22.07.2010 19:57
Almar í Grundarfjörð (Staðfest)
Grundarfjörður
hefur styrkt sig verulega fyrir komandi átök á tímabilinu. Eftir langar
og strangar samningaviðræður við Tindastól þá náðust samningar loksins
rétt undir miðnættið í gær um kaup á Almari Viðarssyni. Tindastólsmenn
gáfu sig loks þegar formaður UMFG bætti einum höldupoka af heimabökuðum
kleinum frá Laugu á Hömrum inní kaupverðið.
Þá tók við
samningaviðræður við leikmannin sjálfan og var það T-Bone sem stýrði
þeim viðræðum. Laun eru samkvæmt kjarasamningum uppaldra skagamanna en
það ku vera 34 appelsínur á mánuði.
Ekki minnkar fegðurðin í liðinu við þessi kaup.
Við bjóðum Almar velkominn í Grundarfjörð en hann verður í hópnum á morgun og mun fá tækifæri til að standa undir verðmiðanum.
Tommi