|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
05.07.2010 08:33Frjálsíþróttaskóli UMFÍ
Frjálsíþróttaskóli Ungmennafélags Íslands Frjálsíþróttaskóli Ungmennafélags Íslands verður haldinn í annað sinn á sambandssvæði HSK í sumar, nánar tiltekið 19. - 23. júlí að Laugarvatni. Frjálsíþróttaskólinn er ætlaður ungmennum á aldrinum 11 - 18 ára (f.1992 - 1999). Ungmennin koma saman á hádegi á mánudegi en skólanum lýkur á hádegi á föstudegi í sömu viku. Aðaláhersla er lögð á kennslu í helstu greinum frjálsíþrótta en auk þess verður farið í sund, leiki, haldnar kvöldvökur auk þess sem reynt verður að nýta næsta nágrenni Laugarvatn fyrir göngutúra, ratleiki ofl. Ungmennin borga þáttökugjald en innifalið í því er kennsla, fæði og gisting. Það hefur verið stigvaxandi þátttaka í frjálsíþróttaskólanum milli ára þannig að búast má við fjölgun í ár. HSK og undirritaður hvetja þessvegna til þátttöku í skemmtulegum frjálsíþróttaskóla þar sem þátttakendur auka færni sína í frjálsum auk þess sem þeir fá tækifæri til að kynnast nýju fólki og mynda þannig tengsli sem geta varað að eilífu. Þátttakendur er hvattir til að skrá sig á netfang: hsk@hsk.is eða olafur@ml.is einng er hægt að skrá sig á skrifstofu UMFÍ í Reykjavík.. Með kveðju. Ólafur Guðmundsson (Óli Guðm.) Skólastjóri. GSM 867-7755 |
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 217 Gestir í dag: 54 Flettingar í gær: 553 Gestir í gær: 104 Samtals flettingar: 827269 Samtals gestir: 86269 Tölur uppfærðar: 8.2.2012 14:12:34 |