25.05.2010 15:15
Móttaka til heiðurs Ólafi Rafnssyni
Fimmtudaginn 20 mai var móttaka sem Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og
Körfuknattleikssamband Íslands boðuðu til heiðurs forseta ÍSÍ Ólafi
Rafnssyni, nýkjörnum forseta FIBA Europe.
Meðal þeirra sem mættu
voru forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og íþróttamálaráðherra,
Katrín Jakobsdóttir, ásamt mörgum formönnum sérsambanda, körfuknattleiksdeilda, íþróttabandalaga og Héraðssambanda. Fulltrúi HSH á móttökunni var Garðar Svansson formaður.
F.v.: Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ og FIBA
Europe, Katrín Jakobsdóttir íþróttamálaráðherra, Ólafur Ragnar Grímsson
forseti Íslands, Guðbjörg Norðfjörð varaformaður KKÍ, Hannes S. Jónsson
formaður KKÍ og Gerður Guðjónsdóttir eiginkona Ólafs.