17.05.2010 14:35
Vogabikarinn
Vogabikarinn er nýtt mótt sem Þróttur Vogum kemur til með að
halda helgina 5-6 júní fyrir 3 flokk kvenna í 7 manna bolta, og er þetta
mót einungis fyrir þau félög sem ekki eru að spila 11 manna bolta.
Verð er 6900 kr og innifalið er Gisting í Stóru Vogaskóla í eina nótt
Laugardagur :
léttar veitingar í hádeginu, vallarnesti og kvöldverður
Sunnudagur :
morgunverður, hádegisverður, vallarnesti og pizzuveisla í lokin.
einnig er frítt í sund.