14.05.2010 23:26
Tveir leikir fóru fram
í Faxaflóamótinu í knattspyrnu á Hellissandi í gær. Þar vann
Snæfellsnes, fjórði flokkur kvenna, stórsigur á Gróttu 7-0 og fjórði
flokkur karla vann Selfoss 3-2. Markaskorarar fyrir Snæfellsnes voru
þeir Óttar Ásbjörnsson, Kristinn Magnús Pétursson og Hilmar Orri
Jóhannsson í karlaliðinu og var Elín Ósk Jónasdóttir með tvö mörk í
kvennaflokknum og Aldís Ásgeirsdóttir, Gréta Sigurðardóttir, María Rún
Eyþórsdóttir, Aníta Sif Pálsdóttir og Guðlaug Íris Jóhannsdóttir síðan
með sitt markið hver.
Á meðfylgjandi mynd eru strákarnir í Snæfellsnessliðinu í harðri
baráttu við Selfyssinga.