|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
03.07.2010 20:42Loksins sigur hjá UMFGLoksins náðu
Grundfirðingar í sinn fyrsta sigur í sumar. Það voru Augnabliksmenn úr Kópavoginum sem komu í heimsókn í fjörðinn fagra þetta föstudagskvöld. Byrjunarlið Grundarfjarðar var þannig skipað. Viktor í marki Jón Steinar í hægri bak Aron í vinstri bak Beggi Sveins og Jón Frímann miðverðir Gulli Smára á hægri kanti Arnar Dóri á vinstri kanti Ragnar Smári og Semek á miðju Hilmir og Heimir Þór frammi Á bekknum sátu. Tommi Runni Hinni Konn Árni Þór Birkir Bald Um liðsstjórnina sáu þeir Tryggvi Árni Friðjón Gústi Alex Sigurbjörn Lagt var upp með kerfið 4-4-2 og byrjuðum við af miklum krafti. Snemma í leiknum fáum við hornspyrnu, boltinn berst útfyrir teig þar sem að Semek tekur hann viðstöðulaust og smell hittir tuðruna svo að markvörðurinn á í mestu vandræðum, hann nær þó að verja en Gulli fylgdi vel á eftir og var virkilega óheppinn að skora ekki. Stuttu síðar átti Beggi skot í slá eftir klafs í teignum en inn vildi boltinn ekki. Við fengum fleiri færi og vorum betri aðilinn í þessum leik. Samt var 0-0 í hálfleik og í síðari hálfleik áttum við að spila með vindi. Augnablik voru mun sprækari í síðari hálfleik heldur en þeim fyrri og með smá heppni hefðu þeir getað refsað okkur fyrir klaufaskapinn í fyrri hálfleik. Við vorum orðnir heldur óþreyjufullir þegar að Viktor á langt útspark, Heimir Þór geysist á eftir boltanum og fer með hann að hornfánanum. Þar leikur hann snyrtilega á varnarmanninn og fer framhjá honum á glæsilegan hátt. Hann æðir í átt að markinum og varnarmaðurinn á eftir. Varnarmaðurinn fer aftan í hann og dómarinn dæmir víti. Heimir stígur sjálfur upp og skorar af miklu öryggi og kemur okkur í 1-0 á 85 mínútu. Mínúturnar sem eftir lifðu voru ansi taugatrekkjandi og lengi að líða. En gríðarlegur fögnuður braust út þegar Maggi dómari flautaði til leiksloka og fyrsti sigurinn staðreynd. Við þennan sigur lyftum við okkur af botni riðilsins og uppfyrir Augnablik. Þökkum stuðninginn í kvöld en áhorfendur voru frábærir. Takk fyrir okkur. ![]() Lúxusleikmaðurinn Blanco (Heimir Þór) settann úr víti í kvöld. |
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 220 Gestir í dag: 56 Flettingar í gær: 553 Gestir í gær: 104 Samtals flettingar: 827272 Samtals gestir: 86271 Tölur uppfærðar: 8.2.2012 14:33:47 |