17.07.2010 09:57
Auglýst er eftir umsóknum úr Umhverfissjóði UMFÍ -
Minningarsjóði Pálma Gíslasonar
Tilgangur sjóðsins er að styrkja umhverfisverkefni félaga
eða einstaklinga innan ungmennafélagshreyfingarinnar. Stofnendur
sjóðsins eru fjölskylda Pálma Gíslasonar, fyrrverandi formanns UMFÍ,
ásamt ungmennafélagshreyfingunni og öðrum velunnurum.
Reglugerð um sjóðinn ásamt umsóknareyðublaði er á
heimasíðu UMFÍ (www.umfi.is) undir styrkir. Umsóknum skal skila til skrifstofu UMFÍ,
Sigtúni 42, 105 Reykjavík fyrir 1. ágúst 2010.