|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
03.06.2010 09:49Hættu að hangaHættu að hanga! Komdu að hjóla, synda eða ganga!
Þátttakendur skrá niður sína hreyfingu inn á ganga.is eða safna stimplum í göngubók. Göngubókina er hægt er að nálgast á flestum N1 bensínstöðvum landsins og í flestum sundlaugum landsins. Þátttakendur geta nálgast stimpil fyrir sína hreyfingu í afgreiðslu sundlauga landsins.
Einstaklingskeppni Til að taka þátt í einstaklingskeppninni geta þátttakendur skráð sig til leiks inn á ganga.is eða fengið göngubók á næstu N1 bensínstöð eða í sundlaugum landsins. Þátttakendur geta nálgast stimpil fyrir sína hreyfingu í afgreiðslu sundlauga landsins. Sú hreyfing sem hægt er að skrá eða fá stimpil fyrir er að ganga eða skokka 3 kílómetra, ganga á fjöll, hjóla 5 kílómetra eða synda 500 metra.
Sérstök viðurkenning verður veitt þeim sem hreyfa sig í 30, 60 eða 80 skipti. Fyrir að hreyfa sig í 30 skipti fá þátttakendur bronsmerki, silfurmerki fyrir 60 skipti og gullmerki fyrir 80 skipti. Einnig fá heppnir þátttakendur gjafabréf frá Zo-on eftir 30,60 og 80 skipti.
Hægt er að skrá fjallgönguna ýmist þegar hópurinn fer saman eða þegar einstaklingar úr hópnum fara einir eða í öðrum hópi í ferðir á fjall. Sambandsaðilar hafa stungið uppá fjöllum sem verða sérstaklega auglýst til að ganga á en vitaskuld er leyfilegt að skrá inn önnur fjöll til keppni en þau sem tilgreind hafa verið sérstaklega. Fyrirtækin/hóparnir geta síðan skráð stutta lýsingu á ferðinni og sett myndir inn á ganga.is síðuna. Þau fyrirtæki / hópar sem fara flestar ferðir upp á fjöll fá verðlaun.
Hluti af dagskránni verður ganga á Miðfell sem er eitt af tveimur fjöllum sem HSK hefur tilgreint í verkefninu Fjölskyldan á fjallið. Farið verður með póstkassa upp á fjallið á þessum degi og fólk hvatt til að skrifa í gestabókina þegar komið er á toppinn. Stefnt er á að sem flest héraðssambönd fari með kassana sína þennan sama dag.
Verkefnið felst í því að nemendurnir vinni í hópum við að finna gönguleiðir í nágrenni skólans eða í sveitafélaginu sínu sem ekki eru nú þegar að finna á vefnum ganga.is. Nemendurnir taka myndir af leiðinni, tímamæla hana og gera stutta lýsingu á henni. Þegar hópurinn hefur lokið verkefninu senda þeir upplýsingar um leiðina og mynd af hópnum sem vann gönguleiðina inn á UMFÍ. UMFÍ mun senda skólunum skilti til að setja við upphaf hverra gönguleiðar og þar að auki fær hver hópur viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna og sitt framlag. Allar þær gönguleiðir sem nemendur skila inn til UMFÍ verða settar inn á vefinn ganga.is undir nafni viðkomandi skóla. Dagana 8. - 16. september geta nemendur í samráði við kennara tekið frá einn dag til að ganga einhverja gönguleið að eigin vali. |
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 500 Gestir í dag: 100 Flettingar í gær: 586 Gestir í gær: 147 Samtals flettingar: 826999 Samtals gestir: 86211 Tölur uppfærðar: 7.2.2012 21:19:40 |