|
Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýlsu |
|
10.05.2010 09:00Vinnudagur 1 og 2 hjá Vestarr8.5.2010Vinnudagur.Vinnudagur var í dag og var hin fínasta mæting, grínin voru sönduð, æfingavöllur sleginn, skálinn þrifinn og ýmislegt annað gert til að undirbúa sumarið. En betur má ef duga skal, á morgunn sunnudaginn 9.5 kl: 11 ætlum við að hittast aftur á vellinum og hengja upp skilti, koma bekkjum á sína staði og klára annað smálegt sem þarf að gera fyrir sumarið. Á næstu dögum / vikum verður svo skálinn málaður, borið á pallinn og annað sem þarf á málingarupplyftingu að halda.Verið er að útbúa lista með símanúmerum félagsmanna til að auðvelda okkur að koma skilaboðum til félaga þegar eitthvað liggur við annað hvort í skemmtun eða vinnu. Listi verður þannig að hjón/pör fá sameiginlegt sms eða bara í einn síma og ef sá sími sem verður fyrir valinu hjá okkur hentar ykkur ekki þá látið Önnu Maríu s 869 6076 / netfang annamaria@grun.is vita og hún breytir í það númer sem þið viljið hafa. Hvert sms kostar 5. krónur og með þessu móti verður kostnaður okkar minni. Svo viljum við minna ykkur á fyrsta mót sumarsins sem er háforgjamót og verður sunnudaginn 16.05 2010. Anna María 9.5.2010Vinnudagur 2Jæja þá er vinnudegi tvö lokið. Góð mæting var og vel flest klárað sem þarf að gera til að völurinn sé klár fyrir sumarið. Boðið var uppá vöfflur fyrir duglega vinnumenn og svo var helginn enduð á vinnumóti sem 13 manns tóku þátt í í blíðskapar veðri. Þeir sem nýkomnir erum heim úr golfferðum erlendis frá voru ekki alveg með það á hreinu hvort þeir væru enn að spila á erlendri grund eða hvort veðrið væri virkilega orðið svona gott á Íslandi í byrjun maí. Á næstu dögum verður boðað til vinnudags þrjú til bera á skála og pall. Vonandi verður veðrið áfram gott hjá okkur svo hægt sé að gera það sem fyrst. Send verður út tilkynning með sms. Stjórn Vestarr vill þakka öllum sem mættu á vinnudagana, margar hendur vinna létt verk. |
Vafraðu umEldra efni
HSH Nafn: Héraðssamband Snæfellsnes og HnappadalssýsluFarsími: 865-0294Tölvupóstfang: hsh@hsh.isAfmælisdagur: 24 september 1922Heimilisfang: Sólvellir 3. 350 GrundarfirðiHeimasími: 436-1635Önnur vefsíða: umfi.isBankanúmer: 0191-15-370322Tenglar
Flettingar í dag: 466 Gestir í dag: 91 Flettingar í gær: 586 Gestir í gær: 147 Samtals flettingar: 826965 Samtals gestir: 86202 Tölur uppfærðar: 7.2.2012 19:51:30 |