|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
16.05.2010 14:34Ólafur kjörinn forseti FIBA EuropeÓlafur Rafnson nýr forseti FIBA Europe 15.05.2010
FIBA Europe er eitt af stærstu íþróttasamböndum í heiminum og er óhætt að fullyrða að þetta embætti er hið stærsta sem sem íslenskur forystumaður innan íþróttahreyfingarinnar hefur gengt á erlendum vettvangi. "Ég er þakklátur fyrir þennan góða stuðning sem ég fékk í þessu kjöri og þann heiður og það traust sem forystumenn körfuknattleikssambandanna innan Evrópu sýna mér. Enn fremur þann stuðning sem ég hef fundið fyrir á Íslandi. Ég er meðvitaður um þá miklu ábyrgð sem falin er í þessu embætti og hlakka til að takast á við þau verkefni sem framundan eru" sagði Ólafur Rafnsson nýkjörinn forseti FIBA Europe. "Þetta er númer eitt mikill persónulegur sigur fyrir Ólaf að hljóta jafn glæsilega kosningu og raun varð sem og er þetta að sjálfsögðu sigur fyrir körfuboltan á Íslandi og íþróttahreyfingunna alla. Þetta var barátta sem við vissum að Ólafur gæti unnið því hann nýtur mikillar virðingar innan alþjóða körfuboltans og með þessum sigri Ólafs hefur verið skrifaður nýr kafli í íslenska íþróttasögu" sagði Hannes S.Jónsson formaður KKÍ. HSH óskar Ólafi Rafnssyni hjartanlega til hamingju með þennan glæsilega sigur. |
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 527 Gestir í dag: 104 Flettingar í gær: 586 Gestir í gær: 147 Samtals flettingar: 827026 Samtals gestir: 86215 Tölur uppfærðar: 7.2.2012 22:30:54 |