|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
13.06.2010 23:00Snæfellsnes samstarfið, fréttirNú er Íslandsmótið í knattspyrnu hafið og á Fótboltasamstarfið á Snæfellsnesi lið í öllum flokkum karla og kvenna, að 2.fl kv undanskildum, alls 14 lið. Leikirnir í sumar hafa verið á þannig að A lið 5.fl ka heimsótti Víði Garði og vann 1-3 B lið 5.fl ka fór á Ásvelli og tapaði þar fyrir Haukum 2 9-2. Þann 2.júní tók A lið á móti Þrótti Vogum í Ólafsvík og unnu okkar strákar leikinn 18 - 0. 5.fl ka fór á Álftanes þann 9. Júní og tapaði A lið þar 4 - 2 en B lið 5.fl ka vann 3-5. Stelpurnar í 5.fl kv eru búnar með einn leik og töpuðu þær á móti Reyni S 4-2. Í 4.fl karla og kvenna erum við bæði með 11 og 7 manna lið. 4.fl karla 11m hafa spilað ein leik og unnu þar Ægi 8-1 á Ólafsvíkurvelli. 7 manna liðið er einnig búið með einn leik en þeir töpuðu fyrir Reyni S 2-5. Strákarnir í 11 manna liðinu fara um helgina og spila við Sindra á Höfn en 7 manna liðið á næst leik við Víðir í Garði. Stelpurnar í 4.fl 11 manna eru búnar með 3 leiki. Þær töpuðu á fyrir ÍR vellinum 4-3, unnu Leikni 11 - 1 og gerðu jafntefli við lið Keflavíkur 2-2. Næsti leikur þeirra er við KR þann 13.júní. 7 manna lið 4.fl kv er ekki búið að spila neinn leik á Íslandsmótinu. Í 3.fl karla og kvenna ásamt 2.fl karla senda Snæfellsnes og Skallagrímur sameiginleg lið til keppni. 3.fl karla tók þátt í Vísa bikarnum og tapaði það fyrir liði Grindavíkur 2-4. Á Íslandsmótinu er 3.fl ka búin með 2 leiki gerðu 3-3 jafntefli við lið Hrunamenn og töpuðu 0-2 fyrir liði Leiknis. 3.fl kvenna tekur þátt í Vísabikarnum en hefur enn ekki spilað þar sem liðið sem þær áttu að spila við skráðu sig úr keppni. Þær mæta liði Fylkis þann 25.júní á Ólafsvíkurvelli. Einn leikur á Íslandsmótinu hefur farið fram og töpuðu þær á Skallagrímsvelli fyrir Álftanesi 2-4. Lið 2.fl karla tapaði í Vísa bikarnum fyrir sameiginlegu lið Grindavíkur og Njarðvíkur 8-0. Á Íslandsmótinu töpuðu þeir fyrir Gróttu 6-0 en gerðu 1-1 jafntefli við lið Leikni/KB. Þeir mættu svo Aftureldingu og töpuðu fyrir þeim 2-0.
Skrifað af Eygló |
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 521 Gestir í dag: 103 Flettingar í gær: 586 Gestir í gær: 147 Samtals flettingar: 827020 Samtals gestir: 86214 Tölur uppfærðar: 7.2.2012 22:03:28 |