17.07.2010 10:07
VISA bikarinn - Ólafsvíkingar heimsækja Íslandsmeistarana
1. deildarlið ÍBV tekur á móti Stjörnunni hjá
konunum
Á þriðjudag var dregið í undanúrslitum VISA bikars karla og kvenna og
fór drátturinn fram í höfuðstöðvum KSÍ. Hjá konunum fá Íslands- og
bikarmeistarar Vals Þór/KA í heimsókn og ÍBV tekur á móti Stjörnunni.
Hjá körlunum verður Reykjavíkurslagur í Vesturbænum þegar KR tekur á
móti Fram og Íslandsmeistarar FH taka á móti 2. deildarliði Víkings
Ólafsvíkur.
Undanúrslitin í VISA bikar kvenna fara fram laugardaginn 24. júlí en
hjá körlunum verður leikið 28. og 29. júlí.


