|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
20.05.2010 08:55Hefur þú áhuga á að fara til Danmerkur?Norræn ungmennavika í Suður Slesvig
NSU stendur fyrir ungmennaviku dagana 18. - 25. júlí 2010 sem verður haldin í Suður Slesvig á landamærum Danmerkur og Þýskalands. SDU, Sydlesvig Danske Ungdomsforeninger, skipuleggur ungmennavikuna og heldur utan um alla framkvæmdina. Ef þú ert 15 - 25 ára, þá er þetta kannski eitthvað fyrir þig.
Það er hægt að kíkja á www.sdu.de en þar má finna enn frekari upplýsingar um þetta allt.
Kostnaður við Ungmennavikuna er um 100.000.- ískr. pr. einstakling ( innifalið flug og þátttaka ). Ungmennafélag Íslands hefur ákveðið að styrkja 6 einstaklinga til fararinnar um kr. 50.000.- hvern.
Áhugasamir skulu skila inn umsóknum til UMFÍ á netfangið omar@umfi.is fyrir 28.maí 2010.
Í umsókninni skal koma fram nafn umsækjanda, kennitala og heimilisfang. Einnig skal taka fram í hvaða héraðssambandi viðkomandi er í og áhugamál.
Héraðssambönd hafa sum hver styrkt þátttakendur vegna þátttöku þeirra í ungmennaviku.
Mynd: Frá Christianslyst í Suður Slesvig. |
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 440 Gestir í dag: 85 Flettingar í gær: 586 Gestir í gær: 147 Samtals flettingar: 826939 Samtals gestir: 86196 Tölur uppfærðar: 7.2.2012 18:57:27 |