03.07.2010 20:43
Það var Norð-vestann næðingur þegar Víkingar tóku á móti Hetti frá
Egilsstöðum í síðasta leik 9. umferðar 2. deildar á Ólafsvíkurvelli í
dag. Víkingar voru fyrir leikinn í toppsæti deildarinnar en gestirnir í
því þriðja og fyrirfram mátti búast við hörku leik.
Áhorfendur á
vellinum í dag þurftu ekki að bíða lengi eftir fyrsta marki leiksins því
Eldar Masic kom Víkingum yfir strax á 3. mínútu. Víkingar áttu
hornspyrnu þar sem knötturinn datt fyrir Eldar sem átti gott skot
framhjá varnarmönnum gestanna og einnig Þóri í marki Hattar. Staðan því
1-0 eftir þriggja mínútna leik.,
Nánari lýsing er á víkingsíðunni.
Meðfylgjandi myndir tók Ólafur Hlynur Illugason
Úr
leiknum í kvöld

Úr
leiknum í kvöld

Eldar kom okkar mönnum á bragðið í kvöld.