29.06.2010 07:35
Víkingar Ólafsvík höfðu
heppnina með sér þegar dregið var í 8-liða úrslit Visa-Bikarsins fyrir
helgina. Þeir fá heimaleik á móti úrvalsdeildarliði Stjörnunnar og hefðu
varla getað verið heppnari, nema þá að fá sem mótherja 1. deildarlið KA
sem fær það erfiða hlutskipti að sækja Íslandsmeistara FH heim í
Kaplakrika. Hinir tveir leikirnir eru Fram - Valur og KR - Þróttur R.
Átta-liða úrslitin byrja með leik FH og KA sunnudaginn 11. júlí en
daginn eftir eru síðan hinir þrír leikirnir. Stjörnunni, sem leikur sína
heimaleiki á gervigrasi, hefur löngum gengið erfiðlega á útivöllum, en
sigraði reyndar Íslandsmeistara FH núna í Kaplakrikanum í
Pepsí-deildinni og þar á undan BÍ/Bolungarvík í 16-liða úrslitunum fyrir
vestan.