|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
10.07.2010 20:07Víkingur lagði Víðir, 2-1
2.deild:
Ólafsvíkingar kláruðu Víði í lokin
Víðir 1 -
2 Víkingur Ólafsvík
0-1 Björn Bergmann Vilhjálmsson ('48) 1-1 Tomasz Luba ('88) 1-2 Þorsteinn Már Ragnarsson ('90) Rautt spjald: Gísli Örn Gíslason (Víðir) ('24) Víkingur Ólafsvík heldur áfram sigurgöngu sinni í annarri deild karla en liðið lagði Víði Garði 2-1 á útivelli í kvöld. Víðismenn misstu Gísla Örn Gíslason af velli um miðan fyrri hálfleik þegar hann fékk dæmda á sig vítaspyrnu. Brynjar Kristmundsson fór á punktinn en Bojan Vranic varði vítaspyrnuna. Björn Bergmann Vilhjálmsson kom Víði síðan yfir og lengi vel leit út fyrir að heimamenn væru að landa sigri. Tomasz Luba skoraði hins vegar jöfnunarmarkið skömmu fyrir lok venjulegs leiktíma áður en Þorsteinn Már Ragnarsson skoraði sigurmarkið í viðbótartíma. Þetta var tíunda mark Þorsteins í sumar en hann er markahæsti leikmaður deildarinnar. Víkingur er eftir sigurinn með 26 stig á toppnum, sjö stigum á undan BÍ/Bolungarvík sem á leik til góða. Frétt frá Fótbolta.net. Sjá alla fréttina: http://fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=93996#ixzz0tJP5Mt3s |
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 217 Gestir í dag: 54 Flettingar í gær: 553 Gestir í gær: 104 Samtals flettingar: 827269 Samtals gestir: 86269 Tölur uppfærðar: 8.2.2012 14:12:34 |