|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
18.06.2010 11:28Víkingur - ÍH í kvöldVíkingar heimsækja ÍH í kvöldVíkingar munu í dag heimsækja ÍH að Ásvöllum þar sem liðin eigast við í 6. umferð 2. deildar karla. Víkingar hafa hikstað lítillega í síðustu tveimur leikjum og má búast við að þeir mæti ákveðnir til leiks í Hafnarfjörðinn í kvöld. Eftir jafntefli við fyrst Völsung og svo Reyni í síðustu umferð eru Víkingar í þriðja sæti deildarinnar með 11 stig en liðin á toppnum hafa bæði 13.
Með sigri í kvöld og hagstæðum úrslitum í öðrum leikjum geta Víkingar komist í 1. sæti deildarinnar og því að miklu að keppa. ÍH hefur ekki farið vel af stað í sumar og situr sem stendur í 11 sæti en þrátt fyrir dapurt gengi má búast við erfiðum leik í kvöld. Hafnfirðingarnir leika á gervigrasi en þar kom einmitt eini sigur liðsins í sumar, gegn Hvöt í annarri umferð.
Miklar breytingar hafa orðið á liði ÍH frá því á síðustu leiktíð og ætla má að þeir séu enn að finna rétta taktinn. Í fyrra spilaði liðið undir formerkjum ÍH/HV en því samstarfi lauk í lok árs 2009. ÍH/HV endaði í 6. sæti og var varnarleikur liðsins einn af þeirra aðal akkilesarhælum þar sem liðið fékk á sig næst flest mörk í deildinni, alls 47. Það sem af er móts í ár hefur liðið fengið á sig 12 mörk og aðeins einu sinni náð að halda markinu hreinu. Ólíkt Víkingum þá hefur ÍH gengið illa að skora en liðið hefur einungis náð að koma knettinum þrisvar í net andstæðinganna í sumar. |
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 440 Gestir í dag: 85 Flettingar í gær: 586 Gestir í gær: 147 Samtals flettingar: 826939 Samtals gestir: 86196 Tölur uppfærðar: 7.2.2012 18:57:27 |