|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
16.06.2010 07:28Sumarsólstöðuganga á SnæfellsjökulSumarsólstöðuganga á Snæfellsjökul 18.júní
Brottför frá Mörkinni 6 kl. 17 og ekið vestur að jökli. Stutt stopp og
fræðsla að Hellnum um þjóðgarð og jökul. Lagt af stað í gönguna kl. 21
og er gengið úr Eysteinsdal að norðanverðu og þar upp sérlega fallega og
fáfarna gönguleið. Þátttakendur baða sig í miðnætursólinni á tindi
Snæfellsjökuls um miðnættið. Nokkrir listamenn verða með nokkurs konar
gjörninga í leiðangrinum og gefst þátttakendum kostur á leggja sitt af
mörkum. Verð: 5000 / 7000 í einkabíl - 7000 / 9000 með rútu. Skráning og greiðsla fyrir 1. júní Sumarsólstöður eru dularfullur tími. Þá fljóta óskasteinar uppi í tjörnum og óútskýranlegir hlutir gerast. Náttúran öll hefur á sér yfirbragð frjósemi og lífmagns sem er svo kröftugt að fáir standast áhrif þess. Sérstök upplifun er að ganga á vit náttúrunnar á þessari sérstöku stund í tímatalinu og njóta hinnar björtu sumarnætur sem aldrei verður bjartari en einmitt þá. Ferðafélag Íslands hefur áratugum saman boðið upp á sérstakar fjallgöngur um sumarsólstöður. Að þessu sinni verður gengið á magnaðasta fjall landsins, Snæfellsjökul og ætlunin að standa á toppi fjallsins skömmu eftir miðnætti og fylgjast með sólinni skríða nálægt eldrauðum haffletinum.
Snæfellsjökull er 1446 metra hár og óumdeilt meðal fegurstu fjalla
landsins. Þangað eru tíðar ferðir með snjóbílum og hvers kyns vélknúnum
ökutækjum en Ferðafélag Íslands fer að sjálfsögðu gangandi á tindinn.
Þeir sem fyrstir gengu á Snæfellsjökul svo vitað sé með vissu voru
landkönnuðirnir Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson. Þeir gengu á
jökulinn hinn 1. júlí 1753 og stóð ferð þeirra í 11 klst. Meðferðis
höfðu þeir áttavita, hitamæli, loftvog, sterka taug ef bjarga þyrfti
manni úr sprungu og njarðarvött vættan með ediki til að þefa af ef
loftið yrði of þunnt. Þeir gengu á íslenskum skóm og höfðu slæðu fyrir
augum til að verjast snjóbirtu og komust upp á hæstu jökulþúfuna með því
að höggva spor með hnífum og broddstöfum í ísinn. För þeirra þótti vera
hreint glapræði og fífldirfska. Ferðafélag Íslands verður ekki með njarðarvetti og edik í för sinni heldur nóg af góðu skapi og göngugleði. Lagt verður af stað frá Reykjavík kl. 21.00 að kvöldi og ekið vestur undir Jökul. Ekið verður vestur og norður fyrir jökulinn og lagt af stað úr Eysteinsdal sem er leynidalur norðan við Hreggnasa og þaðan gengið fáfarnar og fagrar slóðir á vit jökulsins.
Snæfellsjökull hefur alltaf þótt búa yfir sérstöku dulmagni og
jafnvel hversdagslegustu ferðalangar verða undarlega hulduhrútslegir
þegar jökulinn nær valdi á þeim. "Ég býst fastlega við að orka jökulsins leiði óþekkta krafta úr læðingi," segir Páll Guðmundsson fararstjóri sem rifjar einnig upp þegar lendingu geimvera var spáð á Snæfellsjökli fyrir fáum árum og hópur manna beið árangurslaust í heilt dægur eftir heimsókn úr öðru sólkerfi. Ferðin er farin í samstarfi félagsins við Þjóðgarðinn Snæfellsjökul og verða leiðsögumenn þjóðgarðsins með í för. Félagið og þjóðgarðurinn munu beita sér fyrir því að þetta tiltekna kvöld og nótt verði ekki umferð vélknúinna ökutækja um jökulinn svo göngumenn fái notið kyrrðarinnar ósnortnir af gný nútímans.
Fararstjórar í þessum leiðangri verða hjónin Páll Guðmundsson og
Auður Elva Kjartansdóttir og njóta þau aðstoðar leiðsögumanna
Ferðafélagsins eftir þörfum en þátttaka í sólstöðugöngum félagsins
undanfarin ár hefur stundum hlaupið á hundruðum farþega. |
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 481 Gestir í dag: 96 Flettingar í gær: 586 Gestir í gær: 147 Samtals flettingar: 826980 Samtals gestir: 86207 Tölur uppfærðar: 7.2.2012 20:51:54 |