|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
13.06.2010 11:06Ýmir - UMFG 3-3Fyrsta stigiðJæja þá er fyrsta stigið komið í hús eftir mikinn baráttuleik við Ými í Fagralundi.Byrjunarliði var: Viktor í marki Ingi Björn hægri bak Gulli Smára vinstri bak Jón Frímann og Aron miðverðir Tryggvi hægri kantur Jón Steinar vinstri kantur Ragnar Smári og Hrannar á miðju Heimir og Hilmir frammi Á bekknum sátu: Arnar Dóri Tommi Birkir Árni Þór Runni Við byrjuðum ágætlega og vorum að pressa svolítið upp völlinn. Vorum að skapa okkur ágætis færi en á 12 mínútu sleppa Ýmis menn í gegnum vörnina og ná að setja fyrsta markið. Rangstöðulykt segja sumir en látum það kyrrt liggja. Við reynum bara að halda haus og halda áfram. Heimir Þór á mjög gott skot sem markvörðurinn nær að verja naumlega. Á 29 mín. eiga Ýmismenn hornspyrnu. Boltinn skoppar fram hjá 3 varnarmönnum sem ná samt ekki að hreinsa hann burt og Ýmismenn ná að setja boltann í netið. Þannig var staðan í hálfleik... semsagt 2-0 fyrir Ými. Í seinni hálfleik er ekkert annað að gera en að reyna að halda áfram en á 55 mín verður Jón Frímann fyrir því óláni að skora sjálfsmark og útlitið orðið dökkt fyrir okkar menn. En það var lítið annað að gera en að halda áfram að pressa. Arnar Dóri kom inn fyrir Jón Steinar og átti góða spretti. Á 80 mínútu sleppur Hilmir inn fyrir vörnina, leikur á markvörðinn sem fellir hann innan vítateigs og dómarinn dæmir vítaspyrnu. Hilmir stígur á punktinn og skorar og minnkar muninn í 3-1. Á 84 mín fær Hrannar Már sitt annað gula spjald og er sendur í sturtu og við því einum færri. Við það eflumst við bara og Runni kemur inn fyrir Hilmir og á 89 mín. sleppur hann innfyrir vörnina og markvörðurinn fellir hann þegar hann fer framhjá honum. Dómarinn dæmir annað víti og Heimir Þór stígur á punktinn og skorar af miklu öryggi og staðan orðin 3-2 og lítið eftir. Þá er allt lagt í sóknina og á 92 mín. fáum við aukaspyrnu á vinstri kantinum við vítateigshornið. Allir leikmenn Grundarfjarðar hrúga sér inní teig nema Viktor og Birkir sem sat aftur. Tryggvi kemur með boltann inn þar sem að Ragnar Smári skallar hann fyrir markið og eftir eitthvað smá hnoð nær Jón Frímann að kvitta fyrir sjálfsmarkið með því að koma tuðrunni yfir línuna og jafnar metin 3-3. Mikil dramatík og leikmenn Grundarfjarðar fögnuðu gríðarlega mikið. Ýmismenn tóku miðju og í því flautaði dómarinn til leiksloka. Fyrsta stigið staðreynd og þetta er mikið baráttustig sem er gott veganesti í næsta leik sem er heimaleikur á móti Skallagrím. ![]() Hilmir skoraði sitt fyrsta mark fyrir Grundarfjörð. ![]() Heimir Þór settann úr vítaspyrnu. ![]() Jón Frímann setti tvö í dag, eitt í hvort mark. |
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 454 Gestir í dag: 90 Flettingar í gær: 586 Gestir í gær: 147 Samtals flettingar: 826953 Samtals gestir: 86201 Tölur uppfærðar: 7.2.2012 19:24:45 |