|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
08.06.2010 11:24Margeir Ingi, Mostra, fór holu í höggi![]() Kylfingur.is | þriðjudagur 8. júní 2010 | Margeir Ingi lék á ás í KorpunniKylfingurinn Margeir Ingi Rúnarsson úr Golfklúbbnum Mostra í Stykkishólmi, fór holu í höggi á sunnudaginn í öðru stigamóti á Arion-banka unglingamótaröðinni. Margeir leikur í drengjaflokki og fór holu í höggi á hinni erfiðu þriðju holu á Korpúlfsstaðavelli. "Ég miðaði á glompuna vinstra megin og sló með 18° hálfvitanum mínum. Boltinn flaug beint inn á flöt, skoppaði einu sinni á flötinni og fór svo niður," sagði Margeir í samtali við Kylfing.is Þetta er í fyrsta sinn sem Margeir fer holu í höggi en hann er með tíu í forgjöf og er á sínu fyrsta ári á unglingamótaröðinni. Það er síður en svo auðvelt að fara holu í höggi á 3. brautinni en hún er 179 metra löng af gulum teig. Aðspurður kveðst Margeir ósáttur með frammistöðu sína í mótinu í hann varð í 22. sæti í drengjaflokki en bætti sig þó um tíu högg á seinni hringum og lék á 82 höggum.
|
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 481 Gestir í dag: 96 Flettingar í gær: 586 Gestir í gær: 147 Samtals flettingar: 826980 Samtals gestir: 86207 Tölur uppfærðar: 7.2.2012 20:51:54 |