19.05.2010 16:29
19. maí 2010 klukkan 15:56
Víkingar heimsóttu KFS í sannkölluðum
öskuslag í Vestmannaeyjum í gær. Flautað var til leiks kl. 19:00 og
höfðu okkar menn í Víking ferðast frá því klukkan átta um morguninn.
Fyrst var haldið til Þorlákshafnar þar sem Herjólfur sigldi með leikmenn
og fylgdarlið yfir á Heimaey. Vel var tekið á móti okkur á Café Kró þar
sem liðið fékk að snæða bæði súpu og brauð.
Eftir matinn fór
liðið inn á gistiheimilið Heimir þar sem móttökurnar voru ekki síðri.
Eftir stuttann fund með þjálfaranum var svo haldið af stað með rútu í
búningsaðstöðuna í íþróttamiðstöð Vestmannaeyja og þaðan á völlinn.
Byrjunarlið Víkigns:
Einar
Brynjar K Tomasz Artjom Sindri S.
Fannar Brynjar G. Helgi Ó. Heiðar
Þorsteinn
Aleksandrs
Varamannabekkur Víkings:
Jón Haukur, Edin(70), Eldar(75), Andri(80) og Bega.
Leikurinn
fór fjörlega af stað þar sem Víkingar léku undan sterkum vindi. Víkingar
höfðu nær sótt án afláts þegar Sæþór Jóhannesson kom heimamönnum yfir á
10. mínútu. Um var að ræða fyrstu sókn KFS en það verður hins vegar
ekki tekið af þeim að hún var vel útfærð og Sæþór kláraði færið af
glæsibrag.
Adam var þó ekki lengi í paradís því Aleksandrs jafnaði metin
fyrir Víking aðeins 4 mínútum síðar eftir misheppnað útspark hjá
markverði heimamanna. Aleks fékk þá boltann á miðjum vallarhelming KFS
og smellti boltanum framhjá markverðinum sem var kominn langt út úr
markinu.

Á 26. mínútu leiksins kom Þorsteinn Már Ragnarsson okkar
mönnum yfir með glæsilegu marki. Þorsteinn fékk þá sendingu og var
staðsettur rétt fyrir utan teig gestanna, hrissti af sér varnarmann og
smellti boltanum í hornið fjær. Glæsilega gert og Víkingar komnir yfir.
Átta mínútum síðar bætti Heiðar Emilsson sem nýverið kom að láni frá
Stjörnunni við marki. Heiðar fékk þá sendingu frá Þorsteini sem var
kominn í ágætis færi en lagði boltann á Heiðar sem kom boltanum yfir
línuna og framhjá markverði KFS.
Víkingarnir komu svo ákveðnir
til leiks í síðari hálfleiks og strax á 47. mínútu kom Helgi Óttarr
Hafsteinsson okkur í 4-1. Helgi fékk þá boltann fyrir utan teig og
nelgdi knettinum viðstöðulaust í netið. Á 63. mínútu minnkuðu heimamenn
muninn með marki sem kom langt utan að velli. Þar var að verki Ingólfur
Einisson sem hitti boltann afarvel auk þess sem vindurinn jók hraðann á
skotinu. Einar náði ekki nægilega góðri fótfestu sem varð til þess að
hann rann í skutlunni og boltinn endaði í bláhorninu.
Það var
svo Edin Beslija sem innsiglaði sigurinn á 88. mínútu. Markvörður KFS
hafði þá varið vel frá Brynjari Gauta, Heiðar náði frákastinu, renndi
boltanum á Edin sem setti boltann pollrólegur í autt markið.
Glæsilegur
sigur Víkinga í annars erfiðum leik þar sem heimamenn í KFS voru fastir
fyrir og ákveðnir í að láta okkar menn hafa fyrir hlutunum. Dregið
verður í 3. umferð Visa-bikarins á föstudag og gaman verður að sjá hvaða
andstæðinga við fáum enda liðin í Pepsi-deildinni í pottinum.
Myndir
og myndbönd frá ferðinni koma inn á síðuna síðar.