|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
27.07.2010 14:04UMFG - Léttir, 4-4Þvílíkur leikurÞað var frábært veður og þvílík stemming þegar að Grundarfjörður og Léttir mættust síðasta föstudagskvöld.![]() Það var þétt setið í brekkunni enda bæjarhátíðin "Á Góðri Stund" haldin í 16 sinn. Byrjunarlið Grundarfjarðar var: Viktor í marki Jón Steinar hægri bak Aron vinstri bak (Fyrirliði) Jón Frímann og Beggi miðverðir Almar hægri kantur Arnar Dóri vinstri kantur Semek og Hrannar á miðju Hilmir og Heimir Þór frammi Við byrjuðum ágætlega og vorum að pressa. Það var svo gegn gangi leiksins þegar að Léttir komst yfir og skömmu eftir það þá komust þeir í 2-0. Þetta leit ekkert allt of vel út en við lögðum ekki árar í bát. Það var eftir mikið harðfylgi að Hilmir minnkaði muninn í 2-1 og svo fiskaði hann víti skömmu síðar sem að Heimir Þór skoraði örugglega úr og jafnaði metin 2-2. Í síðari hálfleik var það sama uppá teningnum. Við vorum að sækja og skapa okkur færi þegar að það varð smá klaufagangur í vörninni og við misstum mann innfyrir sem að kom Létti í 3-2 fyllilega óverðskuldað. Skömmu eftir það skoruðu svo Léttismenn þvílíkt mark með skoti af 30 metra væri sem að Viktor réð ekkert við og staðan því orðin 4-2 og útlitið ekkert allt of bjart. Þá kemur Runni inná þegar 20 mín voru eftir og hann var ekki lengi að setja mark sitt á leikinn... Mjög skömmu eftir að hann kom inná þá slapp hann einn í gegn og kláraði færið af mikilli yfirvegun. Staðan orðin 4-3 og lítið eftir. Stuttu síðar geysast Grundfirðingar aftur í sókn og boltinn berst á Runna sem jafnar leikinn 4-4 og allt ætlaði að verða vitlaust í stúkunni. Frábær endurkoma í annað skiptið í leiknum. Við fengum svo dauðafæri rétt undir lok leiksins þegar að Heimir Þór sólaði sig í gegnum alla vörn Léttis og renndi boltanum á Runna en á einhvern óskiljanlegan hátt þá fór boltinn yfir markið. Runni var virkilega óheppinn í það skiptið en svona er þetta bara. Grundarfjörður - Léttir 4-4 Hilmir Heimir Þór Runni 2 Áhorfendur fengu eitthvað fyrir peninginn því 8 mörk litu dagsins ljós og mikil stemming. Næsti leikur er á morgun við KB í breiðholtinu. |
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 222 Gestir í dag: 56 Flettingar í gær: 553 Gestir í gær: 104 Samtals flettingar: 827274 Samtals gestir: 86271 Tölur uppfærðar: 8.2.2012 14:55:17 |