05.06.2010 11:28
04. júní 2010 klukkan 23:19 af víkingssíðunni, meira þar.
Gunnar Örn Arnarson skrifar
frá Húsavík
Víkingar eru mættir Norður á Húsavík eftir langt og strangt ferðalag.
Sem stendur sitjum við í borðstofunni á gistiheimlinum sem við munum
dvelja á í nótt. Hér fer vel um okkur og aðstaðan er eins og best verður
á kosið. Við erum í húsi sem er ný upptekið en síðasti naglinn var
negldur við komu okkar og Ajax-ilmurinn bauð okkur velkomna um leið og
við stigum inn fyrir þröskuldinn. Strákarnir fóru á æfingu hálftíma
eftir komu eða 20:15 að staðartíma. Jónas fór með Þorstein á spítala þar
sem gert var að gifsinu hans á og Alli Netargerðameistari ásamt
undirrituðum fóru í að elda mat ofan í liðið. Á boðstólnum voru
grillaðar kjúklingabringur.
