|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
10.07.2010 20:02Meistarmót VestarrMeistaramótiðJæja félagar, þá er frábæru meistaramóti lokið.Kári var því miður í alltof stóru hlutverki á þessu móti sem verður sennilega minnst fyrir norðanáttina sem barði keppendur alla daganna og náði að stela af okkur einum keppnisdegi. En félagar Vestarr sýndu mikið baráttuþrek og hörkuðu þetta af sér. Á síðasta deginum var síðan skellt upp mikilli og fínni grillveislu sem tókst í alla staði mjög vel. Talsvert var af nýju fólki á mótinu sem var sérstaklega ánægjulegt. Niðurstaða mótsins var þessi: Í unglingaflokki var Bergur E. Dagbjartsson í fyrsta sæti á 342 höggum Í kvennaflokki var Hugrún Elísdóttir í fyrsta sæti á 279 höggum Í öldungaflokki var Sverrir Karlson í fyrsta sæti á 321 höggi Í öðrum flokki karla var Ágúst Jónsson í fyrsta sæti á 281 höggi Í fyrsta flokk karla var Pétur Vilberg Georgsson í fyrsta sæti á 250 höggum Punktameistari Vestarr á meistaramóti þetta árið var Ágúst Jónsson á 103 punktum. Hér eru svo allar niðurstöður mótsins Að lokum er vert að koma þökkum til mótsstjórnar og allra þeirra sem lögðu hönd á plóginn til þess að gera þetta mót eins glæsilegt og vel heppnað eins og raunin varð á. Þegar Sverrir sendir mér myndir munum við skella þeim inn hér á síðuna. |
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 222 Gestir í dag: 56 Flettingar í gær: 553 Gestir í gær: 104 Samtals flettingar: 827274 Samtals gestir: 86271 Tölur uppfærðar: 8.2.2012 14:55:17 |