09.06.2010 07:25
Þorbergur, Þorgeir (Toggi). Jón Bjarki (Nonni).
Gunnar.Eins og áður hefur komið fram hjóluðu þeir frændur Jón Bjarki og Þorgeir frá Reykjavík til Stykkishólms síðasta föstudag
Jón Bjarki og Þorgeir komu í Hólminn kl 20:30
eftir að hafa hjólað frá Reykjavík. Þeir frændur ákváðu að hafa þennan
hjólasprett til heiðurs kkd Snæfells og hvöttu alla til að heita á þá.
Allt saman gekk þetta vel þó eitt dekk hafi sprungið en eftir að
Helgafellssveitin blasti við í allri sinni dýrð þá héldu þeim engin bönd
og var stigið afkrafti sem aldrei fyrr.
Kkd Snæfells þakkar þeim
kraftmiklu frændum Nonna og Togga hjartanlega heiðurinn að fá að vera
með svo flottu framtaki og fyrir stuðninginn.
Stjórn kkd
Snæfells