterkari aðilinn í fyrrihálfleik en framanaf áttu þeir í
erfiðleikum með að koma knettinum í markið en nóg var um færin.
Þorsteinn Már Ragnarsson kom knettinum í netið á 18. mínútu eftir
sendingu frá Sindra Má Sigurþórssyni en markið var dæmt af vegna
rangstæðu. Aðeins nokkrum mínútum síðar tókst Víkingum svo að opna
markareikninginn. Þar var að verki Aleksandrs Cekulajevs sem hefur verið
að skora mikið upp á síðkastið fyrir Víking. Aleks fékk sendingu inn
fyrir vörn Völsungs frá Eldari Masic, tók varnarmann Völsungs á og setti
knöttinn í hornið nær framhjá Steinþóri í marki gestanna.
Víkingar
gengu á lagið og einungis þremur mínútum síðar fengu þeir vítaspyrnu
eftir að brotið var á títtnefndum Aleks. Sigurhjörtur Snorrason var ekki
í nokkrum vafa og benti beint á punktinn þrátt fyrir kröftug mótmæli
gestanna í Völsungi. Artjoms Goncars steig á punktinn og skoraði af
öryggi. Staðan orðin 2-0 eftir 25 mínútna leik og forysta heimamanna
fyllilega verðskulduð.

Heimamenn
voru mun líklegri til að bæta við heldur en gestirnir að minnka muninn
og á 39. mínútu slapp Þorsteinn Már Ragnarsson einn inn fyrir vörn
Norðan-manna og átti aðeins eftir að koma knettinum framhjá Steinþóri
markverði. Þorsteinn reyndi að chippa knettinum yfir Steinþór sem lokaði
markinu vel og endaði boltinn í hliðarnetinu. Eftir þetta gerðist fátt
markvert og var staðan því 2-0 þegar Sigurhjörtur Snorrason flautaði til
leikhlés.
Síðari hálfleikur fór fjörlega af stað líkt og sá
fyrri. Víkingar pressuðu gestina hátt á vellinum og á 50. mínútu fékk
Þorsteinn kjörið marktækifæri eftir frábærann undirbúning Eldars, Edins
og Aleks sem höfðu sundurspilað vörn gestanna frá Húsavík. Þorsteini
brást þó bogalistinn og náði ekki að stýra knettinum á markið og þar við
sat.
Þegar líða tók á síðari hálfleik sóttu Völsungar í sig
veðrið og voru í tvígang mjög nálægt því að minnka muninn. Fyrst Elfar
Aðalsteinsson sem átti skot í hliðarnetið á marki Víkings af stuttu færi
og svo Bjarki Baldvinsson sem skaut framhjá í ákjósanlegu færi. Síðustu
tíu mínútur leiksins einkenndust af skyndisóknum beggja liða sem hver
af annarri rann út í sandinn á síðasta fjórðungi vallarins.
Svo
fór að hvorugu liðinu tókst að skora það sem eftir lifði leiks og fóru
Víkingar með 2-0 sigur af hólmi sem fleytir þeim í toppsæti deildarinnar
að nýju. Aðeins eitt stig skilur Víkinga frá BÍ/Bolungarvík sem er í
öðru sæti en Ólafsvíkingar eiga leik til góða á móti Aftureldingu sem
verður háður þann 18. ágúst